Skoðun

Óhefðbundnar lækningar

Nýlega héldu Stephen og Lynda Cane námskeið hérlendis þar sem þau sýndu hvernig við getum orðið meðvitaðri um okkar eigin og utanaðkomandi orku. Landlæknir hefur af þessu tilefni gefið yfirlýsingar sem verða að teljast hæpnar svo sem að um sé að ræða ,,stórhættulegt efni", ,,fjárplógsstarfsemi" og sagt að ósannað sé að þessi fræði eigi við rök að styrðjast. Til viðbótar yfirlýsingum landlæknis hafa birst fréttir af sundruðum fjölskyldum sem eigi að vera afleiðing þátttöku einhvers fjölskyldumeðlims í áðurnefndu námskeiði. Ég sótti svona námskeið og hafði af því bæði gagn og gaman. Uppistaða námskeiðsins er kennsla í notkun pendúls sem auðveldar manni að meta gildi næringar og bætiefna og til að finna hvernig orkan í umhverfinu verkar á mann. Mér finnst það aðfinnsluverð  forræðishyggja af landlækni að ætla að segja okkur, sem sóttum námskeiðið, að það sé dýrt og tilgangur þess sé fjárplógsstarfsemi. Ég leyfi mér að efast um að fjölskyldur hafi sundrast vegna þessa námskeiðs - orsakir þeirrar sundrungar tel ég að hljóti að vera annars eðlis og er þeirrar skoðunar að frekar mætti segja að hafi fjölskylda sundrast hafi það gerst þrátt fyrir þetta námskeið en ekki vegna þess. Um sannanir fyrir virkni óhefðbundinna lækninga svo sem heilunar, grasalækninga, homeopati, nálarstungna, hnykkjunar, nudds ofl. bendi ég á að sannanir fyrir því að andi og orka lækni eru mýmargar og mér er til efs að reyndir læknar væru tilbúnir til að bera brigður á að svo sé. Í þessu sambandi mætti nefna að við höfum trúarbrögð og þjóðkirkju en mér vitanlega hefur ekki verið sannað “vísindalega” að Guð sé til.   Að segja að námskeiðið sé hættulegt lýsir ef til vill meiri þröngsýni en að segja að það hafi verið dýrt (20 þús. kr.) Ég hef fyrir satt að þúsundir franskra lækna noti pendúl við vinnu sína og reikna með að landlækni sé kunnugt um það. Það má leiða hugann að því að nýmóðins heilsukerfi okkar og annarra vestrænna þjóða snýst, að margra áliti, fremur um að skera, deyfa og hjúkra og hjálpa fólki að lifa með sínum sjúkdómi en lítið um að lækna . Og talandi um fjárplógsstarfsemi - hvert skyldi álit Landlæknis vera á því að læknar bjóða krabbameinssjúklingum upp á lyf sem kosta hundruð þúsunda króna skammturinn? Væri ekki ráð að beina hefðbundnum lækningum í meiri mæli að því að leita orsaka sjúkdóma og koma í veg fyrir þá - takast á við orsakir fremur en einungis afleiðingar?  Höfundur er reikimeistari/heilari og sendibílsstjóri.



Skoðun

Sjá meira


×