Bólusetning við malaríusmiti 15. október 2004 00:01
Vísindamenn telja sig í fyrsta sinn geta bjargað börnum frá malaríusmiti eða dauða með bólusetningu. Þótt enn sé langt í að menn telji baráttunni gegn þessum skæða sjúkdómi lokið, segja sérfræðingar Alþjóðaheilbrigðismálastofnunarinnar skrefið stórt. Meira en milljón manna láta lífið af völdum malaríu ár hvert, þar af um sjö hundruð þúsund börn. Bóluefnið sem hér er talið valda straumhvörfum hefur verið prófað á þúsundum barna í Mósambík. Ekki er hægt að tala um fullkominn árangur því rannsóknir sýna að einungis tókst að koma í veg fyrir að börnin smituðust í þrjátíu prósent tilfella. Hins vegar er talið að bóluefnið hafi valdið því að sjúkdómurinn varð ekki lífshættulegur hjá 58% þeirra sem tóku þátt í tilraununum. Besti árangur þessa bóluefnis er hjá börnum þar sem efnið er talið hafa langvarandi áhrif. Í tilraunum með sama bóluefni á fullorðnum í Ghana fyrir nokkrum árum kom í ljós að vörn gegn smiti fékkst í um 35% tilfella en að bóluefnið hætti að virka eftir um það bil tvo mánuði. Malaría er borin á milli manna með moskítóflugum, og finnst sjúkdómurinn í níutíu löndum. Sífellt eru að finnast afbrigði af sjúkdómnum sem eru ónæm fyrir þekktum lyfjum. Bill Gates og Melinda eiginkona hans styrkja í gegnum stofnun í þeirra nafni tilraunir fimmtán hópa vísindamanna á bóluefnum. Fjallað verður ítarlega um niðurstöður þeirrar rannsóknar sem hér um ræðir í breska læknatímaritinu Lancet sem kemur út á morgun. Sérfræðingar í smitsjúkdómum fagna margir hverjir tíðindunum en vara líka við of mikilli bjartsýni. Enn sé mikilvægt að fólk forðist moskítóbit og ekki megi gefast upp í leitinni að fullnaðarsigri.
Erlent Fréttir Mest lesið Reiði yfir pítsupartíi: Auglýst á fundi án samráðs Innlent Deiluefni jafnað við jörðu í Kópavogi Innlent Fjórir í lífshættu eftir lestarslys í Danmörku Erlent Fresta leit að ferðamanninum Innlent Þeirri gulu misjafnt skipt á fyrsta degi sumars Veður Ný nefnd hefur náðað þrjá Innlent Tóku tvö skip og réðust á það þriðja Erlent Vilja ræða um varnargarða en byggja meira á hraunum Innlent Hækka launin um 3,5 prósent í stað 9,7 prósenta Innlent Vélmennið Ace sigrar atvinnumenn í borðtennis Erlent Fleiri fréttir Fjórir í lífshættu eftir lestarslys í Danmörku Vélmennið Ace sigrar atvinnumenn í borðtennis Tóku tvö skip og réðust á það þriðja Óvænt jafntefli í kjördæmastríðinu Sækja mannréttindasamtök til saka vegna njósna um öfgamenn Vilja senda afganska bandamenn og fjölskyldur til Kongó Hætta að styrkja Feneyjartvíæringinn vegna þátttöku Rússa Vilja tæpar tvö hundruð billjónir til varnarmála Allir Bretar fæddir eftir 2008 í lífstíðarbann frá tóbaki Framlengir vopnahléið og herkvína Þriðji þingmaðurinn segir af sér á viku Viðræður enn á ís vegna „óásættanlegrar“ hegðunar Ein af hinstu óskum Frans páfa enn óuppfyllt „Jæja, herra Heuermann. Mér skilst að þú hyggist játa fyrir mér þessi morð?“ Starmer vissi ekkert en þrýstingurinn mikill að gefa Mandelson grænt ljós Skaut ferðamann til bana við mexíkóskan pýramída Friðurinn úti á morgun en ekkert ákveðið um viðræður Óttast enn stærri skjálfta í Japan á næstu dögum Vilja festa símabannið í lög Vill þrjátíu milljarða vegna fyllerísfréttar D4vid ákærður fyrir að myrða táningsstúlku Utankjörfundur fer vel af stað og fylgið að setjast Stór skálfti í Japan og flóðbylgjuviðvörun gefin út Bandamaður Rússa vann stórsigur í Búlgaríu Faðirinn skaut sjö börn sín til bana og eitt til viðbótar Starmer á leið á átakafund í þinginu Stjórnvöld í Tehran sögð orðin afhuga samningaviðræðum Barist á hafi úti Átta börn látin eftir skotárás „Það er kominn tími til að binda endi á drápsvél Íran“ Sjá meira