Blóðtaka hjá Al-Qaeda 27. september 2004 00:01
Al-Qaeda samtökin í Pakistan urðu fyrir mikilli blóðtöku í gær þegar einn æðsti leiðtogi þeirra var drepinn í skotbardaga. Erlend sendiráð, opinberar stofnanir og bænastaðir eru í viðbragðsstöða af ótta við hefndarverk. Það voru pakistanskir félagar í öryggissveitum sem skutu Amjad Hussain Farooqi, einn æðsta leiðtoga al-Qaeda í Pakistan, til bana í tveggja klukkustunda löngum skotbardaga í gær. Tveir menn voru handteknir og í kjölfar þess hafa enn fleiri verið handteknir víðsvegar um landið. Allt eru það meintir íslamskir skæruliðar og hryðjuverkamenn. Farooqi var meðal annars sakaður um að hafa skipulagt tilræði við Pervez Musharraf, forseta Pakistans, auk morðsins á blaðamanninum Daniel Pearl. Hann er sagður hafa verið öflugur í að safna nýliðum og fótgönguliðum. Yfirvöld höfðu lagt ríflega 300 þúsund dollara til höfuðs honum, eða hátt í 25 milljónir króna. Viðvaranir voru sendar til erlendra sendiráða, opinberra stofnana og bænastaða þar sem talin er hætta á hefndarverkum. Pakistönsk yfirvöld telja handtökurnar ekki einungis valda uppnámi innan al-Qaeda heldur geti þær leitt til þess að takist að uppræta stjórn samtakanna í Pakistan. Höfuðpaurar al-Qaeda, þar á meðal Ósama bin Laden, eru sagðir í felum á landamærum Pakistans og Afganistans.
Erlent Fréttir Mest lesið Kveiksþætti kippt út tímabundið Innlent Hildi og Inga Þór sagt upp Innlent Ráðin til þess að fremja ofbeldisbrot á Íslandi Innlent Rannsaka komu mögulegra launmorðingja hingað til lands Innlent Minnst 64 sagðir látnir í árekstri hraðlesta á Spáni Erlent Afkomendur síðasta böðuls á Íslandi búa enn á Illugastöðum Innlent Kattahland og skítur á gólfum og upp eftir veggjum Innlent Saslauskas og Sodys stálu 100 milljónum: Gucci-taska, dýrar dúnúlpur og 68 vitorðsmenn Innlent Telur starfsmenn hæfa til að meta stjórnsýslu yfirmanns síns Innlent Google gerir athugasemdir við frumvarp Ingu Innlent Fleiri fréttir Stýrivextir óbreyttir og stutt í kosningar Skipverjar skemmtiferðaskips sitja fastir í Kambódíu Senda þúsund hermenn til Haítí eftir umsátur Kerfisvilla og mannleg mistök leitt til slyssins Fleiri gamalmenni en börn í Kína Sátu undir sögufyrirlestri Pútíns Báðir vilja mynda ríkisstjórn en ekki vinna með aröbum Minnst 64 sagðir látnir í árekstri hraðlesta á Spáni Opinberuðu lögbrot í kjúklingabúi með falinni myndavél Ted Bundy tengdur við 52 ára gamalt óleyst morð Meirihluti atkvæða talinn en enginn með þingmeirihluta Tekur við Bolsonaro opnum örmum Munda fallbyssurnar við landamærin Enginn skýr sigurvegari í útgönguspám Efins um „einkaframtak Norðmanna og Finna“ Tveir ákærðir vegna uppákomu við bandaríska herstöð á Englandi Ákæra Comey enn eina ferðina Stubb og Støre ræddu við Pútín Fóðruðu loftslagsvá aðeins minna en metárið á undan Kjörstaðir opnir í Ísrael Óljóst hver mun leiða ríkisstjórn Stúdenta í Serbíu Trump segir svindlað í brasilísku kosningunum Kosningar í Ísrael: Arabaflokkarnir gætu ráðið úrslitum Biskupar sjá eftir bænastund með Trump Fundu 31 byssu, Hitler-brjóstmynd og danskan fána Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Stór hluti Oxford Street orðinn göngugata Sagðir vilja fá Orbán til að stýra Sameinuðu þjóðunum Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Tókst ekki moða neitt úr miðjunni Sjá meira