Blindur markvörður 6. júlí 2004 00:01 "
Við erum að vinna fyrir Hitt húsið og Sjálfsbjörg við að bæta ímynd öryrkjans. Við gerum ýmislegt í því starfi, erum meðal annars að vinna tónlistarmyndband, héldum sundlaugarpartí og nú næst tónleika," segir Gunnar Bjarni Guðbjörnsson en hann er liðsmaður í Götuhernaðinum. "Í fyrra fengum við borgarstjórann til að eyða deginum í hjólastól og nú höldum við áfram og fáum kunna knattspyrnukappa til að keppa við okkur í fótbolta. Tveir þeirra verða í hjólastól, einn með hækjur og tveir í viðbót með göngugrind. Síðan verður markvörðurinn þeirra með bundið fyrir augun en hann mun setja sig í fótspor markvarðar okkar sem er blindur," segir Gunnar og bætir því við að liðsmenn Götuhernaðarins ætli að bursta KSÍ-stjörnurnar. Meðal þeirra sem keppa við Gunnar og félaga eru Eyjólfur Sverrisson, Guðni Bergsson, Helena Ólafsdóttir, Björgólfur Takefusa og Kristján Finnbogason. "Þau tóku öll alveg rosalega vel í þetta og KSÍ var tilbúið að gera allt fyrir okkur. Redda búningum, bolta og öðru sem er nauðsynlegt fyrir fótboltaiðkun." Það er óhætt að segja að Götuhernaðurinn beiti óhefðbundnum leiðum til að vekja athygli á málefnum hreyfihamlaðra. "Við erum að vinna að tónleikum sem verða í Hinu húsinu 13. júlí og hljómsveitin Dys mun leika á og síðan er að fara í spilun tónlistarmyndband sem við höfum verið að vinna að. En næsta verkefni er að vinna fótboltastjörnurnar í fótbolta."
Mest lesið Luku þrjátíu ára hjónabandi með skilnaðarferð Lífið Nýjar upplýsingar um morðið á Hrafnhildi Lilju átján árum síðar Lífið Robert Irwin nýtti fríið og ferðaðist um Ísland Lífið Vonlaust að gagnrýna vini sína Lífið Hnýta í Trump í nýrri herferð: „Velkomin til skítalands“ Lífið Skemmtilega söguhornið: Hneykslanlegt að borða með gaffli frekar en puttunum Áskorun Krakkatía vikunnar: Hrekkjavaka, þjóðtrú og goðafræði Lífið Barn kom í heiminn á Vesturlandsvegi: „Þá er hún bara komin á fjóra fætur í Nissan Leaf-inum okkar“ Lífið 50+: Sjúkdómasamkeppnin í matarboðinu Áskorun Níutíu og einn meistari útskrifaðist Lífið Fleiri fréttir Robert Irwin nýtti fríið og ferðaðist um Ísland Vonlaust að gagnrýna vini sína Luku þrjátíu ára hjónabandi með skilnaðarferð Krakkatía vikunnar: Hrekkjavaka, þjóðtrú og goðafræði Hnýta í Trump í nýrri herferð: „Velkomin til skítalands“ Níutíu og einn meistari útskrifaðist Andri Snær keppir við Elizabeth Holmes Barn kom í heiminn á Vesturlandsvegi: „Þá er hún bara komin á fjóra fætur í Nissan Leaf-inum okkar“ Hrekkjavökukort sem sé drifið áfram af samfélaginu Nýjar upplýsingar um morðið á Hrafnhildi Lilju átján árum síðar Fréttatía vikunnar: Brasilía, Ofurskálin og Pútín Halla forseti var ekki heima þegar hann loks skilaði sér á leiðarenda Halla bað sáran áhrifavald um að ofgera sér ekki fyrir samfélagsmiðla Ráðherrar brugðu á leik og tóku lagið Nablinn hættur á leikskóla Keppast um að minnast Stewarts Hvað veistu um... Með allt á hreinu? Patrick Stewart látinn Erna Mist og Þorleifur selja „Nú erum við trúlofaðar dúllur“ Missti röddina á ögurstundu Barbara Barrie lést með aðstoð lækna Stefnir Eiði vegna meðlagsskuldar Sjáðu gjörbreyttan Kaffivagn úti á Granda Hvar eru Píratarnir sem fóru með himinskautum? Elliði Vignisson er eins og offitu-aktívisti „Ég ætla allavega að deyja á Íslandi“ Sjálfuglaður ráðherra og allt í boði mysu Sjóðheitar í ísköldu teiti „Eins og ein sál í tveimur líkömum“ Sjá meira
Barn kom í heiminn á Vesturlandsvegi: „Þá er hún bara komin á fjóra fætur í Nissan Leaf-inum okkar“ Lífið
Barn kom í heiminn á Vesturlandsvegi: „Þá er hún bara komin á fjóra fætur í Nissan Leaf-inum okkar“
Barn kom í heiminn á Vesturlandsvegi: „Þá er hún bara komin á fjóra fætur í Nissan Leaf-inum okkar“ Lífið