Endurfundir liðhlaupa 9. júlí 2004 00:01
Bandarískur liðhlaupi í Norður-Kóreu hitti í dag japanska eiginkonu sína í fyrsta sinn í tvö ár í Indónesíu. Allar líkur eru á að hann verði að snúa aftur til Norður-Kóreu en hún til Japans; þeim virðist ekki skapað nema að skilja. Árið 1965 var Charles Jenkins 24 ára gamall liðþjálfi í Bandaríkjaher, staðsettur í Suður-Kóreu. Kalda vetrarnótt heyrðu undirmenn hans þrusk, og Jenkins ákvað að kanna hvað það væri. Eftir það hvarf hann, en skaut upp kollinum skömmu síðar norðanmegin landamæranna. Bandaríkjastjórn segir að hann sé liðhlaupi, en ættingjar hans telja að honum hafi verið rænt og hann heilaþveginn. Í Norður-Kóreu kvæntist hann japanskri konu árið 1980, en henni hafði verið rænt frá Japan. Saman eignuðust þau tvær dætur. Hvað Jenkins hefur aðhafst undanfarna fjóra áratugi í Norður-Kóreu er á reiki, en talið er að hann hafi starfað með áróðursmeisturum stjórnvalda og notið mikilla forréttinda. Árið 2002 yfirgaf eiginkonan, Hitomi Soga, Norður-Kóreu ásamt fleiri Japönum sem rænt hafði verið, en fjölskylda hennar varð eftir. Í dag hittust þau í Indónesíu, þar sem miklir fagnaðarfundir urðu. Jenkins og dætur hans fóru með leyfi norður-kóreskra yfirvalda, enda gert ráð fyrir því að þau snúi þangað á ný. Eiginkonan Hitomi vonar þó að henni takist að telja Jenkins á að koma með til Japans, en hann er sagður óttast að verða framseldur til Bandaríkjanna. Óljóst er hvert næsta skref verður, og hvernig þessi óvenjulega fjölskyldusaga endar.
Erlent Fréttir Mest lesið Útgrátin og brotin frammi fyrir öllum Innlent Hafi loks slíðrað sverðin Innlent Starfsmenn séu eltir heim og lífi þeirra ógnað Innlent Skringileg túlkun að hinsegin fáninn sé útilokandi Innlent Stjórnendur Sorpu slegnir Innlent Lét maka vinna fyrir sig í skólanum Innlent Samþykkja sölu á hundruðum Patriot-flauga Erlent Umferðarslys í Bolungarvík Innlent Ökumenn beðnir um að aka sérstaklega varlega Innlent Ósáttir sendlar bjóða Wolt fram aðstoð sína Innlent Fleiri fréttir Stjórnlagadómstóll Póllands sakar stjórnvöld um valdarán Búa sig undir þriðju helgi mótmæla Samþykkja sölu á hundruðum Patriot-flauga Skoða hvort konum hafi verið smyglað í sumarbúðir kóngafólksins „Ég hafði ekki séð fyrir mér líf eftir þessa nótt“ „Þeir drápu okkur“: Einum síðasta frjálsa fjölmiðli Rússlands lokað „Þú ert ógeðslegur, komdu þér í form“ Hófu aftur árásir á olíuvinnslur eftir blóðbað Sveppamorðingi fær enga reynslulausn Flókið stjórnarmyndunarferli fram undan í Ísrael Sagður hafa átt í samskiptum við kínverskan njósnara Óvænt ákvörðun þingforsetans reitir vinstrimenn til reiði Tvö mannskæð slys vekja upp spurningar um öryggi Hafnar ásökunum um kosningasvindl Blóðbað á lestarpalli Krefjast enn að forsetinn verði dæmdur til dauða Þriggja daga þjóðarsorg hafin á Spáni Telja síðustu atkvæðin í Ísrael Stýrivextir óbreyttir og stutt í kosningar Skipverjar skemmtiferðaskips sitja fastir í Kambódíu Senda þúsund hermenn til Haítí eftir umsátur Kerfisvilla og mannleg mistök leitt til slyssins Fleiri gamalmenni en börn í Kína Sátu undir sögufyrirlestri Pútíns Báðir vilja mynda ríkisstjórn en ekki vinna með aröbum Minnst 64 sagðir látnir í árekstri hraðlesta á Spáni Opinberuðu lögbrot í kjúklingabúi með falinni myndavél Ted Bundy tengdur við 52 ára gamalt óleyst morð Meirihluti atkvæða talinn en enginn með þingmeirihluta Tekur við Bolsonaro opnum örmum Sjá meira