Ætlaði að farga vélinni 29. september 2004 00:01
Maðurinn sem réðst á áhöfn og farþega norskrar flugvélar með exi í morgun ætlaði að farga vélinni. Hann æpti upp að hann ætlaði sér að keyra vélina til jarðar og eftir að hann hafði gert báða flugmennina óvirka lagðist hann á stjórnborðið þannig að vélin stefndi nánast lóðrétt til jarðar. Þrír voru fluttir á sjúkrahús með höfuðáverka eftir atganginn en þeir eru ekki alvarlega slasaðir. Einnig er komið í ljós að maðurinn notaði ekki exi vélarinnar eins og fyrst var haldið heldur tók hann einfaldlega með sér exi um borð. Auk þess hafði hann hníf meðferðis. Það var í aðfluginu að flugvellinum í Bodö að maðurinn réðist inn í flugstjórnarklefann og sló flugstjórann þegar í stað í hnakkann. Við það rotaðist kapteinninn og strax á eftir gerði hann atlögu að aðstoðarflugmanninum. Þegar vélin átti aðeins um 100 fet til jarðar, u.þ.b. 35 metra, náði flugstjórinn, sem rankaði við sér úr rotinu, að forða stórslysi með því að sveigja vélina á rétta stefnu, auk þess sem hann slóst við árásarmanninn. Árásarmaðurinn er flóttamaður frá Alsír sem sótt hefur um hæli í Noregi en verið synjað. Myndin er af vélinni sem maðurinn reyndi að farga í morgun.
Erlent Fréttir Mest lesið Ráðin til þess að fremja ofbeldisbrot á Íslandi Innlent Hildi og Inga Þór sagt upp Innlent Rannsaka komu mögulegra launmorðingja hingað til lands Innlent Minnst 64 sagðir látnir í árekstri hraðlesta á Spáni Erlent Afkomendur síðasta böðuls á Íslandi búa enn á Illugastöðum Innlent Kattahland og skítur á gólfum og upp eftir veggjum Innlent Telur starfsmenn hæfa til að meta stjórnsýslu yfirmanns síns Innlent Saslauskas og Sodys stálu 100 milljónum: Gucci-taska, dýrar dúnúlpur og 68 vitorðsmenn Innlent Kveiksþætti kippt út tímabundið Innlent Google gerir athugasemdir við frumvarp Ingu Innlent Fleiri fréttir Skipverjar skemmtiferðaskips sitja fastir í Kambódíu Senda þúsund hermenn til Haítí eftir umsátur Kerfisvilla og mannleg mistök leitt til slyssins Fleiri gamalmenni en börn í Kína Sátu undir sögufyrirlestri Pútíns Báðir vilja mynda ríkisstjórn en ekki vinna með aröbum Minnst 64 sagðir látnir í árekstri hraðlesta á Spáni Opinberuðu lögbrot í kjúklingabúi með falinni myndavél Ted Bundy tengdur við 52 ára gamalt óleyst morð Meirihluti atkvæða talinn en enginn með þingmeirihluta Tekur við Bolsonaro opnum örmum Munda fallbyssurnar við landamærin Enginn skýr sigurvegari í útgönguspám Efins um „einkaframtak Norðmanna og Finna“ Tveir ákærðir vegna uppákomu við bandaríska herstöð á Englandi Ákæra Comey enn eina ferðina Stubb og Støre ræddu við Pútín Fóðruðu loftslagsvá aðeins minna en metárið á undan Kjörstaðir opnir í Ísrael Óljóst hver mun leiða ríkisstjórn Stúdenta í Serbíu Trump segir svindlað í brasilísku kosningunum Kosningar í Ísrael: Arabaflokkarnir gætu ráðið úrslitum Biskupar sjá eftir bænastund með Trump Fundu 31 byssu, Hitler-brjóstmynd og danskan fána Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Stór hluti Oxford Street orðinn göngugata Sagðir vilja fá Orbán til að stýra Sameinuðu þjóðunum Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Tókst ekki moða neitt úr miðjunni Fundu auðgað úran í dánarbúi Sjá meira