Þórólfur í samráði um verð til almennings 4. nóvember 2004 00:01
Þórólfur Árnason borgarstjóri hefur sagt í fjölmiðlum að hann hafi ekki komið nálægt ákvörðun um verðsamráð olíufélaganna og að hann hafi ekki vitað um náið samstarf forstjóra olíufélaganna þegar hann starfaði sem markaðsstjóri Essó frá árinu 1993 til 1998. Þórólfur er 127 sinnum nefndur á nafn í niðurstöðu Samkeppnisráðs um samráð olíufélaganna. Í nokkrum tilvika virðist hann hafa komið mjög við sögu í samráði félaganna um sölu á bensíni til almennings. Samráð um bensínverðÍ minnispunktum Þórólfs eftir samráðsfund olíufélaganna í ágúst 1994 segir meðal annars "Bensínhækkun allt að 3kr". Í niðurstöðu Samkeppnisráðs segir að samkvæmt þessu hafi verið rætt um eða ákveðið að hækka verð á bensíni um allt að þrjár krónur á lítra. Í handskrifuðu minnisblaði frá Þórólfi, dagsettu 3. janúar 1995, sem lýsir fundi framkvæmdastjóra markaðssviða olíufélaganna þriggja segir "Ath. Breyta 92 okt "upp" um ca. 1. kr. 15. jan." Þetta er túlkað af Samkeppnisráði á þann hátt að á fundinum sem Þórólfur sat hafi verið ákveðið að hækka verð á 92 oktana bensíni um eina krónu. Þann 18. janúar 1996 hittust Þórólfur og starfsbræður hans hjá Olís og Skeljungi og ræddu um verð á bensíni og ákváðu að lækka verð á 95 oktana bensíni um 1 til 1,20 krónur á lítra. Þann 6. janúar 1997 sendi framkvæmdastjóri markaðssviðs Olís tölvupóst til Þórólfs þar sem stungið var upp á fundi til að ræða m.a. "5 kr. afslátturinn í gasolíu og kortaafsláttur til stórkúnna". Jafnframt átti að ræða verð og framlegð af sölu smurolíu og aðgerðir til að minnka samkeppni í sölu smurolíu með því að koma keppinautnum Bílanausti út af smurolíumarkaðnum. Þessum tölvupósti svaraði Þórólfur og ákveðið var að halda fund 13. janúar 1997. Fram kemur í niðurstöðu Samkeppnisráðs að Þórólfur hafi staðfest að honum hafi verið kunnugt um að forstjórar olíufélaganna hefðu rætt sín á milli um að afkoma félaganna væri slæm og að við því yrði að bregðast með því að vinna að hækkaðri álagningu. Þann 6. mars 1997 sendi Þórólfur tölvupóst til vörustjórans og spurði hvort "búið sé að ná samstöðu um hækkun á gasverðum". Hann fékk svar um að nýtt verð hafi tekið gildi "samræmd milli olíufélaganna". Samráð vegna útboðaÞórólfur virðist líka hafa tekið virkan þátt í samráði olíufélaganna í verðtilboðum til stærri viðskiptavina. Í minnisblaði til Geirs Magnússonar þann 11. september 1994 segir Þórólfur að E.B. hafi verið sammála sér þegar hann nefndi að að nú þyrftu félögin öll að vera mjög vakandi í því að láta ekki egna sig saman í verðstríð í útboðum. Í tölvupósti sem Þórólfur sendi til Geirs Magnússonar, fyrrverandi forstjóra Essó, í janúar 1997 vegna útboðs Ríkiskaupa á smurþjónustu gerði hann grein fyrir þeirri ákvörðun að gera ekki tilboð vegna útboðs og gefur tölvupósturinn til kynna að olíufélögin hafi rætt útboðið sín á milli og að Essó hafi verið fullvissað um að Skeljungur og Olís myndu ekki bjóða. Í tölvupóstinum segir meðal annars: "Ákveðið að senda ekki neitt inn. ... Miðað við njósnir smurstöðvanna og mín, þá