Erlent

Réttarhöldum frestað

Réttarhöldum yfir Mikhaíl Khodorkovsky, aðaleiganda rússneska olíurisans Yukos, var í morgun frestað og hefjast þau að nýju síðdegis á morgun. Verjandi hans fór fram á að Khodorkovsky yrði látinn laus gegn tryggingu af heilsufarsástæðum en dómarar synjuðu því. Khodorkovsky var handtekinn í október í fyrra. Stjórnvöld telja að Yukos skuldi sjö milljarða dollara en forsvarsmenn fyrirtækisins hafna því og segja að innheimtuaðgerðir í þá veru myndu ríða fyrirtækinu að fullu. Margir telja að raunveruleg ástæða fyrir handtöku Khodorkovskys sé af pólitískum toga.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×