Erlent

Heimkvaðning sem fyrst

Algjör óvissa ríkir nú um hvort filippseyskir friðargæsluliðar í Írak verða kallaðir heim snemma í von um að gísl sem mannræningjar hafa hótað að afhöfða verði þyrmt. Filippseysk stjórnvöld hafa neitað heimkvaðningu en í gær sendi utanríkisráðherra landsins frá sér yfirlýsingu þess efnis að heimkvaðningin kæmi svo skjótt sem auðið væri. Það virðist þó ekki alveg á hreinu og því síður liggja örlög gíslsins fyrir.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×