Erlent

Miklir skógareldar í Frakklandi

Um þrjú þúsund hektarar af skóglendi brunnu og um tvö þúsund manns þurftu að flýja heimili sín vegna mikilla skógarelda norður af Marseille í Frakklandi um helgina. Þrír slökkviliðsmenn slösuðust við vinnu sína þar af tveir þegar þeir fengu á sig vatn sem sleppt var úr flugvél. Hvassviðri var töluvert á þessum slóðum og náði eldurinn því að breiðast fljótt út. Flugvélar og þyrlur voru notaðir í slökkvistarfinu sem um sextán hundruð manns komu að.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×