Ofmátu vopnabúnað stórlega 9. júlí 2004 00:01
Leyniþjónustan CIA veitti rangar upplýsingar í aðdraganda Íraksstríðsins. Þetta er niðurstaða bandarískrar þingnefndar sem kannað hefur forsendur stríðsins. Skýrsla rannsóknarnefndar Bandaríkjaþings er harðorð í garð sérfræðinga CIA, en nefndin segir hálfgerða múgæsingu hafa leitt til þess, að kolrangar upplýsingar voru kynntar sem blákaldar staðreyndir og vafasamar ályktanir dregnar. Að mati nefndarmanna náði þessi hóphugsun, eins og þeir kalla það, til leyniþjónustna allra þjóða sem tóku þátt í stríðsrekstrinum. Því hafi allir komist meira og minna að sömu, röngu niðurstöðunum. Pat Roberts, formaður rannsóknarnefndarinnar, sagði að nú vissu þeir að þessar ályktanir hefðu verið rangar, óskynsamlegar og byggðust að mjög takmörkuðu leiti á fyrirliggjandi upplýsingum. Reynt sé að skýra út í skýrslu nefndarinnar hvernig þetta gat farið svona. Jay Rockefeller, varaformaður rannsóknarnefndarinnar, sagði engan vafa leika á því að mistökin sem voru gerð fyrir innrásina í Írak væru á meðal alvarlegustu upplýsingabresta í sögu bandarísku þjóðarinnar. Það væri staðreynd að ríkisstjórnin á öllum stjórnsýslustigum hafi notaði vafasamar upplýsingar til að færa rök fyrir stríði. Hann sagði að þingið hefði aldrei heimilað þetta stríð með 76 atkvæða mun ef þingmenn hefðu vitað þá það sem nú liggur fyrir. Rockefeller sagði einnig að fyrir vikið hefði trúverðugleiki Bandaríkjanna beðið hnekki og stríðið leitt til djúpstæðs haturs meðal múslíma. Við annan tón kvað hjá Bush forseta sem sagði að allir hefðu haldið að vopnabúr myndu finnast í Írak. Saddam hefði haft burði til að framleiða vopn og vitað var að hann hatar Bandaríkin
Erlent Fréttir Mest lesið Útgrátin og brotin frammi fyrir öllum Innlent Hafi loks slíðrað sverðin Innlent Starfsmenn séu eltir heim og lífi þeirra ógnað Innlent „Það er bara mjög sorglegt“ Innlent Stjórnendur Sorpu slegnir Innlent Operation Matrix: Fjölmörg burðardýr fluttu inn minnst 100 kíló af kókaíni Fréttir Lét maka vinna fyrir sig í skólanum Innlent Samþykkja sölu á hundruðum Patriot-flauga Erlent Umferðarslys í Bolungarvík Innlent Kennarar boðaðir á fund hjá sáttasemjara Innlent Fleiri fréttir Stjórnlagadómstóll Póllands sakar stjórnvöld um valdarán Búa sig undir þriðju helgi mótmæla Samþykkja sölu á hundruðum Patriot-flauga Skoða hvort konum hafi verið smyglað í sumarbúðir kóngafólksins „Ég hafði ekki séð fyrir mér líf eftir þessa nótt“ „Þeir drápu okkur“: Einum síðasta frjálsa fjölmiðli Rússlands lokað „Þú ert ógeðslegur, komdu þér í form“ Hófu aftur árásir á olíuvinnslur eftir blóðbað Sveppamorðingi fær enga reynslulausn Flókið stjórnarmyndunarferli fram undan í Ísrael Sagður hafa átt í samskiptum við kínverskan njósnara Óvænt ákvörðun þingforsetans reitir vinstrimenn til reiði Tvö mannskæð slys vekja upp spurningar um öryggi Hafnar ásökunum um kosningasvindl Blóðbað á lestarpalli Krefjast enn að forsetinn verði dæmdur til dauða Þriggja daga þjóðarsorg hafin á Spáni Telja síðustu atkvæðin í Ísrael Stýrivextir óbreyttir og stutt í kosningar Skipverjar skemmtiferðaskips sitja fastir í Kambódíu Senda þúsund hermenn til Haítí eftir umsátur Kerfisvilla og mannleg mistök leitt til slyssins Fleiri gamalmenni en börn í Kína Sátu undir sögufyrirlestri Pútíns Báðir vilja mynda ríkisstjórn en ekki vinna með aröbum Minnst 64 sagðir látnir í árekstri hraðlesta á Spáni Opinberuðu lögbrot í kjúklingabúi með falinni myndavél Ted Bundy tengdur við 52 ára gamalt óleyst morð Meirihluti atkvæða talinn en enginn með þingmeirihluta Tekur við Bolsonaro opnum örmum Sjá meira