Gjaldið í Hvalfjarðargöng lækki 24. nóvember 2004 00:01
Veggjald um Hvalfjarðargöng getur lækkað verulega ef Spölur ræðst í endurfjármögnun lána. Sturla Böðvarsson samgönguráðherra lýsti þessu yfir á Alþingi í dag og studdist þar við nýja úttekt Ríkisendurskoðunar á bókhaldi Spalar. Þetta kom fram í svari ráðherra við fyrirspurn Jóhanns Ársælssonar, þingmanns Samfylkingar, um hvaða aðgerðir væru fyrirhugaðar til að lækka virðisaukaskatt af veggjaldi gangnanna og hvort ráðherra myndi beita sér fyrir því að veggjaldið lækkaði. Samgönguráðherra sagði að lækkun virðisaukaskatts kæmi til skoðunar samfara endurskoðun á virðisaukaskattskerfinu í samræmi við stjórnarsáttmálann. Hann sagði að ráðuneytið hefði lagt á það áherslu í viðræðum við stjórn Spalar að allra leiða yrði leitað til að lækka veggjald í göngunum. Hann upplýsti að Ríkisendurskoðun hefði í sumar, að beiðni ráðuneytisins, farið yfir bókhald Spalar í því skyni að finna leiðir til að ná niður rekstrarkostnaði við göngin. Í skýrslu Ríkisendurskoðunar komi fram að draga megi verulega úr rekstrarkostnaðinum með endurfjármögnun lána. Samgönguráðherra sagði ennfremur að með hliðsjón af niðurstöðu Ríkisendurskoðunar sé ekkert því til fyrirstöðu að Spölur geri þær breytingar sem ættu að geta leitt til þess að veruleg lækkun yrði á gjaldinu.
Fréttir Innlent Mest lesið Sætir morðhótunum og óhróðri í vinsælum Facebook-hópi Innlent Gabríel Douane og fimm aðrir sýknaðir Innlent Bílstjóri horfði á skelfingu lostinn Innlent Tugir tilkynninga í viku: „Þetta var ekki í fyrsta skipti sem þau voru handtekin“ Innlent Gunnar Þórðarson er látinn Innlent „Hún drap börnin“ Erlent Heilum gámi af kampavíni stolið af Ölgerðinni Innlent Okkar McCartney, okkar Bach kveður Innlent Horfðu á bílinn velta niður fjallið Innlent Mosfellsdalur minnti á vígvöll Innlent Fleiri fréttir Bandero hrellir Hval 9 Þaulskipulagðir vasaþjófar, minkaveiðar og lífgjöf Dekk sprakk við lendingu vélar Borgarísjaka rekur í átt að Skagafirði Stærsta umferðarhelgi ársins hafin Bílstjóri horfði á skelfingu lostinn Meirihluti ætlar að segja já í ágúst Skilningsleysi foreldra mætti litblindum syninum Staðan orðin „þokkalega góð“ Tugir tilkynninga í viku: „Þetta var ekki í fyrsta skipti sem þau voru handtekin“ Okkar McCartney, okkar Bach kveður Vasaþjófar gómaðir á Suðurlandi og minkafár í rénun Fleiri en einn hafi verið að verki Dýralæknafélag Íslands fordæmir skemmdarverk í Dalsbúi Gunnar Þórðarson er látinn Dregur úr ánægju með frammistöðu ríkisstjórnarflokkanna Sex handteknir grunaðir um vasaþjófnað Sætir morðhótunum og óhróðri í vinsælum Facebook-hópi Gabríel Douane og fimm aðrir sýknaðir Heilum gámi af kampavíni stolið af Ölgerðinni Mosfellsdalur minnti á vígvöll Greinir á um leiðir til að draga úr nikótínneyslu ungmenna Gæsluvarðhald samþykkt yfir Ming Ting „Það er búið að slökkva og húsið er ónýtt“ Gripinn á nánast tvöföldum hámarkshraða Skothljóð og minkafár í Mosfellsdal í beinni Eldur logaði í Stykkishólmi Horfðu á bílinn velta niður fjallið Hvað er í boði um verslunarmannahelgina? „Þeir skulu ekki halda það að þeir geti drepið mig“ Sjá meira