Ástand al-Sadrs óvíst 13. ágúst 2004 00:01
Sjítaklerkurinn Moqtada al-Sadr, foringi uppreisnarmanna sjíta í Írak, særðist í bardögum í Najaf í nótt að sögn talsmanna hans. Innanríkisráðherra bráðabirgðastjórnar Íraks segir þessar upplýsingar hins vegar rangar. Í yfirlýsingu frá talsmönnum al-Sadrs segir að hann hafi hlotið þrjú sár í bardögum við hinn umfangsmikla grafreit sjítamúslíma við grafhýsi Alís um sjöleytið í morgun að staðartíma, eða um þrjú í nótt að íslenskum tíma. Aðstoðarmaður Sadrs, Sheikh Ahmed al-Shaibani, segir að Sadr hafi hvatt liðsmenn sína til að halda hinu heilaga stríði áfram, þó að hann félli í bardaga. Innanríkisráðherra Íraks segir al-Sadr hins vegar ekki hafa særst í nótt og að hann sé í viðræðum við stjórnvöld í Írak um að yfirgefa bænahús í miðborg Najaf þar sem uppreisnarmenn hafa hreiðrað um sig. Innanríkisráðherrann segir að al-Sadr verði ekki handtekinn, yfirgefi hann bænahúsið, og bætir við að vopnahlé hafi verið komið á eftir átökin í gær. Af al-Sadr er það annað að frétta að hann hefur biðlað til uppreisnarmanna að láta breska blaðamanninn, sem rænt var í morgun, af hendi. Í morgun réðust 30 byssumenn inn á hótel blaðamannsins í Basra og rændu honum þaðan. Þeir hafa síðan hótað honum lífláti, fari herir Bandaríkjamanna ekki frá Najaf innan sólahrings.
Erlent Fréttir Mest lesið Töpuðu tæpum hundrað milljónum Innlent Milljónir í sekt fyrir að bakka á konu Innlent Þau kvöddu á árinu 2025 Erlent Hitinn fór í 19,8 stig og desembermetið slegið Veður Seinfeld og Friends-leikari látinn Lífið Klæðning fauk af Stjórnsýsluhúsinu og skemmdi bíla Innlent Yfir hundrað handteknir grunaðir um að skipuleggja árásir á gamlársdag Erlent Fundu yfir milljón skjöl sem tengjast Epstein Erlent Hvar er opið á aðfangadag? Innlent Gefur lítið fyrir staðhæfingar um nýfallið hitamet Veður Fleiri fréttir Rússar opna leikhúsið í Maríupól á ný Yfir hundrað handteknir grunaðir um að skipuleggja árásir á gamlársdag Fjallaði um stríðsátök í jólaávarpinu Fundu yfir milljón skjöl sem tengjast Epstein Fimm fórust í þyrluslysi á Kilimanjaro Þau kvöddu á árinu 2025 Kynnti drög að nýrri friðaráætlun Tveir lögreglumenn sprengdir í loft upp Blússandi hagvöxtur í Bandaríkjunum Nýjar ákærur á hendur Russell Brand Fleiri Epstein-skjöl birt: Bað um „óviðeigandi vinkonur“ Saka AfD um að ganga erinda Kremlverja Kínverjar og Rússar lýsa yfir stuðningi við Venesúela Skapari Call of Duty lést í bílslysi Trump nefnir nýja kynslóð orrustuskipa í höfuðið á sjálfum sér „Bandaríkin eiga ekki að taka yfir Grænland“ Nýr ritstjóri stöðvaði umfjöllun um brottvísanir Trump Breiddi út faðminn fyrir rasista: „Þið þurfið ekki að biðjast afsökunar á að vera hvít lengur“ Sprengdu rússneskan hershöfðingja í loft upp í Moskvu Undirbúningur árásarinnar stóð yfir í marga mánuði Trump skipar sendifulltrúa fyrir Grænland Segir unnið að því að móta sameiginlega nálgun Bandaríkjanna, Úkraínu og Evrópu Sýknaður af nauðgun eftir að hafa verið skimaður fyrir sjaldgæfri svefnröskun Málið sem Trump getur ekki losað sig við Grunaður um manndráp eftir að tveggja ára drengur féll úr blokk Fóru um borð í vélvana rússneskt skip Baulað á Albanese á minningarathöfn á Bondi-strönd Kvarta yfir ritskoðun Epstein-skjala: „Við vitum ekki hvað við vitum ekki“ Níu skotnir til bana á krá Sextán ára fékk greitt fyrir að færa Epstein stúlkur Sjá meira