Hunsa fyrirmæli Evrópusambands 10. júlí 2004 00:01
Evrópusambandið hefur nú gefið Bretum sínu þriðju og síðustu aðvörun vegna aðgerða breskra tollayfirvalda sem sýna mikla hörku gagnvart þeim þegnum sínum sem kaupa áfengi og tóbak í öðrum Evrópusambandslöndum. Samkvæmt lögum sambandsins eru engar hömlur á verslun landa á milli að því gefnu að um einkaneyslu sé að ræða en yfirvöld í Bretlandi hafa ítrekað orðið uppvís að því að gera upptækt áfengi og tóbak sem þegnar þeirra versla mun ódýrara annars staðar. Ástæðan er einfaldlega sú að verð á áfengi og tóbaki er óvíða hærra en í Bretlandi og munar miklu á verði þar og í flestum öðrum ríkjum sambandsins. Breska stjórnin segir að svartamarkaðsbrask með þessar vörur sé vaxandi og því sé gengið harðar fram en ella en Evrópusambandið fellst ekki á þessi rök og er reiðubúið að senda málið fyrir dómstóla ef ekki er gerð bragarbót á. Bretar eru ekki einir um áhyggjur af tekjumissi vegna ásóknar í ódýrt vín og tóbak. Finnska stjórnin horfir ráðþrota á landa sína versla í Eistlandi og hefur sú verslun aukist hratt þrátt fyrir mikla skattalækkun finnskra stjórnvalda á þessum sömu vörum.
Erlent Fréttir Mest lesið „Fólk er bara slegið“ Innlent Fjöldi menntaskólanema sá myndskeið af árásinni Innlent „Ég er hræddur við þessa menn“ Innlent „Sleggja beint í höfuðið á almenningi og fyrirtækjum“ Innlent Þúsundir kalla eftir afsögn Þorgerðar: „Vandræðaleg tilraun“ Innlent „Viljið þið gjöra svo vel að fyrirgefa mér af öllu hjarta“ Innlent Blása á gagnrýni og opna dagatalið Innlent Biður Loga afsökunar „á dónaskapnum“ Innlent „Við fyrirgefum ráðherra þessa yfirsjón“ Innlent Leikskólakennarar slegnir yfir ummælum Ingu Innlent Fleiri fréttir Leggur stefnu AfD að jöfnu við þjóðernishreinsanir Farage kemur frönskum skoðanabróður í klandur Banna breskum þingmönnum að koma til Ísraels Haraldur Noregskonungur borinn til grafar Rétta yfir rússneskum skipstjóra sem sleit sæstrengi við Finnland Leita enn að Renoir-þjófunum Bannar innflutning á kanadískum vörum Réðust á fleiri olíuflutningaskip Skutu tugum eldflauga og dróna að borgum Sádi-Arabíu Töluðu saman í klukkutíma Handtaka grunaðan spellvirkja í Þýskalandi Fordæma útförina sem „Slátrarinn“ fékk í Serbíu Grípa saman til aðgerða gegn ísraelskum landtökumönnum Allir þeir látnu í bílum sem flugvélin rann á Dýrmætum listaverkum stolið af safni Renoir Starfsmenn í verkfall eftir heimsókn trúarhóps Kim fjölgar herskipum sínum Fjárfesta í menntamálum, fjarskiptum og jarðmálmum á Grænlandi Klerkastjórnin missir tökin Rússar svara fyrir sig Ísland á Ameríkukorti Trumps Stöðnun og dýrtíð að baki stórsigri AfD Kanslarinn segir sigur AfD draga dilk á eftir sér Svíþjóðardemókrati í leyfi vegna Rússaáróðurs og hreinsanir á vinstri vængnum Útlit fyrir fyrstu fjarhægristjórnina frá endalokum nasismans Nafnabreytingaæði Trumps heldur áfram Ýmislegt bendi til stjórnarskipta í Svíþjóð Minnst fimm látnir eftir flugslys í Flórída Útgönguspár benda til stórsigurs AfD Margrét Þórhildur lögð inn á sjúkrahús Sjá meira