Qurie áfram forsætisráðherra 20. júlí 2004 00:01
Forsætisráðherra Palestínu, Ahmed Qurie, hefur dregið afsögn sína til baka eftir að Yasser Arafat, forseti Palestínu, neitaði að samþykkja afsögnina. Arafat hefur mætt aukinni andstöðu á síðustu dögum og neitar að gefa eftir hervöld sín. Ahmed Qurei, sagði af sér í kjölfar þess að Arafat skipaði frænda sinn Moussa Arafat yfir öryggismál á heimastjórnarsvæðunum. Moussa hefði þar með öðlast völd yfir hernum sem nú falla einnig undir stjórn Arafats. Auk þess taldi Qurei að ástandið á Gaza einkenndist af stjórnleysi og að Arafat væri ekki að gera það sem í valdi hans stæði til að stemma stigu við ofbeldi né að hann einbeitti sér nægjanlega að umbótum til að bæta líf fólks á heimastjórnarsvæðunum. Þetta er ekki í fyrsta sinn sem Arafat er sakaður um að hafa ekki haft hagsmuni almennra borgara í fyrirrúmi og hann hefur þótt heldur ósveigjanlegur þegar sest hefur verið að samningaborðinu. Eftir mótmælagöngur í Gaza gaf Arafat eftir og tók stöðuveitingu frænda síns til baka. Qurei hefur fengið leyfi til að stokka upp í ríkisstjórninni og Bandaríkjastjórn og Sameinuðu Þjóðirnar reyna nú að fá Arafat til þess að samþykkja að yfirstjórn hersins verði færð undan hans persónulega valdi og yfir til miðstjórnar palestínsku heimastjórnarinnar. Arafat þykir ekki líklegur til þess að gefa eftir öryggisveitirnar því hann telur þær vera of mikilvægan hluta af valdi sínu. Mikið hefur verið talað um það að vinsældir Arafats hafi dvínað en þátttaka í mótmælum um helgina var ekki mikil, einungis um nokkur hundruð manns safnaðist saman á götum úti. Flestir þeirra tilheyrðu reyndar hreyfingu Arafats, Fatah hreyfingunni sem voru að berjast gegn aukinni spillingu. Almennt er þó talið að Palestínumenn álíti Arafat enn réttkjörinn leiðtoga sinn. Kofi Annan sagði við fréttamenn í gær að hann teldi tíma vera kominn fyrir Arafat að setjast niður og hlusta á aðra meðlimi í ríkisstjórnar Palestínu. Bandaríkjastjórn segir Arafat ekki vera hjálplegan í því að reyna að koma á friði á heimastjórnarsvæðunum. Að sögn Saeb Erakat, aðalsamningamanni Palestínustjórnar eru Palestínumenn orðnir langþreyttir á slæmum lífsgæðum og vilja nú umfram allt sjá umbætur.
Erlent Fréttir Mest lesið Stjórnendur Sorpu slegnir Innlent „Þú ert ógeðslegur, komdu þér í form“ Erlent Lét maka vinna fyrir sig í skólanum Innlent Mikilvægt að styggja fólk ekki með orðalagi Innlent „Burt með bölvað ofstækið“ Innlent Heimir Már biðst afsökunar á orðum sínum Innlent Veltir fyrir sér hvort Viðskiptaráð haldi að Íslendingar séu hálfvitar Innlent „Mínar skoðanir skipta í þessu máli litlu“ Innlent Wolt kærir hótanir til lögreglu Innlent Útilokar ekki verkfall eftir útspil sem kom eins og þruma úr heiðskíru lofti Innlent Fleiri fréttir Skoða hvort konum hafi verið smyglað í sumarbúðir kóngafólksins „Ég hafði ekki séð fyrir mér líf eftir þessa nótt“ „Þeir drápu okkur“: Einum síðasta frjálsa fjölmiðli Rússlands lokað „Þú ert ógeðslegur, komdu þér í form“ Hófu aftur árásir á olíuvinnslur eftir blóðbað Sveppamorðingi fær enga reynslulausn Flókið stjórnarmyndunarferli fram undan í Ísrael Sagður hafa átt í samskiptum við kínverskan njósnara Óvænt ákvörðun þingforsetans reitir vinstrimenn til reiði Tvö mannskæð slys vekja upp spurningar um öryggi Hafnar ásökunum um kosningasvindl Blóðbað á lestarpalli Krefjast enn að forsetinn verði dæmdur til dauða Þriggja daga þjóðarsorg hafin á Spáni Telja síðustu atkvæðin í Ísrael Stýrivextir óbreyttir og stutt í kosningar Skipverjar skemmtiferðaskips sitja fastir í Kambódíu Senda þúsund hermenn til Haítí eftir umsátur Kerfisvilla og mannleg mistök leitt til slyssins Fleiri gamalmenni en börn í Kína Sátu undir sögufyrirlestri Pútíns Báðir vilja mynda ríkisstjórn en ekki vinna með aröbum Minnst 64 sagðir látnir í árekstri hraðlesta á Spáni Opinberuðu lögbrot í kjúklingabúi með falinni myndavél Ted Bundy tengdur við 52 ára gamalt óleyst morð Meirihluti atkvæða talinn en enginn með þingmeirihluta Tekur við Bolsonaro opnum örmum Munda fallbyssurnar við landamærin Enginn skýr sigurvegari í útgönguspám Efins um „einkaframtak Norðmanna og Finna“ Sjá meira