Over the Rainbow besta lagið 23. júní 2004 00:01
Lagið Over the Rainbow úr myndinni The Wizard of Oz frá árinu 1939 hefur verið valið besta kvikmyndalag sögunnar af Bandarísku kvikmyndastofnuninni. Samanstendur hún af 1500 leikurum, kvikmyndagerðarmönnum, gagnrýnendum og fleiri áhrifamönnum í Hollywood. Það var Judy Garland í hlutverki sveitastúlkunnar frá Kansas, Dorothy Gale, sem söng lagið svona eftirminnilega. Lagið As Time Goes By úr Casablanca lenti í öðru sæti og Singin´ in the Rain úr samnefndri mynd í því þriðja. Listinn nær yfir 100 lög en alls voru 400 tilnefnd. Þetta er ekki í fyrsta sinn sem Over the Rainbow hlýtur titil sem þennan því árið 2001 var lagið valið það besta á síðustu öld ásamt White Christmas í flutningi Bing Crosby. Listasamtök Bandaríkjanna og Samtök upptökustjóra stóðu að því vali. "Lagið á skilið að vinna. Það er eitt af þessum stórkostlegu lögum," sagði tónlistarmaðurinn Burt Bacharach. "Tilfinninganæmur flutningur Judy Garland er ótrúlegur. Ég fæ gæsahúð í hvert sinn sem ég hlusta á það." Bacharach á sjálfur tvö lög á listanum. Annars vegar Raindrops Keep Falling on My Head (23. sæti) úr Butch Cassidy and the Sundance Kid og Arthur´s Theme (Best That You Can Do (79. sæti) úr gamanmyndinni Arthur. "Kvikmyndir og tónlist eru svo innilega tengd saman. Jafnvel áður en hljóð kom í kvikmyndir voru lög látin hljóma undir þöglu myndunum," sagði Bob Gazzale hjá Bandarísku kvikmyndastofnuninni. Elsta lagið sem komst á listann er Isn´t It Romantic (73. sæti) úr myndinni Love Me Tonight frá árinu 1932, í flutningi Maurice Chevalier og Jeanette MacDonald. Nýjustu lögin eru aftur á móti All That Jazz (98. sæti) úr myndinni Chicago í flutningi Catherine Zeta-Jones og Renee Zellweger og Lose Yourself (93. sæti) úr 8 Mile með rapparanum Eminem.
Menning Mest lesið Sætti sig við að geta ekki breytt pabba sínum Lífið Opinbera haustrómantík á Spáni Lífið Digger grefur sína eigin gröf Gagnrýni Stefndu á 150 milljónir en einbýlið kostaði meira Lífið Framhald af manninum sem mátti ekki fara út með strákunum Lífið Ástarbréf til íslenskra költmynda Tónlist Hvað veistu um... Nóbelsverðlaunin? Lífið Er Skúli Mog að selja túristum niðurgreitt kornsíróp? Lífið Alaska og Flóni hætt saman Lífið Eiginmennirnir fá „ahhsonna aðeins“ útreið Menning Fleiri fréttir Fjörutíu ár frá stofnun Stöðvar 2: „Þetta varð milljónatjón“ Stefndu á 150 milljónir en einbýlið kostaði meira „Ætli við endum ekki í einhvers konar fráhvörfum“ Sætti sig við að geta ekki breytt pabba sínum Opinbera haustrómantík á Spáni Framhald af manninum sem mátti ekki fara út með strákunum Hvað veistu um... Nóbelsverðlaunin? Alaska og Flóni hætt saman Saga Sig og Villi naglbítur eignuðust dóttur Verðlaunin ráðgáta og tilfinningin klikkuð Óþekkti sonurinn leitaði Herbert uppi Er Skúli Mog að selja túristum niðurgreitt kornsíróp? Vinsældirnar skipti miklu máli fyrir arfleifð Johns Snorra Simmi og Auddi mættust aftur á skjánum Eva Marie Saint er látin Ung og upprennandi: „Pabbi segir mér alveg að hætta þessu“ „Það væri ekki hægt að skrifa þetta handrit“ Minntist pabba síns Johns Snorra: „Að sjálfsögðu hringdi ég í pabba!“ Dagbók lögreglu: Próflaus eineygður ökumaður flúði af vettvangi Grétu af gleði þegar þær hittust loksins Stjörnurnar þefuðu á Kjarval Ice Spice og Millie skelltu sér í pottinn Hvað veistu um... íslenska hönnun? Funheit í fimm ára afmæli Engum brögðum beitt í útgáfuhófi Bragðs Tendra friðarsúluna í tuttugasta sinn Elegant herrar selja perlu í 101 Tískudrottningar fögnuðu kærkominni opnun Dorrit um skilnaðinn: „Líf mitt er algjörlega á hvolfi“ Barnsfaðir Gypsy Rose fannst látinn Sjá meira