Nú liggja Danir í því 21. nóvember 2004 00:01 MYND/Vísir
Hundruð Dana eru öskureiðir vegna umdeildra póstkorta frá lífeyrissjóði þeirra. Talsmaður sjóðsins biðst afsökunar og segir fyrirtækið hafa farið yfir strikið. Póstkortið er stílað á karlmanninn á heimilinu en vekur meiri athygli og jafnvel reiði hjá unnustum og eiginkonum, þegar það svífur inn um bréfalúguna eða póstkassann. Það lítur út eins og auglýsingapóstkort á framhliðinni, en á bakhliðinni eins og handskrifað póstkort. Þar stendur:„Hæ sæti. Takk kærlega fyrir síðast. Þó það sé orðið langt síðan hef ég ekki getað hætt að hugsa um þig. Ég verð að hitta þig aftur.“ Með kortinu fylgir símanúmer og undir það skrifar kvenmaðurinn „Kirsten“. Í fréttum danska ríkissjónvarpsins í gærkvöldi var viðtal við stúlku sem sagðist hafa orðið græn af öfund, hringt í kærastann og hundskammað hann fyrir framhjáhald. Hann kom af fjöllum og það var ekki fyrr en parið hringdi í símanúmerið á kortinu sem hið sanna kom í ljós: „Vonandi olli kortið ekki fjaðrafoki á heimilinu,“ segir blíð kvenmannsröddin á þrjátíu sekúndna símsvara þar sem kemur fram að lífeyrissjóðurinn PenSam hafi sent kortið. Sjóðurinn er sagður vilja tryggja viðskiptavinum sínum heilbrigt og langt líf og vonast er til að þeir sem hringi gefi sér tíma til að fara inná vef sjóðsins til að kynna sér málið nánar. Í sjónvarpsfréttum í gærkvöldi kom fram að fleiri hundruð viðskiptavinir hafi hringt og kvartað yfir póstkortunum. Talsmaður lífeyrissjóðsins sagði að kortin hafi átt að vera skemmtileg en augljóst sé að skotið hafi verið yfir markið og eru viðskiptavinir beðnir velvirðingar á hrekknum.
Erlent Fréttir Mest lesið Vaktin: Bandero hrellir Hval 9 Innlent Sætir morðhótunum og óhróðri í vinsælum Facebook-hópi Innlent Bílstjóri horfði á skelfingu lostinn Innlent Gabríel Douane og fimm aðrir sýknaðir Innlent „Hún drap börnin“ Erlent Tugir tilkynninga í viku: „Þetta var ekki í fyrsta skipti sem þau voru handtekin“ Innlent Gunnar Þórðarson er látinn Innlent Okkar McCartney, okkar Bach kveður Innlent Heilum gámi af kampavíni stolið af Ölgerðinni Innlent Horfðu á bílinn velta niður fjallið Innlent Fleiri fréttir „Hún drap börnin“ „Það sem hann gerði, ég get aldrei endurgoldið það“ Nítján ára Norðmaður dæmdur fyrir að taka að sér leigumorð á Englandi Bandaríkjamaður sagður smygla vopnum og málaliðum til Súdan Rússnesk stýriflaug líklega lent í Póllandi Segjast hafa gert harða hríð að byltingarverðinum Minnst þrjátíu látnir í Japan Fjögur börn látin eftir loftárásir Rússa á borgir Úkraínu Neitaði að svara spurningum þingmanna Leita enn í rústunum í Japan „Við ætlum að fokking lúskra á þeim“ Stofnandi Telegram ákærður og eftirlýstur í Rússlandi Tuttugu drengir á Gothia Cup týndir Ebólan komin í metstærð á mettíma Nýr forseti hét því að beita hernum gegn glæpum Þrettán látnir hið minnsta í Japan Írönum hótað hefndum eftir árás á herstöð Bandaríkjanna Ræddu Patriot-flaugar og friðarviðræður Vill að RFK gangi harðar fram gegn bólusetningum Fólk fast í verslunarmiðstöð eftir skjálftann í Japan „Við munum ná markmiðum okkar“ Vilja að Hæstiréttur taki afstöðu Stukku fram af Geimnálinni Johnson & Johnson greiðir 693 milljarða króna vegna málsókna Bandarískir hermenn ekki látnir svara til saka á Bretlandseyjum Skjálfti að stærð 7,1 skók Japan Áhyggjur uppi vegna nýrrar brúar milli Rússlands og Norður-Kóreu Árásirnar haldi áfram skili viðræðurnar ekki sínu Önnur hitabylgja nálgast Spán Kveiktu í tveimur moskum Sjá meira