Spilar með Dido og Phil Collins 23. júní 2004 00:01 "
Ég er nýkominn heim frá LA þar sem ég skaut af byssu í fyrsta skipti í The LA Gun Club. Það var mjög gaman og nú skil ég Phil Spector betur en áður," segir Barði Jóhannson í Bang Gang en hljómsveitinni hefur verið boðið að koma fram á Arezzo wave tónlistarhátíðinni á Ítalíu þann 8. júlí næstkomandi. Hátíðin er mjög stór og það segir sitt að í fyrra sóttu hana um 200.000 manns. Bang Gang mun leika á aðalsviðinu og verður ekki með ómerkari hljómsveitum en Cypress Hill og Black Rebel Motorcycle Club. Barði segist ekki hafa spilað mikið á festivölum en segir þó að sér líki það ágætlega. "Hingað til hafa þetta bara verið lítil festivöl með nokkrum böndum en það hefur verið mjög gaman." Viku seinna eða 14. júlí verður Bang Gang svo á einni elstu og virtustu hátíð í Evrópu, Montreaux Jazz Festival í Sviss, þar sem hljómsveitin spilar í Miles Davis Hall ásamt strengjakvartett úr Sinfóníuhljómsveit Íslands. Meðal annarra listamanna sem verða á hátíðinni í ár eru Dido, Korn, Alicia Keys, Sean Paul, Air, B.B. King, Herbie Hancock, Phil Collins og fleiri. Hitt er annars að frétta af Bang Gang að hljómsveitin er nýkomin af tónlistarhátíðinn Les Nouts Botanique í Brussel þar sem hún spilaði með hljómsveitunum Divine Comedy og The High Llamas í Cirque Royal sem er gamalt leikhús byggt fyrir sitjandi gesti. Lag hljómsveitarinnar, Stop in the name of love, hefur verið vinsælt í Evrópu og komst meðal annars á topp MTV í Ítalíu og platan Something Wrong hefur selst vonum framar. Barði segir að það sé ekki ráðgert að spila á Íslandi í náinni framtíð. "Kannski í ágúst, mig hefur lengi langað til að spila út á landi, taka svona fimm staða túr. Annars er ég núna á fullu við að semja músík við sænska bíómynd frá 1920 sem nefnist Haxan en ég mun svo spila undir myndinni í París næsta laugardag og þeyta skífum í partýi eftir á."
Menning Mest lesið Sætti sig við að geta ekki breytt pabba sínum Lífið Opinbera haustrómantík á Spáni Lífið Digger grefur sína eigin gröf Gagnrýni Stefndu á 150 milljónir en einbýlið kostaði meira Lífið Framhald af manninum sem mátti ekki fara út með strákunum Lífið Ástarbréf til íslenskra költmynda Tónlist Fjörutíu ár frá stofnun Stöðvar 2: „Þetta varð milljónatjón“ Lífið Hvað veistu um... Nóbelsverðlaunin? Lífið Er Skúli Mog að selja túristum niðurgreitt kornsíróp? Lífið Alaska og Flóni hætt saman Lífið Fleiri fréttir Fjörutíu ár frá stofnun Stöðvar 2: „Þetta varð milljónatjón“ Stefndu á 150 milljónir en einbýlið kostaði meira „Ætli við endum ekki í einhvers konar fráhvörfum“ Sætti sig við að geta ekki breytt pabba sínum Opinbera haustrómantík á Spáni Framhald af manninum sem mátti ekki fara út með strákunum Hvað veistu um... Nóbelsverðlaunin? Alaska og Flóni hætt saman Saga Sig og Villi naglbítur eignuðust dóttur Verðlaunin ráðgáta og tilfinningin klikkuð Óþekkti sonurinn leitaði Herbert uppi Er Skúli Mog að selja túristum niðurgreitt kornsíróp? Vinsældirnar skipti miklu máli fyrir arfleifð Johns Snorra Simmi og Auddi mættust aftur á skjánum Eva Marie Saint er látin Ung og upprennandi: „Pabbi segir mér alveg að hætta þessu“ „Það væri ekki hægt að skrifa þetta handrit“ Minntist pabba síns Johns Snorra: „Að sjálfsögðu hringdi ég í pabba!“ Dagbók lögreglu: Próflaus eineygður ökumaður flúði af vettvangi Grétu af gleði þegar þær hittust loksins Stjörnurnar þefuðu á Kjarval Ice Spice og Millie skelltu sér í pottinn Hvað veistu um... íslenska hönnun? Funheit í fimm ára afmæli Engum brögðum beitt í útgáfuhófi Bragðs Tendra friðarsúluna í tuttugasta sinn Elegant herrar selja perlu í 101 Tískudrottningar fögnuðu kærkominni opnun Dorrit um skilnaðinn: „Líf mitt er algjörlega á hvolfi“ Barnsfaðir Gypsy Rose fannst látinn Sjá meira