Fimm látnir á Srí Lanka 7. júlí 2004 00:01
Að minnsta kosti fimm manns létu lífið og um tugur særðist í sjálfsmorðsárás uppreisnarmanna í Kólombó á Srí Lanka í morgun. Hjördís Finnbogadóttir, talsmaður norrænu friðargæslunnar á Srí Lanka, segir spennu og ótta hafa aukist í landinu að undanförnu. Sjálfsmorðsárásin er sú fyrsta sem uppreisnarmenn gera á Srí Lanka frá því þeir undirrituðu samkomulag um vopnahlé í landinu í febrúar árið 2002 að frumkvæði Norðmanna. Tilræðismaðurinn var kona úr röðum Tamíl Tígra og sprengdi hún sjálfa sig upp við lögreglustöð í borginni, skammt frá skrifstofu forsætisráðherra landsins og bandaríska og breska sendiráðinu. Minnst fimm manns létust í árásinni, þar af fjórir lögreglumenn. Ekki er ljóst hvaða áhrif þessi atburður hefur á friðarferlið á Srí Lanka en áratugalöng borgarastyrjöld hefur kostað 64 þúsund mannslíf. Hjördís Finnbogadóttir, talsmaður norrænu friðargæslunnar á Srí Lanka, segir aukna spennu hafa verið í landinu undanfarnar vikur og ótti um að friðarferlið væri kannski ekki á réttri leið. Það væri bara vopnahlé sem stendur og því væri í rauninni enn stríð í landinu. Hægt er að hlusta á stutt viðtal við Hjördísi með því að smella á hlekkinn sem fylgir fréttinni í fréttayfirlitinu.
Erlent Fréttir Mest lesið Tilhæfislaus líkamsárás í annað sinn og enginn kom til aðstoðar Innlent Hrindir af stað söfnun fyrir föður drengsins Innlent Dró konu eftir gangstétt og lyfti henni svo upp með hálstaki Innlent Árekstur á Suðurlandsbraut Innlent Frumkvæðisvinna lögreglu að loka fjórum afhendingarstöðum Innlent Brenndu rangt lík Erlent Keyptu aðstoð vegna leiðréttingar landsframlags og hringferðar ráðherra Innlent Sjálfvirkir lyfjaskammtarar borgi sig tvöfalt til baka Innlent Noregur hyggst innleiða samfélagsmiðlabann Erlent Leita í rústum íbúðahúsa Erlent Fleiri fréttir Maðurinn sem var næstur í röðinni hjá mormónum látinn Einn látinn í óveðrinu í Svíþjóð Níu handteknir fyrir að safna pening fyrir Hamas Fjórir göngumenn látnir eftir snjóflóð í Grikklandi Brenndu rangt lík Leita í rústum íbúðahúsa Noregur hyggst innleiða samfélagsmiðlabann Semja aftur um vopnahlé Ísrael viðurkennir sjálfstæði Sómalílands fyrst allra landa Röð stunguárása í neðanjarðarlestinni Loftárásum fagnað sem „stórkostlegri jólagjöf“ og meira sagt í vændum Minnst fimmtán særðir eftir hnífa- og efnaárás í Japan Mun funda með Trump „í náinni framtíð“ Fyrirskipaði árásir á „hryðjuverkaúrhrök“ í Nígeríu Rússar opna leikhúsið í Maríupól á ný Yfir hundrað handteknir grunaðir um að skipuleggja árásir á gamlársdag Fjallaði um stríðsátök í jólaávarpinu Fundu yfir milljón skjöl sem tengjast Epstein Fimm fórust í þyrluslysi á Kilimanjaro Þau kvöddu á árinu 2025 Kynnti drög að nýrri friðaráætlun Tveir lögreglumenn sprengdir í loft upp Blússandi hagvöxtur í Bandaríkjunum Nýjar ákærur á hendur Russell Brand Fleiri Epstein-skjöl birt: Bað um „óviðeigandi vinkonur“ Saka AfD um að ganga erinda Kremlverja Kínverjar og Rússar lýsa yfir stuðningi við Venesúela Skapari Call of Duty lést í bílslysi Trump nefnir nýja kynslóð orrustuskipa í höfuðið á sjálfum sér „Bandaríkin eiga ekki að taka yfir Grænland“ Sjá meira