Ógn steðjar að lífríki norðursins 24. nóvember 2004 00:01
Ógn steðjar að lífríki norðursins að mati vísindamanna en miðað við Reykjavíkuryfirlýsingu Norðurskautsráðsins, sem undirrituð var hér á landi í dag, á lítið að gera til að bregðast við ógninni. Átta utanríkisráðherrar funduðu og komust ekki að neinni haldbærri niðurstöðu um viðbrögð við hlýnun jarðar. Hlýnun norðurhvels er meiri og hraðari en áður var talið og draga verður úr útblæstri gróðurhúsalofttegunda. Þetta var niðurstaða nokkur hundruð vísindamanna sem kynntu niðurstöður sínar hér á landi nýlega. Í dag komu utanríkisráðherrar aðildarlanda Norðurskautsráðsins saman til að ganga frá svokallaðri „Reykjavíkuryfirlýsingum“ sem byggir á niðurstöðum vísindamannanna. Ekki var mælt með neinum aðgerðum í yfirlýsingunni sem reyndist fremur loðin. Viðmælendur fréttastofunnar í dag vildu meina að Bandaríkjamann neituðu að skrifa undir niðurstöður vísindamannanna en Bandaríkin eru eina aðildaland ráðsins sem ekki hafa undirritað Kyoto-bókunina. Dr Paula Dobriansky, aðstoðarvarautanríkisráðherra Bandaríkjanna, segir að ríkisstjórn landsins muni taka mat Norðurskautsráðsins á áhrifunum til greina jafnframt því sem haldið verði áfram að bregðast við loftslagsbreytingunum. Hún segist ánægð með viðræður og þann skilning sem ríkti meðal fundarmanna og telur að það sé borin virðing fyrir nálgun einstakra aðila. Spurð hvort þetta sé ekki lýsing á loðinni yfirlýsingu án nokkurra aðgerða segir Dobriansky svo ekki vera. Ef skoðuð sé yfirlýsing ráðherranna sést að hún tekur sérstaklega á atriðum eins og mildun og aðlögun, aðferðum sem hægt sé að beita. Náttúruverndarsinnar virðast ekki hafa mikið álit á þeim niðurstöðum sem fundarmenn komust að og talsmenn umhverfissamtakanna WWF dreifðu blaði á fundinum með fyrirsögninni: „No action og big melt“. Samantha Smith frá WWF segir samtökin mjög vonsvikin. Þau hafi vonað að heimskautslöndin öxluðu ábyrgð sína og gerðu það sem nauðsynlegt er til að bjarga norðurskautinu, eða a.m.k. að þau myndu lýsa yfir fyrirætlunum um að minnka losun koltvísýrings miklu meira. Spurð um álit sitt á óskum sumra landanna, þ.á m. Íslands, um stærri losunarkvóta segir Smith að gagnvart þessum vísindaniðurstöðum, sem séu mjög sterkar og sýni gífurlegar breytingar á norðurskautinu, verði löndin að sýna gott fordæmi með því að fara í hina áttina, þ.e. minnka losun koltvísýrings.
Fréttir Innlent Mest lesið Lokun einu innilaugar sveitarfélagsins íbúum mikið áfall Innlent Bílastæði eða bekkir og blómapottar? Innlent Nærri því áttatíu borgarar liggja í valnum Erlent Maður skotinn af fulltrúum ICE í New York Erlent Veðmál á sigur Navalnaju hrúgast inn Erlent Navanethem Pillay hlaut friðarverðlaun Nóbels Erlent Friðarsúlan hefur kostað rúmar hundrað milljónir króna Innlent Ætla að streyma aftöku í beinni Erlent Fjárfesti í SpaceX og hóf svo átak sem gæti hagnast fyrirtækinu Erlent Borgin afturkallar lóðir trúfélaganna Innlent Fleiri fréttir Afskipti formanns Eflingar séu með ólíkindum Í beinni frá höfuðstöðvum Ölgerðarinnar Borað eftir heitu vatni í Laugardal Friðarsúlan hefur kostað rúmar hundrað milljónir króna Hellisheiðin lokuð til vesturs Borgin afturkallar lóðir trúfélaganna Lokun einu innilaugar sveitarfélagsins íbúum mikið áfall Maður réðst á annan og skemmdi bíl Bílastæði eða bekkir og blómapottar? Vilja auka viðveru NATO í norðri Máttu tæma lónið „Varpar skugga á skólasamfélagið í heild“ „Ég fagna því að þessu leikriti sé lokið“ Þetta eru aðgerðirnar sem fara á í Ók lyfjaður á gangandi vegfaranda Bein útsending: Forsætisráðherra boðar til blaðamannafundar Dagskrá aflýst í dag og óljóst hvernig ræðukeppnin fer fram Loftslagstilraun hefst í Hvalfirði á næstu dögum Margrét Löf í sextán ára fangelsi en heldur föðurarfinum Veitingamaður sektaður um tvö hundruð milljónir Bein útsending: Landbúnaður í heimi breytinga Ekki rétt sem Halla segir Hefja formlegar viðræður um myndun nýs meirihluta Íslensk nóbelsverðlaun og erfið staða framhaldsskólanna Vill fækka borgarfulltrúum um átta Lögreglan leitar upplýsinga um rispaða bíla Fjármálaráðherra flautaður niður af sviði Kristrún reyni að hafa milligöngu í deilunni Ekki eigi að refsa fólki fyrir að hafa stutt á milli barna Nemendur í Reykjavík koma best út úr PISA Sjá meira