Innlent

Dregið í opnunarleik Vísis

Búið er að draga úr skráningum sem bárust í opnunarleik Vísis sem efnt var til vegna opnunar nýs og glæsilegs vefs, www.visir.is 16. júní síðastliðinn. Samtals skráðu sig rúmlega 11.000 manns og voru fimm heppnir þátttakendur dregnir út. Vinningar voru afhentir fyrir helgi. Á meðfylgjandi mynd eru frá vinstri: Árni Þór Sævarsson, auglýsingastjóri Vísis, Hólmfríður Guðlaug Einarsdóttir, Hjörtur Svavarsson sem tók við vinningi Albertínu Elíasardóttur og Óskar J. Hlöðversson. Vinningshafar eru: * Óskar J. Hlöðversson Reykjavík - Canon Ixus 500 stafræn myndavél frá Nýherja* Hólmfríður G. Einarsdóttir Reykjavík - Canon Ixus 500 stafræn myndavél frá Nýherja* María Elísabet Laroco Reykjavík - Canon i865 prentari frá Nýherja* Albertína Elíasardóttir Ísafirði - Flugmiðar fyrir tvo innanlands með Flugfélagi Íslands Einn vinningshafi hefur ekki enn gefið sig fram en sá hlaut flugmiða fyrir tvo innanlands með Flugfélagi Íslands. 


Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×