Slökkvistarfinu lokið 24. nóvember 2004 00:01
Slökkvistarfi á athafnasvæði Hringrásar við Sundahöfn er lokið og bíður slökkviliðsmanna nú mikið verk við að hreinsa næstum allan búnað sem slökkviliðið á höfuðborgarsvæðinu hefur yfir að ráða. Nokkrir slökkviliðsmenn voru á vettvangi í nótt til að vakta svæðið og slökkva í glæðum þar sem þeirra varð vart. Formleg rannsókn á eldsupptökum er hafin en að sögn lögreglu eru sterkar vísbendingar um að eldsupptökin hafi orðið í hleðslutæki fyrir raflyftara en það var inni í skemmunni þar sem talið er að eldurinn hafi kviknað. Áætlað er að um tvö þúsund tonn af dekkjum hafi verið í haugnum sem kviknaði í. Að sögn Jóns Viðars Matthíassonar aðstoðarslökkviliðsstjóra er ógjörningur að slá á allar vinnustundir vegna brunans. Um það bil 80 slökkviliðsmenn úr Reykjavík voru meira og minna að störfum í sólarhring, fjöldi lögreglumanna, björgunarsveitarmanna og Rauða kross liða. Þá lögðu ýmsir slökkviliðinu ómetanlegt lið, að sögn Jóns Viðars. Flugmálastjórn lagði til menn og tæki, Olíudreifing lagði til mikið af kvoðu til slökkvistarfsins, Reykjavíkurhöfn lagði til ýmsan búnað, ET-flutningar stórvirkar vinnuvélar og mannskap á þær og svo mætti lengi telja. Nú bíður slökkviliðsmanna mikið verk við að hreinsa upp allan búnað sinn og koma honum í fullkokmið lag á ný og taka saman og hreinsa þann búnað sem liðið fékk lánaðan. Þá liggur fyrir mikil hreinsun við Sundahöfn, langt út fyrir athafnasvæði Hringrásar.
Fréttir Innlent Mest lesið Obama svarar ásökunum Trump og Gabbard um valdaránstilraun Erlent Starfsfólk kannist ekki við uppsteyt á kvennadeild Landspítalans Innlent Skildirnir hafi hótað konum sem setji út á þá Innlent Þetta er fólkið á bak við Skjöld Íslands Innlent Umferð beint um Þrengslin í dag Innlent Móðir og níu mánaða barn hætt komnar í Þrengslunum Innlent Ættingjar að verða fyrir hryllilegum ódæðum Innlent Sjö í fangageymslum og þremur vísað úr kirkju Innlent Stöðug virkni í einum gíg og gosmengun spáð á Suðurlandi Innlent Efnt til mótmæla í Úkraínu vegna umdeildrar lagabreytingar Erlent Fleiri fréttir Umferð beint um Þrengslin í dag Sjö í fangageymslum og þremur vísað úr kirkju Stöðug virkni í einum gíg og gosmengun spáð á Suðurlandi Ættingjar að verða fyrir hryllilegum ódæðum Starfsfólk kannist ekki við uppsteyt á kvennadeild Landspítalans Bergþórshvoll brenndur á fjögurra daga Njáluhátíð Skildirnir hafi hótað konum sem setji út á þá Fyrsti konsertflygilinn í Skálholtskirkju vígður „Hvetjum fólk til þess að treysta okkur bara fyrir því“ Sækja mann sem datt af hestbaki Lögregla afþakkar þjónustu Skjaldar Íslands og Guðni boðar brennu Félagið Ísland-Palestína harmar skvettuna Rán og frelsissvipting í Árbæ Mótmælandi skvetti málningu á ljósmyndara Morgunblaðsins Brottfararstöð dómsmálaráðherra komin í samráðsgátt Móðir og níu mánaða barn hætt komnar í Þrengslunum Þetta er fólkið á bak við Skjöld Íslands Reyndu að koma í veg fyrir að hún settist upp í hjá afrískum bílstjóra Tveir af þremur ánægðir með beitingu „kjarnorkuákvæðisins“ Alvarlega slösuð bankakona lagði VÍS eftir langa og stranga baráttu Lærði skriðsund á YouTube og syndir Ermarsund á morgun Sjálfsagt að taka málið fyrir: „Leysist ekkert sjálfkrafa við að ganga inn í Evrópusambandið“ Lögreglan hugsi yfir Skildi Íslands: Eitt lögbrot verði ekki réttlætt með öðru Eldur í verslunarhúsnæði á Laugavegi Play tekur dýfu í skugga afkomuviðvörunar og Njáll Trausti vill funda Hótað og ógnað eftir að hafa aðstoðað lögreglu Laugavegurinn að „deyja úr velgengni“ Loftgæði mun betri á höfuðborgarsvæðinu Njáll Trausti vill fund hið fyrsta í atvinnuveganefnd Hefði sagt nei: Sumarfrí bæjarfulltrúa opnaði fyrir endurskipulag á Nónhæð Sjá meira