WHO fundar í Reykjavík 7. desember 2004 00:01
Tveggja daga aukafundur framkvæmdastjórnar Alþjóðaheilbrigðismálastofnunarinnar, WHO, hefst í Reykjavík nú á fimmtudaginn. Þetta er í fyrsta skipti sem framkvæmdastjórn stofnunarinnar heldur fund hér á landi en Davíð Á. Gunnarsson, ráðuneytisstjóri í heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytinu, var kjörinn formaður framkvæmdastjórnarinnar fyrr á þessu ári. Davíð er fyrsti Íslendingurinn sem gegnir þessu starfi og fyrsti Norðurlandabúinn sem kosinn er formaður framkvæmdastjórnarinnar í tæp fjörutíu ár. Meðal þeirra sem sækja fundinn í Reykjavík er æðsti yfirmaður Alþjóðaheilbrigðismálastofnunarinnar, dr. Lee Jong-wook, en hann tók við starfi forstjóra stofnunarinnar á síðasta ári. Fundurinn er lokaður öðrum en framkvæmdastjórn og starfsliði stofnunarinnar en á honum verður fjallað um áhrif ólíkra þátta á lýðheilsu í heiminum á komandi árum. Um 70 manns koma hingað til lands í tengslum við fundinn en auk 32ja fulltrúa í framkvæmdastjórn Alþjóðaheilbrigðismálastofnunarinnar eru það forstöðumenn svæðaskrifstofa, starfslið aðalskrifstofunnar í Genf auk fyrirlesara og túlka. Á meðan framkvæmdastjórnin dvelur hér á landi mun hún hitta Ólaf Ragnar Grímsson, forseta Íslands, og Halldór Ásgrímsson forsætisráðherra. Þá mun Jón Kristjánsson heilbrigðisráðherra ávarpa framkvæmdastjórnina í upphafi fundarins á fimmtudag og í lok fundarins á föstudag verður flutt ávarp utanríkisráðherra, Davíðs Oddssonar. Alþjóðaheilbrigðismálastofnunin er ein stærsta undirstofnun Sameinuðu þjóðanna en alls eiga 192 ríki aðild að stofnuninni. Markmið stofnunarinnar er að stuðla að bættu heilbrigði þjóða heims. Meðal annars er stofnuninni ætlað að hafa eftirlit með hættulegum smitsjúkdómum á borð við bráðalungnabólgu og fuglaflensu og að koma í veg fyrir útbreiðslu þeirra. Forstjóri Alþjóðaheilbrigðismálastofnunarinnar, dr. Lee Jong-wook, er læknir að mennt frá Seoul í Kóreu. Hann tók við starfi forstjóra stofnunarinnar af Gro Harlem Brundtland í maí á síðasta ári eftir að hafa starfað hjá stofnuninni um 20 ára skeið
Fréttir Innlent Mest lesið Nærri því áttatíu borgarar liggja í valnum Erlent Ætla að streyma aftöku í beinni Erlent „Ég fagna því að þessu leikriti sé lokið“ Innlent Margrét Löf í sextán ára fangelsi en heldur föðurarfinum Innlent Vonar að Ísraelar hafni Netanjahú Erlent Draumur reiðhjólaviðgerðarmannsins rættist Innlent Máttu tæma lónið Innlent Kjaravaktin: Samkomulag í höfn á elleftu stundu Innlent Veitingamaður sektaður um tvö hundruð milljónir Innlent Þetta eru aðgerðirnar sem fara á í Innlent Fleiri fréttir Vilja auka viðveru NATO í norðri Máttu tæma lónið „Varpar skugga á skólasamfélagið í heild“ „Ég fagna því að þessu leikriti sé lokið“ Þetta eru aðgerðirnar sem fara á í Ók lyfjaður á gangandi vegfaranda Bein útsending: Forsætisráðherra boðar til blaðamannafundar Dagskrá aflýst í dag og óljóst hvernig ræðukeppnin fer fram Loftslagstilraun hefst í Hvalfirði á næstu dögum Margrét Löf í sextán ára fangelsi en heldur föðurarfinum Veitingamaður sektaður um tvö hundruð milljónir Ekki rétt sem Halla segir Hefja formlegar viðræður um myndun nýs meirihluta Íslensk nóbelsverðlaun og erfið staða framhaldsskólanna Vill fækka borgarfulltrúum um átta Lögreglan leitar upplýsinga um rispaða bíla Fjármálaráðherra flautaður niður af sviði Kristrún reyni að hafa milligöngu í deilunni Ekki eigi að refsa fólki fyrir að hafa stutt á milli barna Nemendur í Reykjavík koma best út úr PISA Kristrún og Þorgerður sækja ekki Hringborð norðurslóða Kjaravaktin: Samkomulag í höfn á elleftu stundu Draumur reiðhjólaviðgerðarmannsins rættist Áreitti tíu ára stúlku ítrekað í fjóra daga Kveikja og slökkva á ljósastaurum vegna bilunar Bein útsending: Fjármálaráðstefna sveitarfélaga 2026 Hafi ekki „fært sig eina litla tommu“ Ráðherra lét henda þeim út þegar rætt var um Heiðarfjall Kjaftshögg, blys og hrákur á VÍ - MR Samþykktu að slíta kjarasamningum Sjá meira