Rússar staðfesta Kyotosáttmálann 30. september 2004 00:01
Rússar hafa ákveðið að staðfesta Kyoto-sáttmálann um að draga úr útblæstri gróðurhúsalofttegunda. Þar með aukast líkurnar á því að sáttmálinn frá 1997 taki gildi en til þess þurfa minnst 55 ríki sem bera ábyrgð á a.m.k. 55 prósentum af útblæstri gróðurhúsalofttegunda að staðfesta sáttmálann. Ríkin sem staðfesta sáttmálann skuldbinda sig til þess að útblástur gróðurhúsalofttegunda verði ekki meiri árið 2012 en hann var árið 1990. Með því á að sporna gegn hlýnun jarðar. Lengi hefur legið ljóst fyrir að sáttmálinn tekur ekki gildi án staðfestingar Rússa. Ástæðan er sú að bæði bandarísk og kínversk stjórnvöld þvertaka fyrir að staðfesta sáttmálann. Þess vegna hefur Evrópusambandið þrýst mjög á Rússa að staðfesta sáttmálann. Pútín hét því í maí að flýta fyrir því að Rússar staðfestu Kyoto-sáttmálann. Það gerði hann gegn því að fá stuðning Evrópusambandsins við inngöngu Rússlands í Alþjóðaviðskiptastofnunina. Skilja mátti á rússneskum ráðamönnum í gær að þeir væru ekki alls kostar sáttir við að staðfesta sáttmálann. "Þetta er ákvörðun sem var tekin vegna þrýstings og við erum ekki sáttir við að taka," sagði Andrei Illarionov, efnahagsráðgjafi Vladimírs Pútín Rússlandsforseta, sem hefur verið framarlega í hópi rússneskra andstæðinga Kyoto-sáttmálans. Útblástur gróðurhúsalofttegunda frá Rússlandi er nú þriðjungi minni en hann var árið 1990. Ástæðan er að hluta til sú að mengandi stóriðja sovéttímans hefur vikið fyrir umhverfisvænni tæknibúnaði og að hluta vegna þess að mörg iðnfyrirtæki hafa hætt starfsemi. Nú er hins vegar útlit fyrir að útblásturinn aukist samfara uppsveiflu í rússnesku efnahagslífi. Því eru margir rússneskir ráðamenn andvígir því að sáttmálinn verði staðfestur þar sem þeir telja að hann dragi úr möguleikum Rússa á að byggja upp efnahag sinn.
Erlent Fréttir Mest lesið Valdimar Örnólfsson er látinn Innlent Reiði yfir pítsupartíi: Auglýst á fundi án samráðs Innlent Farþegar sjá ekki fólkið sem gegnumlýsir farangurinn Innlent Deiluefni jafnað við jörðu í Kópavogi Innlent Með lista yfir góða og slæma bandamenn Erlent Fjórir í lífshættu eftir lestarslys í Danmörku Erlent Vekur spurningar um hugsanlega meðferð við heilabilun Innlent Fresta leit að ferðamanninum Innlent Fimm í lífshættu eftir lestarslysið Erlent Berserksgangur á gististað Innlent Fleiri fréttir Fyrirtæki MrBeast sakað um að afsaka kynferðislega áreitni Skjóta á alla báta sem leggja tundurdufl Með lista yfir góða og slæma bandamenn Fimm í lífshættu eftir lestarslysið Fjórir í lífshættu eftir lestarslys í Danmörku Vélmennið Ace sigrar atvinnumenn í borðtennis Tóku tvö skip og réðust á það þriðja Óvænt jafntefli í kjördæmastríðinu Sækja mannréttindasamtök til saka vegna njósna um öfgamenn Vilja senda afganska bandamenn og fjölskyldur til Kongó Hætta að styrkja Feneyjartvíæringinn vegna þátttöku Rússa Vilja tæpar tvö hundruð billjónir til varnarmála Allir Bretar fæddir eftir 2008 í lífstíðarbann frá tóbaki Framlengir vopnahléið og herkvína Þriðji þingmaðurinn segir af sér á viku Viðræður enn á ís vegna „óásættanlegrar“ hegðunar Ein af hinstu óskum Frans páfa enn óuppfyllt „Jæja, herra Heuermann. Mér skilst að þú hyggist játa fyrir mér þessi morð?“ Starmer vissi ekkert en þrýstingurinn mikill að gefa Mandelson grænt ljós Skaut ferðamann til bana við mexíkóskan pýramída Friðurinn úti á morgun en ekkert ákveðið um viðræður Óttast enn stærri skjálfta í Japan á næstu dögum Vilja festa símabannið í lög Vill þrjátíu milljarða vegna fyllerísfréttar D4vid ákærður fyrir að myrða táningsstúlku Utankjörfundur fer vel af stað og fylgið að setjast Stór skálfti í Japan og flóðbylgjuviðvörun gefin út Bandamaður Rússa vann stórsigur í Búlgaríu Faðirinn skaut sjö börn sín til bana og eitt til viðbótar Starmer á leið á átakafund í þinginu Sjá meira