Erlent

Vilja banna hýr hjónabönd

Repúblikanar lofa því að ekki einu sinni bakslag í þinginu geti komið í veg fyrir að bann við giftingum samkynhneigðra verði leitt í lög. Giftingar samkynhneigðra eru leyfðar í einu fylkja Bandaríkjanna, Massachusetts. Málefni hjónabanda samkynhneigðra hafa nokkuð verið rædd í aðdraganda forsetakosninganna í Bandaríkjunum í nóvember. Demókratar hafa sakað repúblikana um að vekja athygli á þessu máli til þess eins að draga athygli kjósenda frá stríðinu í Írak og efnahagsmálum.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×