Erlent

12 látast í kirkjusprengingum

Talið er að að minnsta kosti 12 hafi látist í nokkrum sprengingum nálægt kirkjum í Bagdad og borginni Mosul í dag að sögn lögreglu í Írak. Fyrstu tvær sprengingarnar urðu nálægt kirkjum í fjölmennu verslunarhverfi í Bagdad. Þriðja spengingin varð stuttu síðar í Mosul þar sem sprengja hafði sprungið við lögreglustöð fyrr um daginn, þar létust að minnsta kosti fimm og fimmtíu særðust.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×