Erlent

Fullorðnir glápa meira en börn

Dönsk börn horfa talsvert minna á sjónvarp en fullorðnir samkvæmt nýrri rannsókn. Niðurstöðurnar ganga þannig gegn hinni bjargföstu almennu trú að ungt fólk horfi sífellt meira á sjónvarp. Reyndar hefur sjónvarpsgláp barna minnkað hratt á síðustu fimmtán árum en á sama tíma hafa fullorðnir aukið það. Nú er svo komið að fullorðnir í Danmörku horfa meira en einni klukkustund lengur á dag á sjónvarp en börnin þeirra.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×