Blair íhugaði afsögn 10. júlí 2004 00:01
Tony Blair býr sig undir pólitíska orrahríð í næstu viku. Þá er væntanleg skýrsla um gallaðar upplýsingar sem lagðar voru stríðinu í Írak til grundvallar, auk þess sem aukakosningar fara fram sem talið er að Verkamannaflokkurinn gjörtapi. Gustað hefur um Tony Blair undanfarna mánuði og samkvæmt fréttum BBC þótti honum nóg um í síðasta mánuði og íhugaði afsögn. Nánustu samstarfsmenn urðu að tala hann til og fá hann til að halda áfram. Fullyrðir BBC að fjórir ráðherrar hafi lagt hart að Blair að gefast ekki upp. Kannanir hafa sýnt mikla óánægju almennings með Blair undanfarið, auk þess sem pólitískir andstæðingar og jafnvel samherjar hafa gagnrýnt hann harðlega. Fréttaskýrendur segja enn mikla spennu innan stjórnarinnar, einkum milli þeirra Blair og Gordons Brown, fjármálaráðherra og líklegasta eftirmanns Blairs á forsætisráðherrastóli. Búist er við því að gagnrýnisraddir gerist enn háværari í næstu viku, þegar skýrsla um upplýsingar bresku leyniþjónustunnar í aðdraganda Íraksstríðsins verður birt. Á miðvikudag greinir Butler lávarður frá niðurstöðum sínum og er gert ráð fyrir að hann gagnrýni leyniþjónustuna og upplýsingarnar sem lágu stríðsrekstrinum til grundvallar, rétt eins og nefnd Bandaríkjaþings gerði í gær. Á Bretlandi er hins vegar gert ráð fyrir því að ríkisstjórninn fái stærsta skellinn og segir fyrrverandi yfirmaður leyniþjónustunefndar á Bretlandi, að Blair verði að taka ábyrgð á því sem miður fór. Í síðustu viku viðurkenndi Blair að líkast til myndu eiturefna- og gjöreyðingarvopn Íraka aldrei finnast, en þau voru meginástæða stríðsins. Dagblaðið Independent greinir frá því í dag, að Blair sitji nú með nánustu samstarfsmönnum sínum og leggi á ráðin um varnaraðgerðir í næstu viku. Til viðbótar við skýrslu Butlers lávarðar verða aukakosningar í suður Leicester og Birmingham Hodge Hill, sem stjórnmálaskýrendur telja víst að Verkamannaflokkurinn muni tapa. Blair til armæðu mun Gordon Brown hins vegar flytja jákvæðar fréttir í næstu viku, og þar með enn auka á spennuna á milli þeirra félaga, og verður það tæpast til að draga úr umræðu um brotthvarf Blairs úr stjórnmálum.
Erlent Fréttir Mest lesið Útgrátin og brotin frammi fyrir öllum Innlent Hafi loks slíðrað sverðin Innlent Starfsmenn séu eltir heim og lífi þeirra ógnað Innlent Stjórnendur Sorpu slegnir Innlent Lét maka vinna fyrir sig í skólanum Innlent Samþykkja sölu á hundruðum Patriot-flauga Erlent Skringileg túlkun að hinsegin fáninn sé útilokandi Innlent Ósáttir sendlar bjóða Wolt fram aðstoð sína Innlent Ökumenn beðnir um að aka sérstaklega varlega Innlent Stjórnlagadómstóll Póllands sakar stjórnvöld um valdarán Erlent Fleiri fréttir Stjórnlagadómstóll Póllands sakar stjórnvöld um valdarán Búa sig undir þriðju helgi mótmæla Samþykkja sölu á hundruðum Patriot-flauga Skoða hvort konum hafi verið smyglað í sumarbúðir kóngafólksins „Ég hafði ekki séð fyrir mér líf eftir þessa nótt“ „Þeir drápu okkur“: Einum síðasta frjálsa fjölmiðli Rússlands lokað „Þú ert ógeðslegur, komdu þér í form“ Hófu aftur árásir á olíuvinnslur eftir blóðbað Sveppamorðingi fær enga reynslulausn Flókið stjórnarmyndunarferli fram undan í Ísrael Sagður hafa átt í samskiptum við kínverskan njósnara Óvænt ákvörðun þingforsetans reitir vinstrimenn til reiði Tvö mannskæð slys vekja upp spurningar um öryggi Hafnar ásökunum um kosningasvindl Blóðbað á lestarpalli Krefjast enn að forsetinn verði dæmdur til dauða Þriggja daga þjóðarsorg hafin á Spáni Telja síðustu atkvæðin í Ísrael Stýrivextir óbreyttir og stutt í kosningar Skipverjar skemmtiferðaskips sitja fastir í Kambódíu Senda þúsund hermenn til Haítí eftir umsátur Kerfisvilla og mannleg mistök leitt til slyssins Fleiri gamalmenni en börn í Kína Sátu undir sögufyrirlestri Pútíns Báðir vilja mynda ríkisstjórn en ekki vinna með aröbum Minnst 64 sagðir látnir í árekstri hraðlesta á Spáni Opinberuðu lögbrot í kjúklingabúi með falinni myndavél Ted Bundy tengdur við 52 ára gamalt óleyst morð Meirihluti atkvæða talinn en enginn með þingmeirihluta Tekur við Bolsonaro opnum örmum Sjá meira