Sport

100% nýting hjá Þór/KA/KS

Eyjastúlkur riðu ekki feitum hesti frá Akureyri þegar þær mættu Þór/KA/KS í gær.  Heimastúlkur komust yfir í lok fyrri hálfleiks með marki Laufeyjar Björnsdóttur og héldu því þar til 93 mínútur voru komnar á vallarklukkuna en þá jafnaði Erna Dögg Sigurjónsdóttir eftir góða aukaspyrnu frá Olgu Færseth við vítateigslínuna. Búast mátti við léttum leik hjá ÍBV en svo virðist sem Eyjastúlkur hafi verið búnar að vinna leikinn fyrirfram því lítið gekk upp hjá þeim í leiknum. Þær urðu svo fyrir miklu áfalli á 31. mínútu þegar þær misstu Margréti Láru Viðarsdóttur út af meidda eftir tæklingu frá Margréti G. Vigfúsdóttur.  Eyjastúlkur vildu fá rautt spjald fyrir brotið, sem virtist frá áhorfendastúkunni vera mjög gróft brot aftan frá auk þess sem Margrét Lára var sloppin inn fyrir.  Vörn Þór/KA/KS átti mjög góðan leik og á hrós skilið fyrir leikinn.  Eyjastúlkur náðu ekki að nýta þau færi sem þær fengu og sáu menn ekki þann bolta sem þær eru vanar að spila. „Þetta gekk vel hjá okkur og við spiluðum mjög vel í leiknum.  Við erum með ungt lið og liðsandinn er góður.  Við erum að slípa okkur saman og þetta er allt að koma,“ sagði markvörðurinn og hetjan Sandra Sigurðardóttir. Það sem skipti máli:Þór/KA/KS–ÍBV 1–1 1–0 Laufey Björnsdóttir 45. 1–1 Erna Dögg Sigurjónsdóttir 90. Best á vellinum Sandra Sigurðardóttir KR Tölfræðin Skot (á mark) 1–20 (1–10) Horn 1–13 Aukaspyrnur fengnar 6–11 Rangstöður 1–8 Gul spjöld (rauð) 1–1 FRÁBÆRAR Sandra Sigurðardóttir KR MJÖG GÓÐAR Áslaug Baldvinssdóttir Þór/KA/KS Þóra Pétursdóttir Þór/KA/KA Margrét G. Vigfúsdóttir Þór/KA/KS Góðar Laufey Björnsdóttir Þór/KA/KS María Guðjónsdóttir ÍBV Michelle Barr ÍBV



Fleiri fréttir

Sjá meira


×