Erlent

Var ekki sleppt eins og talið var

Mannræningjar í Írak neituðu seint í gær að hafa sleppt filipseyskum gísl sínum og hótuðu enn á ný að afhöfða manninn yrðu friðargæsluliðar frá Filipseyjum ekki kallaðir heim innan sólarhrings. Í gær var talið að manninum hefði verið sleppt, þar sem forseti Filipseyja sagði umboð fimmtíu friðargæsluliða í Írak ekki verða framlengt, og þeir kæmu því heim á næstunni. Einnig er óttast um örlög tveggja búlgarska gísla, en ekkert hefur frést frá þeim sem rændu mönnunum. Írakskur túlkur fyrir hersetuliðið fannst skorinn á háls í bænum Kirkur í gær, og lögreglustjóri bæjarins særðist illa þegar byssumenn skutu á hann úr bifreið á ferð.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×