Neyðaráætlun vegna hryðjuverka 12. júlí 2004 00:01
Bandaríkamenn óttast hryðjuverk í tengslum við forsetakosningarnar í nóvember og hafa undirbúið neyðaráætlun um að fresta kosningunum ef svo fer. Forsetakosningarnar í Bandaríkjunum nálgast óðum. Barátta þeirra Bush og Kerrys er í fullum gangi og keppast þeir við að sýna á sér hinar mannlegu og persónulegu hliðar. Stjórnvöld telja mögulegt að fylgismenn al-Kaída láta til skarar skríða nokkrum dögum fyrir kjördag til að hafa áhrif á úrslitin, líkt og gerðist í þingkosningunum á Spáni í mars sl. Því hefur verið undirbúin neyðaráætlun til að fresta kosningunum ef hryðjuverk verða framin. Áætlunin hefur enn ekki verið samþykkt og fer hún misvel í þingmenn sem benda á að kosningar séu haldnar þrátt fyrir jarðskjálfta og styrjaldir. Það séu því engin rök fyrir því að seinka kosningunum, og með því væri í raun verið að níðast á lýðræðinu. Fyrr í sumar var dufti kastað í Tony Blair, forsætisráðherra Bretlands, í þinghúsinu. Þetta þótti afhjúpa mikla veikleika í öryggisgæslu þingins og fór fram allsherjar endurskoðun á henni. Breska leyniþjónustan hefur áhyggjur af því að hryðjuverkaárás verði gerð á Big Ben, eitt af kennileitum Lundúnaborgar. Þá er lagt til að byggður verði stálveggur í kringum þinghúsið.
Erlent Fréttir Stj.mál Mest lesið Safna í sérstakt sjóherlið á Norðurslóðum Erlent Banaslys í Skorradalsvatni Innlent Segist ekkert hafa fengið greitt: „Pólitískur hráskinnaleikur“ Innlent Ofurölvi reyndi að opna bíla í akstri Innlent Andar köldu milli Viðreisnar- og Miðflokksmanna Innlent Urðu eftir í Flatey á meðan Baldur sigldi suður Innlent Nafn mannsins sem lést í fallhlífastökki í Danmörku Innlent „Þetta er bara eins og að missa vini sína“ Innlent „Við erum með lengri óskalista heldur en þetta“ Innlent Föst í umferð í tæpa fjóra sólarhringa á ári og kostnaðurinn yfir hundrað milljarðar Innlent Fleiri fréttir Safna í sérstakt sjóherlið á Norðurslóðum Vilja nú alþjóðlegt samstarf um Hormússund Ekkert fararsnið á Rússum í Malí Mamdani vill að Bretar skili Koh-i-Noor Bútaði líkið í sundur í uppblásinni sundlaug Trump segist vera að íhuga að draga saman seglin í Þýskalandi Áttu langt símtal Repúblikanar vinna orrustu í kjördæmastríðinu Byltingarvörðurinn herðir tökin á stjórnartaumunum Einn handtekinn grunaður um stunguárás gegn gyðingum Íslenskir jöklar töpuðu mestu í Evrópu Þingmenn klöppuðu óspart fyrir konunginum Afhroð Rússa í Malí: Vígamenn segjast stjórna stórum hluta landsins Ásýnd Trump mun prýða viðhafnarútgáfu vegabréfsins Fyrrverandi forstjóri FBI ákærður fyrir líflátshótun í garð Trump Einn skæðasti glæpamaður Mexíkó gómaður í fráveituröri Játaði að hafa skipulagt hryðjuverk á tónleikum Swift „Mamma mín var skotin í Karli, trúið þið því?“ Repúblikanar fylgja Trump: Árásin sögð sýna nauðsyn þess að klára veislusalinn Aftökum fjölgaði verulega í kórónuveirufaraldrinum Rússnesk lúxussnekkja fór um Hormús-sund án vandræða Konungshjónin komin vestur um haf og Karl ávarpar þingið í dag Merz segir Írani spila með Bandaríkjastjórn Ákærður fyrir banatilræði við Trump Vara við aukinni ógn vegna sjórána við strendur Sómalíu „Við búum í brjáluðum heimi“ Sendi fjölskyldunni lista af skotmörkum í forgangsröð Talinn ætla að ráðast á Trump og fleiri háttsetta Árásin til marks um aukna hörku vestanhafs Fjörutíu ár frá slysinu í Tsjernobyl: „Eins og heimurinn gæti snúið aftur til ársins 1986“ Sjá meira