tel ég öruggt að enginn sendi inn tilboð." Í niðurstöðu Samkeppnisráðs segir að þann 3. janúar hafi Þórólfur talið öruggt að hin félögin myndu ekki senda inn tilboð. Í því fælist ekki spá hans heldur vissa um aðgerðir, meðal annars Olís og Skeljungs. Samráð um svæðaskiptinguÁ árinu 1995 fóru fram umfangsmiklar viðræður milli olíufélaganna um hugsanlega frekari markaðsskiptingu í rekstri bensínstöðva á landsbyggðinni. Minnisblað framkvæmdastjóra markaðssviðs smásölu hjá Olís lýsir í átta liðum því sem um var rætt á fundinum. Undir öðrum lið er bókað: "Þórólfur tók vel í hugmyndina að Búðardalur og Þórshöfn yrðu lögð niður gegn því að Esso færi frá Neskaupstað og Reyðarfirði." Þann 28. ágúst gerði Þórólfur forstjóra félagsins grein fyrir stöðu málsins og lagði fram nýjar tillögur. Þar var meðal annars lagt til að Essó keypti skála Olís og Shell á Búðardal og þau hættu rekstri. Sama átti að gilda um Mývatn þar sem Olís og Shell áttu að hætta rekstri til að Essó sæti eitt að markaðnum.
Fréttir Innlent Samráð olíufélaga Stj.mál Mest lesið Telur Thomas Møller hafa fengið tækifæri til að eyða sönnunargögnum Innlent Sauð upp úr þegar Ragnar kallaði orð Ásgeirs óábyrg Innlent Fór í skólann og búið að farga dekkjastæðunni þegar heim var komið Innlent Kennarar boða tíðindi Innlent Tugmilljóna gjaldþrot félags fíkniefnasmyglara Innlent Hringdi inn þegar konan reyndist gift öðrum manni Innlent SA á leið í árshátíðarferð á meðan klukkan tifar í kjaradeilu Innlent Nóg að spyrja þá sem þurfa að borga launin Innlent Leigubremsan „augljóslega mjög heimskuleg“ Innlent Framlengja samninga út næsta ár Innlent Fleiri fréttir „Vonbrigði að Icelandair fljúgi ekki lengur til Kulusuk“ Ljósastaurar bilaðir víða í Reykjavík Ræst út vegna logandi rafhlaupahjóls Serbar á Íslandi mótmæla: „Það er ósanngjarnt að taka af fólki réttinn til að kjósa“ Hringdi inn þegar konan reyndist gift öðrum manni Tugmilljóna gjaldþrot félags fíkniefnasmyglara „Við erum að gefa boltann upp“ Þétta samstarfið í útnorðri „Við erum tilbúin að skoða lengingu skólaársins“ Bein útsending: Blaðamannafundur Kristrúnar, Beinis og Jens Frederik SA á leið í árshátíðarferð á meðan klukkan tifar í kjaradeilu Sver af sér ábyrgð á rannsókn um karlmennsku Bílvelta á Vesturlandsvegi Sauð upp úr þegar Ragnar kallaði orð Ásgeirs óábyrg Verða að viðurkenna barn getið með staðgöngumæðrun Segir „gerviþak“ breyta litlu um „ryksugu“ Rúv Viðræður VR við SA á leið inn „blindgötu“ Tímarit eigi hvergi stað og fái enga styrki Segir fjölmiðlanefnd stjórnlausa og sektaóða Geti reynst erfitt að standa við verðlagsloforðin Hvetur flokka til að afla leyfa fyrir tónlist í pólitískum áróðri Rubio hafi staðfest varnarskuldbindingar gagnvart Íslandi Breyti myndböndum af börnum að borða og dansa í barnaníðsefni Kennarar boða tíðindi Nóg að spyrja þá sem þurfa að borga launin Sex atvinnulausir um hvert laust starf Bein útsending: Áskoranir á norðurslóðum Glapræði að hafna væntanlegri launahækkun Kjarabarátta kennara bitni á námi barnanna Sólveig Anna segir glapræði að segja upp samningum Sjá meira