Þjálfun NATO á írökskum hermönnum 28. júní 2004 00:01
NATO samþykkti formlega í dag að taka þátt í að endurþjálfa írakska herinn. Samþykktin gengur þó hvergi nærri jafn langt og Bandaríkjamenn höfðu vonað, þ.e. að NATO myndi senda fjölmennt herlið til Íraks til þess að taka þar þátt í friðargæslu. Því var algerlega hafnað. Bráðabirgðastjórn Íraks sendi þá NATO beiðni um að hjálpa til við að þjálfa her landsins og það var samþykkt í dag - en með semingi þó. Tyrkneskur sendifulltrúi sagði í morgun að samþykktin væri mjög óljóst orðuð, og aðildarþjóðirnar gætu túlkað hana að vild. Frakkar og Þjóðverjar hafa fallist á að leggja eitthvað af mörkum. Þeir vilja þó ekki senda eigin hermenn til Íraks í því skyni heldur þjálfa írakska hermenn einhvers staðar annars staðar. Þessar þjóðir vilja ekki snúa baki við Írökum en þær líta hins vegar á ástandið í Írak sem sjálfskaparvíti Bandaríkjamanna sem gerðu margvísleg grundvallarmistök í kjölfar innrásarinnar. Frá herfræðilegu sjónarmiði var innrásin sjálf mjög vel heppnuð en öðru máli gegndi um eftirleikinn. Innrásarliðið var of fámennt til þess að halda uppi lögum og reglu auk þess sem Bandaríkjamenn gerðu þau mistök að leysa írakska herinn upp og senda hermennina heim til sín.
Erlent Fréttir Stj.mál Mest lesið Banaslys í Skorradalsvatni Innlent Sendi ekki reikning og fær því ekki greitt Innlent Ofurölvi reyndi að opna bíla í akstri Innlent Safna í sérstakt sjóherlið á Norðurslóðum Erlent „Bjóða fram“ Biðlistann í Reykjavík Innlent Segist ekkert hafa fengið greitt: „Pólitískur hráskinnaleikur“ Innlent Vasaþjófnaður aukist að undanförnu Innlent Langhæsti styrkurinn fer til Eyja Innlent Andar köldu milli Viðreisnar- og Miðflokksmanna Innlent Ákærður fyrir að hafa stungið tvo gyðinga Erlent Fleiri fréttir Ákærður fyrir að hafa stungið tvo gyðinga Safna í sérstakt sjóherlið á Norðurslóðum Vilja nú alþjóðlegt samstarf um Hormússund Ekkert fararsnið á Rússum í Malí Mamdani vill að Bretar skili Koh-i-Noor Bútaði líkið í sundur í uppblásinni sundlaug Trump segist vera að íhuga að draga saman seglin í Þýskalandi Áttu langt símtal Repúblikanar vinna orrustu í kjördæmastríðinu Byltingarvörðurinn herðir tökin á stjórnartaumunum Einn handtekinn grunaður um stunguárás gegn gyðingum Íslenskir jöklar töpuðu mestu í Evrópu Þingmenn klöppuðu óspart fyrir konunginum Afhroð Rússa í Malí: Vígamenn segjast stjórna stórum hluta landsins Ásýnd Trump mun prýða viðhafnarútgáfu vegabréfsins Fyrrverandi forstjóri FBI ákærður fyrir líflátshótun í garð Trump Einn skæðasti glæpamaður Mexíkó gómaður í fráveituröri Játaði að hafa skipulagt hryðjuverk á tónleikum Swift „Mamma mín var skotin í Karli, trúið þið því?“ Repúblikanar fylgja Trump: Árásin sögð sýna nauðsyn þess að klára veislusalinn Aftökum fjölgaði verulega í kórónuveirufaraldrinum Rússnesk lúxussnekkja fór um Hormús-sund án vandræða Konungshjónin komin vestur um haf og Karl ávarpar þingið í dag Merz segir Írani spila með Bandaríkjastjórn Ákærður fyrir banatilræði við Trump Vara við aukinni ógn vegna sjórána við strendur Sómalíu „Við búum í brjáluðum heimi“ Sendi fjölskyldunni lista af skotmörkum í forgangsröð Talinn ætla að ráðast á Trump og fleiri háttsetta Árásin til marks um aukna hörku vestanhafs Sjá meira