Hringrás gæti verið bótaskyld 24. nóvember 2004 00:01
Hringrás gæti verið bótaskyld komi í ljós að fyrirtækið hafi ekki farið að fyrirmælum yfirvalda. Tjón fyrirtækja og einkaaðila í nágrenni brunastaðsins af völdum eldsins virðist hafa verið ótrúlega lítið. Talsmenn tryggingafélaga segja aðeins nokkra tugi tilkynninga hafa komið inn. Fulltrúar sumra tryggingafélaga hafa gengið hús úr húsi í grennd við brunastaðinn og segja að rétt viðbrögð hafi bjargað miklu. Fyrir utan fnyk og fínt sót er óvíða að finna nokkur ummerki eldsins. Aðra sögu er að segja af atvinnuhúsnæði og lagerum fyrirtækja. Þar mun hafa orðið minni háttar tjón, eins og fulltrúi eins tryggingafélagsins orðaði það í samtali við fréttastofuna. Heilbrigðisfulltrúar munu til að mynda hafa úrskurðað að farga yrði matvælum sem geymd voru á svæðinu. Rætt hefur verið um tryggingar og bótaskyldur í tengslum við brunann og Viðar Lúðvíksson lögmaður segir Hringrás geta hafa skapað sér bótaskyldu. Það sem fyrst sé skoðað í slíkum málum eru þau lög og reglur sem gilda á viðkomandi sviði og hugsanleg opinber fyrirmæli sem hafa verið gefin fyrirtækinu. Ef fyrirtækið hefur orðið uppvíst að einhverjum brotum á þessum lögum og fyrirmælum þá er það mjög sterk vísbending um að fyrirtækið sýnt af sér saknæma háttsemi að sögn Viðars. „Og ef þessi saknæma háttsemi leiðir síðan til tjóns fyrir einhvern, eins og virðist hafa gerst í þessu tilviki, þá getur fyrirtækið orðið bótaskylt,“ segir Viðar. Lögboðin brunatrygging húseigna bætir tjón á loftum, gólfum, veggjum og á föstum innréttingum en ekki tjón á innbúi. Sérstaka innbús- eða fjölskyldutryggingu þarf til að það sé bætt og samkvæmt tölum frá Sjóvá-Almennum eru á milli 20 og 25 prósenta heimila ekki með slíka tryggingu. Síðdegis fól umhverfisráðherra brunamálastjóra að gera úttekt á brunavörnum hjá aðilum með sambærilegan rekstur og Hringrás og kanna hvort ástæða sé til að breyta lögum og reglum.
Fréttir Innlent Mest lesið Sætir morðhótunum og óhróðri í vinsælum Facebook-hópi Innlent Gabríel Douane og fimm aðrir sýknaðir Innlent Bílstjóri horfði á skelfingu lostinn Innlent Tugir tilkynninga í viku: „Þetta var ekki í fyrsta skipti sem þau voru handtekin“ Innlent Gunnar Þórðarson er látinn Innlent Heilum gámi af kampavíni stolið af Ölgerðinni Innlent Horfðu á bílinn velta niður fjallið Innlent Okkar McCartney, okkar Bach kveður Innlent Mosfellsdalur minnti á vígvöll Innlent „Hún drap börnin“ Erlent Fleiri fréttir Stærsta umferðarhelgi ársins hafin Bílstjóri horfði á skelfingu lostinn Meirihluti ætlar að segja já í ágúst Skilningsleysi foreldra mætti litblindum syninum Staðan orðin „þokkalega góð“ Tugir tilkynninga í viku: „Þetta var ekki í fyrsta skipti sem þau voru handtekin“ Okkar McCartney, okkar Bach kveður Vasaþjófar gómaðir á Suðurlandi og minkafár í rénun Fleiri en einn hafi verið að verki Dýralæknafélag Íslands fordæmir skemmdarverk í Dalsbúi Gunnar Þórðarson er látinn Dregur úr ánægju með frammistöðu ríkisstjórnarflokkanna Sex handteknir grunaðir um vasaþjófnað Sætir morðhótunum og óhróðri í vinsælum Facebook-hópi Gabríel Douane og fimm aðrir sýknaðir Heilum gámi af kampavíni stolið af Ölgerðinni Mosfellsdalur minnti á vígvöll Greinir á um leiðir til að draga úr nikótínneyslu ungmenna Gæsluvarðhald samþykkt yfir Ming Ting „Það er búið að slökkva og húsið er ónýtt“ Gripinn á nánast tvöföldum hámarkshraða Skothljóð og minkafár í Mosfellsdal í beinni Eldur logaði í Stykkishólmi Horfðu á bílinn velta niður fjallið Hvað er í boði um verslunarmannahelgina? „Þeir skulu ekki halda það að þeir geti drepið mig“ Slapp vel þegar bíll hennar valt yfir 200 metra niður Bolafjall Hafdís Huld í bæjarstjórastólinn Allir á hlaupum að reyna fanga minka Ráðlagt að hafa garða snyrtilega og stéttir sópaðar þegar fólk er í burtu Sjá meira