Friður í nánd? 13. nóvember 2004 00:01
Friðarumleitanir gætu hafist á ný innan skamms fyrir botni Miðjarðarhafs. Til stendur að kjósa nýjan forseta Palestínu fyrir 9. janúar næstkomandi. Pílagrímar flykkjast nú að gröf Jassirs Arafats, sem jarðsettur var í Ramallah í gær. Þeir leggja ólífugreinar, blóm og palestínska fána á gröfina. Ahmed Kúrí, forsætisráðherra Palestínu, hét því í morgun að forsetakosningar yrðu haldnar í Palestínu innan sextíu daga, eins og lög mæla fyrir um. Engar kosningar hafa verið haldnar frá því að Jassir Arafat vann yfirburðasigur í kosnungunum árið 1996, en nú stendur til að velja nýja forystusveit Palestínumanna. Mahmoud Abbas, fyrrverandi forsætisráðherra, þykir líklegur til að verða framarlega í flokki, þó að hann njóti lítils, almenns stuðnings. Hann hefur meðal annars gagnrýnt ofbeldisverk og var í gær tilnefndur formaður frelsishers Palestínu, PLO. Annar frambjóðandi hefur verið nefndur til sögunnar: Marwan Barghouti. Breska dagblaðið Guardian hefur fyrir því heimildir, að Barghouti, sem situr í fangelsi í Ísrael, íhugi framboð. Hann er vinsæll og herskár leiðtogi. Yfirlýsing George Bush þess efnis, að hann sjái fyrir sér stofnun sjálfstæðs ríkis Palestínumanna á næsta kjörtímabili sínu, hefur vakið athygli. Talsmenn Palestínumanna segjast þó ekki telja nauðsynlegt að bíða í heil fjögur ár með stofnun ríkisins. Friðarvegvísirinn svokallaði sé enn til staðar og rétt sé að halda sig við hann. Abdullah Jórdaníukonungur tók í sama streng í morgun og hvatti Bandaríkjamenn til að leggja áherslu á friðarvegvísinn.
Erlent Fréttir Mest lesið Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Erlent Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Erlent „Við eigum bara að þegja og sætta okkur við þetta“ Innlent Ætla að rífa umdeilda kaffiskúrinn við Leifsstöð Innlent Sóttist ekki eftir þingflokksformennsku Innlent Hafi ekki fundað formlega án Harðar heldur snætt hádegismat Innlent Lögregla kölluð til vegna drengjanna í Goðafossi Innlent Fundu 31 byssu, Hitler-brjóstmynd og danskan fána Erlent „Vonandi verða þau ekki börnin sem hía á ráðherrann“ Innlent Segir Viðreisn í krísu og útilokar ekki að hætta stuðningi Innlent Fleiri fréttir Biskupar sjá eftir bænastund með Trump Fundu 31 byssu, Hitler-brjóstmynd og danskan fána Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Stór hluti Oxford Street orðinn göngugata Sagðir vilja fá Orbán til að stýra Sameinuðu þjóðunum Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Tókst ekki moða neitt úr miðjunni Fundu auðgað úran í dánarbúi Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Minkarækt Dana mun heyra sögunni til Kim fór til Kína Sjá meira