Þriðji hver skattgreiðandi hagnast 24. nóvember 2004 00:01
Þriðji hver skattgreiðandi hagnast á því að eignaskattur verði afnuminn. 60% þeirra sem græða á afnámi skattsins eru með innan við 200 þúsund krónur í mánaðarlaun og hagnast að meðaltali um 35 þúsund krónur á ári. Samkvæmt tölum frá fjármálaráðuneytinu nam eignaskattur einstaklinga rúmum 2,4 milljörðum í fyrra. Tæplega 230 þúsund Íslendingar greiddu skatt í fyrra, þar af greiddi tæpur þriðjungur þeirra, eða rúmlega 67 þúsund manns, eignaskatt. 40 þúsund úr hópi þeirra sem tilheyra lægstu tekjuhópum samfélagsins greiða eignaskatt og nam hann samtals í fyrra rúmlega 1380 milljónum króna, eða vel rúmur helmingur alls þess eignaskatts sem innheimtur var í fyrra. Verði eignaskattur felldur niður á næsta ári, eins og stefnt er að í skattafrumvarpi ríkisstjórnarinnar, hagnast þetta fólk að meðaltali um tæplega 35 þúsund krónur á ári. Sé litið á þá sem hafa hærri laun kemur í ljós að 36 prósent þeirra sem hafa á bilinu 200 til 500 þúsund krónur í mánaðarlaun hagnast á afnámi eignaskatts og nemur meðalhagnaður þeirra tæplega 34 þúsund krónum á ári. Mikill meirihluti þeirra sem hafa meira en hálfa milljón á mánuði greiðir eignaskatt. Þeir eru rúmlega 4000 talsins en eru hlutfallslega fáir miðað við hina sem hafa lægri laun, eða rúm 6% allra þeirra sem greiða eignaskatt. Þessi hátekjuhópur greiddi 246 milljónir króna í eignaskatt í fyrra, eða rétt rúm 10% alls innheimts eignaskatts. Hátekjuhópurinn hagnast að meðaltali um 58 þúsund krónur á ári við afnám eignaskattsins. Þessar tölur sýna því að hlutfallslega hagnast þeir mest á afnámi eignaskattsins sem lægstar hafa tekjurnar.
Fréttir Innlent Mest lesið Lokun einu innilaugar sveitarfélagsins íbúum mikið áfall Innlent Bílastæði eða bekkir og blómapottar? Innlent Nærri því áttatíu borgarar liggja í valnum Erlent Maður skotinn af fulltrúum ICE í New York Erlent Veðmál á sigur Navalnaju hrúgast inn Erlent Ætla að streyma aftöku í beinni Erlent Navanethem Pillay hlaut friðarverðlaun Nóbels Erlent Friðarsúlan hefur kostað rúmar hundrað milljónir króna Innlent Borgin afturkallar lóðir trúfélaganna Innlent „Ég fagna því að þessu leikriti sé lokið“ Innlent Fleiri fréttir Borað eftir heitu vatni í Laugardal Friðarsúlan hefur kostað rúmar hundrað milljónir króna Hellisheiðin lokuð til vesturs Borgin afturkallar lóðir trúfélaganna Lokun einu innilaugar sveitarfélagsins íbúum mikið áfall Maður réðst á annan og skemmdi bíl Bílastæði eða bekkir og blómapottar? Vilja auka viðveru NATO í norðri Máttu tæma lónið „Varpar skugga á skólasamfélagið í heild“ „Ég fagna því að þessu leikriti sé lokið“ Þetta eru aðgerðirnar sem fara á í Ók lyfjaður á gangandi vegfaranda Bein útsending: Forsætisráðherra boðar til blaðamannafundar Dagskrá aflýst í dag og óljóst hvernig ræðukeppnin fer fram Loftslagstilraun hefst í Hvalfirði á næstu dögum Margrét Löf í sextán ára fangelsi en heldur föðurarfinum Veitingamaður sektaður um tvö hundruð milljónir Bein útsending: Landbúnaður í heimi breytinga Ekki rétt sem Halla segir Hefja formlegar viðræður um myndun nýs meirihluta Íslensk nóbelsverðlaun og erfið staða framhaldsskólanna Vill fækka borgarfulltrúum um átta Lögreglan leitar upplýsinga um rispaða bíla Fjármálaráðherra flautaður niður af sviði Kristrún reyni að hafa milligöngu í deilunni Ekki eigi að refsa fólki fyrir að hafa stutt á milli barna Nemendur í Reykjavík koma best út úr PISA Kristrún og Þorgerður sækja ekki Hringborð norðurslóða Kjaravaktin: Samkomulag í höfn á elleftu stundu Sjá meira