Innlent

Erilsamur lokadagur

Þórólfur Árnason, fráfarandi borgarstjóri, segist sáttari nú en nokkru sinni áður við þá ákvörðun sína að hætta sem borgarstjóri. Síðasti dagur hans í stóli borgarstjóra var í gær. Hans síðasta embættisverk var undirritun samnings um stofnun Sjóminjasafns Reykjavíkur. Þórólfur segir að gærdagurinn hafi verið erilsamur. Hann hafi byrjað á morgunverðarsamkomu í ráðhúsinu þar sem hann gladdist með starfsfólki borgarinnar. Síðan hafi tekið við undirbúningsfundir fyrir borgarráð og hann segist hafa náð að afhenda þrettán nýráðnum embættismönnum borgarinnar ráðningarbréf. Deginum hafi síðan lokið með kveðjuboði með borgarfulltrúum og embættismönnum. Framtíð Þórólfs er óskrifað blað að hans sögn. "Ég ætla að hvíla mig vel og kanna svo hvað ég tek mér fyrir hendur." Hann segir hlutina alltaf hafa komið upp frekar skyndilega hjá sér og það verði engin breyting á því núna. "Ég hef ekki hugsað lengra en að ljúka deginum með sæmd og er ekki einu sinni farinn að hugsa um morgundaginn."



Fleiri fréttir

Sjá meira


×