Skoðun

Stormur í vatnsglasi

Vegna mikilla umræðna að undanförnu um málefni MS-félags Íslands langar mig aðeins til að láta vita að nú ríkir hjá okkur langþráður friður. Kannski var svo sem enginn ófriður heldur má segja að þetta hafi bara verið nokkar óánægjuraddir eins og eðlilegt má telja. Þessar óánægjuraddir hefðu að mínu viti aldrei átt að heyrast opinberlega heldur bara vera svona lágvær kliður innan félagsins. Það verður að teljast eðlilegt að fólk verði ósátt og skiptist á skoðunum í félagasamtökum sem þessum en svona fjölmiðlafár er bara til þess fallið að fá þjóðina alla til að halda að hjá félaginu sé allt í kalda koli sem það vissulega er ekki. Aðalfundur MS-félagsins var haldinn í síðustu viku og var vel mætt. Vilji fundarmanna var nokkuð eindreginn og óánægjuraddirnar fengu innan við þrjátíu atkvæði. Stjórn Sigurbjargar Ámannsdóttur hélt velli. Til lukku með það það strákar og stelpur! Það má því öllum vera ljóst að þetta var einungis stormur í vatnsglasi.



Skoðun

Skoðun

Símafriður er kominn til að vera og það er fagnaðar­efni

Atli Þór Jóhannsson,Hermann Arnar Austmar,Dagný Hróbjartsdóttir,Héðinn Svarfdal Björnsson,Karen Kristine Pye,Kristófer Nökkvi Sigurðsson,Kristín Ólöf Grétarsdóttir,Salka Hauksdóttir,Sigvaldi Egill Lárusson,Stefán Þór Helgason,Stefán Karl Snorrason skrifar

Sjá meira


×