Múrinn að hluta ólöglegur 30. júní 2004 00:01
Allir hrósa sigri eftir að hæstiréttur Ísraels skipaði svo fyrir að hluti af öryggismúr Ísraelsmanna yrði fluttur. Dómararnir sögðu réttmætt að reisa varnarmúr en að gæta yrði hófs, ekki mætti brjóta gróflega á Palestínumönnum. Hæstiréttur í Ísrael úrskurðaði í morgun að flytja yrði um 40 kílómetra langan kafla öryggismúrsins, en byggingu þess hluta var hætt þegar í mars. Rökstuðningurinn er á þá leið, að 35 þúsund manns myndu finna fyrir afleiðingum múrsins þar sem til stóð að reisa hann. Múrinn hefði til að mynda skilið bændur frá búfé og ekrum, og almenning frá fjölskyldum, atvinnu og skólum. Bæði Palestínumen og Ísraelsmenn líta svo á, að þeir hafi sigrað. Dómstóllinn segir múrinn út af fyrir sig löglegan, sem Ísraelsmenn eru sáttir við, og segja þar með að öryggi borgaranna sé ekki í hættu og að unnt verði að halda hryðjuverkamönnum úti. Hæstiréttur lætur hins vegar breyta staðsetningu múrsins, sem Palestínumenn líta á sem sigur. Öruggt má telja að dómurinn verði ekki til þess að lægja öldurnar vegna öryggismúrsins, heldur hefjist nú nýr kafli pólitískrar baráttu um réttmæti hans. Niðurstaða Hæstaréttar veitir fordæmisgildi, en tuttugu önnur mál af sama meiði eru fyrir ísraelskum dómstólum, og má vænta þess að niðurstaðna þeirra mála sé beðið með nokkurri eftirvæntingu. Að auki mun alþjóðadómstóllinn í Haag fjalla um múrinn eftir tíu daga, en Sameinuðu þjóðirnar leituðu afstöðu dómstólsins til lögmætis múrsins.
Erlent Fréttir Mest lesið Hafi loks slíðrað sverðin Innlent Útgrátin og brotin frammi fyrir öllum Innlent Starfsmenn séu eltir heim og lífi þeirra ógnað Innlent „Það er bara mjög sorglegt“ Innlent Operation Matrix: Fjölmörg burðardýr fluttu inn minnst 100 kíló af kókaíni Fréttir Stjórnendur Sorpu slegnir Innlent Lét maka vinna fyrir sig í skólanum Innlent Samþykkja sölu á hundruðum Patriot-flauga Erlent Kvikumagnið undir Svartsengi orðið mun meira en áður Innlent Umferðarslys í Bolungarvík Innlent Fleiri fréttir Stjórnlagadómstóll Póllands sakar stjórnvöld um valdarán Búa sig undir þriðju helgi mótmæla Samþykkja sölu á hundruðum Patriot-flauga Skoða hvort konum hafi verið smyglað í sumarbúðir kóngafólksins „Ég hafði ekki séð fyrir mér líf eftir þessa nótt“ „Þeir drápu okkur“: Einum síðasta frjálsa fjölmiðli Rússlands lokað „Þú ert ógeðslegur, komdu þér í form“ Hófu aftur árásir á olíuvinnslur eftir blóðbað Sveppamorðingi fær enga reynslulausn Flókið stjórnarmyndunarferli fram undan í Ísrael Sagður hafa átt í samskiptum við kínverskan njósnara Óvænt ákvörðun þingforsetans reitir vinstrimenn til reiði Tvö mannskæð slys vekja upp spurningar um öryggi Hafnar ásökunum um kosningasvindl Blóðbað á lestarpalli Krefjast enn að forsetinn verði dæmdur til dauða Þriggja daga þjóðarsorg hafin á Spáni Telja síðustu atkvæðin í Ísrael Stýrivextir óbreyttir og stutt í kosningar Skipverjar skemmtiferðaskips sitja fastir í Kambódíu Senda þúsund hermenn til Haítí eftir umsátur Kerfisvilla og mannleg mistök leitt til slyssins Fleiri gamalmenni en börn í Kína Sátu undir sögufyrirlestri Pútíns Báðir vilja mynda ríkisstjórn en ekki vinna með aröbum Minnst 64 sagðir látnir í árekstri hraðlesta á Spáni Opinberuðu lögbrot í kjúklingabúi með falinni myndavél Ted Bundy tengdur við 52 ára gamalt óleyst morð Meirihluti atkvæða talinn en enginn með þingmeirihluta Tekur við Bolsonaro opnum örmum Sjá meira