Erlent

Knattspyrnudómari skaut þjálfara

Knattspyrnudómari skaut þjálfara í knattspyrnuleik í Suður-Afríku í gær eftir að þjálfarinn og leikmenn hans mótmæltu gulu spjaldi að sögn lögreglunnar þar í landi. Þjálfarinn lést þar sem hann lá í blóði sínu á vellinum en dómaranum tóks hins vegar að flýja af vettvangi. Tíðni morða í Suður-Afríku er með því hæsta sem gerist í heiminum þar sem tæplega 50 manns af hverjum 100 þúsund eru drepnir en það er átta sinnum fleiri en í Bandaríkjunum. Myndin er úr myndasafni.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×