Ópíumræktun í blóma 19. nóvember 2004 00:01
Ræktun ópíumvalmúa blómstrar sem aldrei fyrr í Afganistan og hefur aukist um 64 prósent frá því í fyrra. Þetta segir í nýrri skýrslu Sameinuðu þjóðanna. Þar kemur jafnframt fram að ræktun ópíumvalmúa er vaxtarbroddurinn í afgönsku efnahagslífi. Talið er að 86 prósent af öllu ópíumi sem selt er í heiminum sé ræktað í Afganistan og að þessi landbúnaður jafngildi u.þ.b. 60 prósentum af löglegri landsframleiðslu. Stærstum hluta framleiðslunnar er breytt í heróín og óttast Sameinuðu þjóðirnar að landið geti orðið eiturlyfjaríki þar sem vellauðugir eiturlyfjabarónar ráði lögum og lofum. Samtökin skora því á hersveitir Bandaríkjamanna og NATO í landinu að grípa til hernaðaraðgerða gegn eiturlyfjasmyglhringjum, rétt eins og skæruliðum í landinu. Erfitt er hins vegar um vik þar sem ræktunin nú er stunduð í öllum landshlutum og er lífsviðurværi fjölda landsmanna sem ekki hafa að öðrum störfum að hverfa. Talið er að tíundi hver Afgani, eða 3,2 milljónir manna, vinni við valmúarækt í öllum 32 héruðum landsins og að ræktunin sé stunduð á 130 þúsund hektörum samanlagt. Ógnarstjórn talíbana, sem var steypt af stóli árið 2001, hafði nær alveg upprætt valmúaræktun í landinu þannig að hún hefur blossað upp aftur með ótrúlegum hraða.
Erlent Fréttir Mest lesið Verjanda Helga Bjarts nóg boðið Innlent Afleiðingarnar af systkinabroti séu verri en brotið sjálft Innlent Þórdís Kolbrún skipuð sendiherra í London Innlent Launahækkun Höllu illskiljanleg Innlent Faðirinn skaut sjö börn sín til bana og eitt til viðbótar Erlent Föst í Herjólfi í korter eftir langa ferð frá Eyjum Innlent Stór skálfti í Japan og flóðbylgjuviðvörun gefin út Erlent Allt tiltækt slökkvilið kallað út vegna reyks Innlent Vinstrið eygir þrjá borgarfulltrúa og sjálfstæðismenn þann sjöunda Innlent Nánast búin með stafrófið Innlent Fleiri fréttir Utankjörfundur fer vel af stað og fylgið að setjast Stór skálfti í Japan og flóðbylgjuviðvörun gefin út Bandamaður Rússa vann stórsigur í Búlgaríu Faðirinn skaut sjö börn sín til bana og eitt til viðbótar Starmer á leið á átakafund í þinginu Stjórnvöld í Tehran sögð orðin afhuga samningaviðræðum Barist á hafi úti Átta börn látin eftir skotárás „Það er kominn tími til að binda endi á drápsvél Íran“ Klukkan tifar og enn langt í land Að minnsta kosti sex látnir eftir gíslatöku í matvöruverslun Gámaskip Samskipa bilaði við Færeyjar Trump segir Írani krúttlega og þeir geti ekki kúgað Bandaríkin Fimm látnir eftir skotárás í Kænugarði Skotið þrátt fyrir heimild frá hernum: Áhafnir tilkynna árásir á Hormússundi Funduðu með forstjóranum þrátt fyrir lögsókn Hormússundi lokað á ný Bretar og Frakkar ætla að leiða aðgerðir við Hormússund Hormússundið opið á ný Vopnaðir ræningjar héldu 25 í gíslingu í banka á Ítalíu D4vd handtekinn vegna gruns um að hafa banað táningsstúlku Mandelson veitt öryggisheimild þrátt fyrir að hafa fallið á bakgrunnsathugun Brothætt vopnahlé í Líbanon hefur tekið gildi Boðar tíu daga vopnahlé milli Ísraels og Líbanon Páfinn skaut föstum skotum að harðstjórum Íranir geti valið auðveldu leiðina eða þá erfiðu Stjórnvöld í Frakklandi vilja fá ríkisborgara lausan Viðræður sagðar standa yfir en ekkert fast í hendi Að minnsta kosti fimmtán létust í árásum Rússa á Úkraínu Suður-Grænland fær nýjan alþjóðaflugvöll Sjá meira