Blessun eða bölvun? 30. september 2004 00:01
Svo virðist sem náttúruauðlindir færi þjóðum meira böl en blessun. Bent hefur verið á að ríkjum sem auðug eru af góðmálmum eða olíu vegni oft illa í efnahagslegu tilliti og sé þar að auki mun hættara við átökum en þeim ríkjum sem fáar auðlindir hafa. Deilur um yfirráð yfir náttúruauðlindum hafa verið rót allflestra stríðsátaka síðari ára. Demantar voru ein höfuðástæða borgarastyrjaldarinnar í Sierra Leone, Írak réðst á sínum tíma inn í Kuveit vegna olíuhagsmuna og uppreisnarmenn sem berjast gegn nígerískum stjórnvöldum þessa dagana segjast ætla ná olíulindum landsins undir sig. Á það hefur einnig verið bent að ríkjum sem náttúran hefur gætt auðlindum vegni verr efnahagslega en þeim sem litlar auðlindir hafa, þjóðarframleiðsla þeirra er lítil og flestir íbúanna snauðir. Þannig býr Japan ekki yfir neinum sérstökum náttúruauðæfum en er engu að síður í hópi ríkustu þjóða heims. Flest ríki Afríku búa við hins vegar við sára fátækt þrátt fyrir gnægð auðlinda. Sjálfsagt hefur sá aðstöðumunur sem þegar er á stöðu ríkra og fátækra þjóða hér talsvert að segja en hagfræðingar hafa jafnframt tiltekið nokkur atriði sem benda til þess að sjálfar náttúruauðlindirnar séu orsökin. Til dæmis gera hinar öruggu auðlindatekjur það að verkum að áhrifamenn reyna frekar að sölsa undir sig stærri hluta kökunnar í stað þess að reyna að stækka hana. Oft leiðir til átaka af togstreitunni sem skapast við þetta. Miklar útflutningstekjur af góðmálmum og olíu hafa það í för með sér að gjaldmiðill viðkomandi ríkis styrkist svo mikið að aðrar útflutningsgreinar eiga oft mjög erfitt uppdráttar. Afleiðing af þessu er atvinnuleysi og almenn fátækt, enda skapast fá störf við úrvinnslu auðlindanna. Á meðan verður rík forréttindastétt enn auðugri. Sem betur fer eru ekki öll ríki sem ráða yfir náttúruauðlindum dæmd til örbirgðar og átaka. Lýðræðislegir stjórnarhættir og opið stjórnkerfi skilja hér gjarnan á milli feigs og ófeigs. Dæmi um þetta er Afríkuríkið Botswana sem er afar auðugt af demöntum og hefur búið við um 8% hagvöxt í áratugi. Þar er lýðræði fast í sessi og stöðugleiki ríkir þótt stór hluti þjóðarinnar sé sýktur af alnæmi.
Erlent Fréttir Mest lesið Skotvopnin reyndust leikfangabyssur Innlent Viðræður við Íran hefjist á morgun Erlent Miðaði byssu á annan mann Innlent Tveir lagðir við gangstéttina Innlent Sárt að geta ekki sagt ömmu sinni frá sakleysi sínu Innlent Játaði að hafa flutt líkið í ferðatösku Erlent Siggi stormur sár en dregur ekki í land Innlent „Þetta voru þrjátíu til sextíu sekúndur og allt húsið var að brenna“ Innlent Knapi datt af baki Innlent Meirihluti hlynntur samfélagsmiðlabanni unglinga Innlent Fleiri fréttir Viðræður við Íran hefjist á morgun Játaði að hafa flutt líkið í ferðatösku Sviðið flak annarrar þyrlunnar hafnaði á vegi Dani lést í þyrluslysinu Danir auka vígbúnað í Færeyjum Þyrlur slökkviliðs skullu saman í miðju lofti Trump boðar hlé á árásum og fullyrðir að samkomulag sé í sjónmáli Hröpuðu til bana í skoðunarflugi yfir Nazca-línurnar Þrír látnir í sprengingu á veitingastað í Moskvu Ráðherrar Evrópu halda neyðarfund á þriðjudag Harðar deilur innan klerkastjórnarinnar Níu felldir í Kænugarði Kallað eftir skyndifundi innanríkisráðherra ESB Myndir: Tugir þúsunda syntu til Ceuta Skilaboð send úr símanum í blekkingarskyni Hamasliðar samþykkja að afvopnast Tæplega 50 þúsund manns synt til Ceuta á einum sólahring Trump segir Hamas samþykkja að afvopnast og Ísrael að hverfa frá Gasa „Hún drap börnin“ „Það sem hann gerði, ég get aldrei endurgoldið það“ Nítján ára Norðmaður dæmdur fyrir að taka að sér leigumorð á Englandi Bandaríkjamaður sagður smygla vopnum og málaliðum til Súdan Rússnesk stýriflaug líklega lent í Póllandi Segjast hafa gert harða hríð að byltingarverðinum Minnst þrjátíu látnir í Japan Fjögur börn látin eftir loftárásir Rússa á borgir Úkraínu Neitaði að svara spurningum þingmanna Leita enn í rústunum í Japan „Við ætlum að fokking lúskra á þeim“ Stofnandi Telegram ákærður og eftirlýstur í Rússlandi Sjá meira