Breytast í hrygnur 10. júlí 2004 00:01
Þriðjungur hænga í breskum ám er að breytast í hrygnur vegna mengunar. Einkum eru það hormónaleifar í skólpi, ekki síst vegna getnaðarvarnarpilla, sem taldar eru valda þessu. Breska umhverfisstofnunin gerði rannsókn á 1500 fiskum í 50 breskum ám, og komst að því að ríflega þriðjungur hænga sýni merki þess að kynskiptast. Vísindamenn stofnunarinnar segja mikla ástæðu til að óttast langtímaáhrif þessa á fiskistofna, þar sem kynskiptir eða millikynja fiskar geti síður fjölgað sér. Beint samhengi væri á milli fjölda svokallaðra millikynja fiska og þess magns af skólpi sem beint væri í viðkomandi ár. Einkum væri mikið magn hormóna, einkum östradiols og estróns, talið leiða til kynskipta, en þessi hormón eru úrgangsefni úr konum sem taka getnaðarvarnapillu. Þeir hængar, sem orðið hafa fyrir kynskiptiáhrifum, eiga erfitt með að fjölga sér. Í fjölda þeirra reyndist aðeins aðeins ein sáðrás til staðar, en eggrásir höfðu myndast frá öðrum eða báðum kynkirtlum. Í sumum hænganna fundust eggfrumur í eistum. Vísindamennirnir bresku segja nauðsynlegt að grípa þegar til ráðstafana og hreinsa skólp mun betur. Nú sé verið að kanna hreinsunartækni og rannsaka, hvort að ekki sé hægt að hreinsa hormónin sem helst valda kynskiptum út úr skólpi áður en því er beint í ár og haf.
Erlent Fréttir Mest lesið Útgrátin og brotin frammi fyrir öllum Innlent Hafi loks slíðrað sverðin Innlent Starfsmenn séu eltir heim og lífi þeirra ógnað Innlent Stjórnendur Sorpu slegnir Innlent Lét maka vinna fyrir sig í skólanum Innlent Samþykkja sölu á hundruðum Patriot-flauga Erlent Ósáttir sendlar bjóða Wolt fram aðstoð sína Innlent Skringileg túlkun að hinsegin fáninn sé útilokandi Innlent Ökumenn beðnir um að aka sérstaklega varlega Innlent Veltir fyrir sér hvort Viðskiptaráð haldi að Íslendingar séu hálfvitar Innlent Fleiri fréttir Stjórnlagadómstóll Póllands sakar stjórnvöld um valdarán Búa sig undir þriðju helgi mótmæla Samþykkja sölu á hundruðum Patriot-flauga Skoða hvort konum hafi verið smyglað í sumarbúðir kóngafólksins „Ég hafði ekki séð fyrir mér líf eftir þessa nótt“ „Þeir drápu okkur“: Einum síðasta frjálsa fjölmiðli Rússlands lokað „Þú ert ógeðslegur, komdu þér í form“ Hófu aftur árásir á olíuvinnslur eftir blóðbað Sveppamorðingi fær enga reynslulausn Flókið stjórnarmyndunarferli fram undan í Ísrael Sagður hafa átt í samskiptum við kínverskan njósnara Óvænt ákvörðun þingforsetans reitir vinstrimenn til reiði Tvö mannskæð slys vekja upp spurningar um öryggi Hafnar ásökunum um kosningasvindl Blóðbað á lestarpalli Krefjast enn að forsetinn verði dæmdur til dauða Þriggja daga þjóðarsorg hafin á Spáni Telja síðustu atkvæðin í Ísrael Stýrivextir óbreyttir og stutt í kosningar Skipverjar skemmtiferðaskips sitja fastir í Kambódíu Senda þúsund hermenn til Haítí eftir umsátur Kerfisvilla og mannleg mistök leitt til slyssins Fleiri gamalmenni en börn í Kína Sátu undir sögufyrirlestri Pútíns Báðir vilja mynda ríkisstjórn en ekki vinna með aröbum Minnst 64 sagðir látnir í árekstri hraðlesta á Spáni Opinberuðu lögbrot í kjúklingabúi með falinni myndavél Ted Bundy tengdur við 52 ára gamalt óleyst morð Meirihluti atkvæða talinn en enginn með þingmeirihluta Tekur við Bolsonaro opnum örmum Sjá meira