Norðmenn orðnir latir 25. júlí 2004 00:01
Norðmenn leita nú leiða til að endurvekja vinnugleði hjá fólki í landinu. Ósérhlífnin og harkan sem einkenndu norska alþýðu áður en landið varð ríkt af olíu virðast vera á undanhaldi og eftir þrjá áratugi af velsæld virðist letin vera að ná tökum á norku vinnufólki. Það er af sem áður var þegar Noregur var fátækt og einangrað land og vinnandi fólk treysti á dugnað og sjálfstæði til þess að eiga í sig og á. Nú er staðan orðin þannig að hvergi í Evrópu er fólk jafnoft fjarverandi úr vinnu að meðaltali og í Noregi. Rúmlega 20% vinnandi manna eru að jafnaði fjarverandi frá vinnu sinni á degi hverjum í landinu vegna veikinda. Algengasta orsök fjarvistanna er kvef og flensa en einnig er algengt að beinverkir og vöðvabólgur hrjái Norðmenn. Meðalmaðurinn í Noregi er því fjarverandi úr vinnu tæpar fimm vikur á ári. Við það bætast svo ellefu lögleiddir frídagar, sumarfrí, jólafrí og helgar og því vinna Norðmenn að jafnaði rétt rúmlega helming daga ársins. Þá eru enn ótaldar fjarvistir vegna langvarandi sjúkdóma og endurhæfingar sem hafa aukist um 20% síðan 1990. Þar sem velferðakerfið er afar gott í Noregi koma þessar miklu fjarvistir lítið niður á buddu landsmanna og eru yfirvöld í Noregi því í stökustu vandræðum með að finna leiðir til að hvetja landsmenn til að mæta betur til vinnu. Árið 2001 var reynt að tækla vandann með því að koma á samvinnu við samtök atvinnurekenda og launafólks um að vinna að vandanum en það hefur engu skilað hingað til. Nú hefur verið gripið til þess ráðs að krefja fólk um læknisvottorð fyrir veikindafrí sem er lengra en þrjár vikur, nokkuð sem okkur Íslendingum þætti nú ekki mjög harkalegar aðgerðir. Auk þess er orðið algengt að yfirmenn bjóði starfsfólki sínu sveigjanlegan vinnutíma til þess að minnka líkurnar á fjarvistum. Hvað sem fjarvistunum líður geta norsk yfirvöld þó glaðst yfir því að þegar landsmenn mæta til vinnu eru afköstin með betra móti og var framleiðni á hverja vinnustund í Noregi t.a.m. töluvert meiri en í Japan, Bretlandi og Kanada á síðasta ári.
Erlent Fréttir Mest lesið „Fólk er bara slegið“ Innlent „Ég er hræddur við þessa menn“ Innlent Fjöldi menntaskólanema sá myndskeið af árásinni Innlent „Sleggja beint í höfuðið á almenningi og fyrirtækjum“ Innlent Þúsundir kalla eftir afsögn Þorgerðar: „Vandræðaleg tilraun“ Innlent Biður Loga afsökunar „á dónaskapnum“ Innlent Blása á gagnrýni og opna dagatalið Innlent Leikskólakennarar slegnir yfir ummælum Ingu Innlent Stærðfræðin vefst fyrir íslenskum stúlkum Innlent Bannar innflutning á kanadískum vörum Erlent Fleiri fréttir Leggur stefnu AfD að jöfnu við þjóðernishreinsanir Farage kemur frönskum skoðanabróður í klandur Banna breskum þingmönnum að koma til Ísraels Haraldur Noregskonungur borinn til grafar Rétta yfir rússneskum skipstjóra sem sleit sæstrengi við Finnland Leita enn að Renoir-þjófunum Bannar innflutning á kanadískum vörum Réðust á fleiri olíuflutningaskip Skutu tugum eldflauga og dróna að borgum Sádi-Arabíu Töluðu saman í klukkutíma Handtaka grunaðan spellvirkja í Þýskalandi Fordæma útförina sem „Slátrarinn“ fékk í Serbíu Grípa saman til aðgerða gegn ísraelskum landtökumönnum Allir þeir látnu í bílum sem flugvélin rann á Dýrmætum listaverkum stolið af safni Renoir Starfsmenn í verkfall eftir heimsókn trúarhóps Kim fjölgar herskipum sínum Fjárfesta í menntamálum, fjarskiptum og jarðmálmum á Grænlandi Klerkastjórnin missir tökin Rússar svara fyrir sig Ísland á Ameríkukorti Trumps Stöðnun og dýrtíð að baki stórsigri AfD Kanslarinn segir sigur AfD draga dilk á eftir sér Svíþjóðardemókrati í leyfi vegna Rússaáróðurs og hreinsanir á vinstri vængnum Útlit fyrir fyrstu fjarhægristjórnina frá endalokum nasismans Nafnabreytingaæði Trumps heldur áfram Ýmislegt bendi til stjórnarskipta í Svíþjóð Minnst fimm látnir eftir flugslys í Flórída Útgönguspár benda til stórsigurs AfD Margrét Þórhildur lögð inn á sjúkrahús Sjá meira