Vamm tónlistar og tísku 29. júní 2004 00:01 "
Okkur fannst vanta tímarit sem stílar bæði inn á stráka og stelpur," segir Hlédís Sigurðardóttir en fyrsta eintak tímaritsins Vamm, sem hún ritstýrir ásamt Halldóru Þorsteinsdóttur, kom út í síðustu viku. "Baldur Baldursson er framkvæmdastjóri og markaðsstjóri blaðsins en hann var áður að vinna hjá Undirtónum en á bakvið blaðið stendur líka hópur fólks sem hittist reglulega og kastar á milli sín hugmyndum. Við Halldóra höldum svo utan um efnisþáttinn og skrifum í blaðið ásamt fjölmörgum lausráðnum pennum." Hlédís segir nýja tímaritið fókusera á tónlist og tísku. "Við höfum fengið mjög sterk viðbrögð við blaðinu og fólk er greinilega þakklátt fyrir blað með tónlistarumfjöllun. Í Vamm eru líka fréttir af alls kyns erlendum og innlendum atburðum og við reynum að komast baksviðs til að ræða við listamenn. Við sendum blaðið heim til allra á aldrinum 18-25 ára og í því er einnig lesefni um samskipti kynjanna og ýmislegt sem höfðar til ungs fólks," segir Hlédís en blaðið Vamm kemur út annan hvern miðvikudag og er dreift ókeypis á kaffihús, í bíó og búðir borgarinnar. Forsíðuviðtal fyrsta Vamm blaðsins er við President Bongo eða Stephan Stephensen í Gusgus. "Hann er einn af trendsetterum Reykjavíkurborgar að okkar mati bæði í útliti og tónlist. Við ætlum að reyna að tala við fólk sem er ekki alltaf í fjölmiðlum og fólk sem er að gera nýja hluti en í rauninni er blaðið blanda af neðanjarðar- og markaðsvænu efni. Næsta forsíðuviðtal er til dæmis við Esther Taliu Casey en þar sem við viljum höfða til beggja kynja viljum við að sjálfsögðu hafa stráka og stelpur til skiptis á forsíðunni."
Mest lesið Myndaveisla: Þær voru fjallkonur um land allt í ár Lífið Íslensk áhöfn tekur þátt í endurvakningu Pan Am Lífið Fréttatía vikunnar: Fálkaorður, friðlýsing og húðflúr Lífið Þingkonur hlutu blessun Leós páfa Lífið Bregðast við bakslagi með Hinsegin Hrísey Lífið Færa Vestur-Íslendingum rausnarlega afmælisgjöf Lífið Kemst ekki inn í landið og Hafdís þarf að bíða Lífið „Þegar ég hitti þá fyrst pissaði ég á mig“ Lífið Í hennar anda að vera ein slakasta brúður sögunnar Lífið Matreiðslubókin hlaut eftirsótt alþjóðleg verðlaun Lífið Fleiri fréttir Íslensk áhöfn tekur þátt í endurvakningu Pan Am Þingkonur hlutu blessun Leós páfa Bregðast við bakslagi með Hinsegin Hrísey Fréttatía vikunnar: Fálkaorður, friðlýsing og húðflúr Myndaveisla: Þær voru fjallkonur um land allt í ár Færa Vestur-Íslendingum rausnarlega afmælisgjöf Kemst ekki inn í landið og Hafdís þarf að bíða Matreiðslubókin hlaut eftirsótt alþjóðleg verðlaun Aðstandendur Secret Solstice standa að nýrri hátíð sem hefst með almyrkvanum Einlæg skellibjalla sem stefnir á stóra sviðið Gerðu sumarfríið að heitasta ástarævintýri ársins Eftirrétturinn sem Espresso Martini-aðdáendur elska Katrín Odds og Þorgerður eignuðust sólardreng Ragga Gísla og Hipsumhaps á Innipúkanum sem færir sig um set Væb fara í tónleikaferð um Evrópu Unnur Birna og Pétur keyptu einbýlishús í Garðabæ „Þetta var eins og draumur sem ætlaði aldrei að taka enda“ „Þegar ég hitti þá fyrst pissaði ég á mig“ Í hennar anda að vera ein slakasta brúður sögunnar „Fullkomin viðbót“ hjá Selmu og Sölva Uppáhalds sumardrykkur Gerðar: „Ég fæ ekki nóg“ Felix kveður Eurovision með tárum Matti og Brynhildur selja slotið og stefna á sveitasæluna Bríet og Reykjavíkurdætur á Kvennavöku annað kvöld Styrktarforeldrið Hafdís er fundin Quarashi aftur á svið Mikil stemning á Íslandshátíð í Tívólí í Kaupmannahöfn Merktur LXS skvísunum fyrir lífstíð Kristín og Þorvar gáfu syninum nafn á þjóðhátíðardaginn Mos Def staðfestur og unnið að fleiri tónleikum í stað Lóu Sjá meira