Tvö þúsund ókeypis myndasögur 3. júlí 2004 00:01 "
Við ætlum að gefa tvö þúsund myndasögublöð í dag," segir Pétur Yngvi Yamagata í versluninni Nexus en tilefnið er alþjóðlegi dagurinn "Free comic book day" eða "dagur ókeypis teiknimyndasagna". Dagurinn hefur verið haldinn hátíðlegur síðastliðin þrjú ár og í dag ætla myndasöguverslanir um allan heim að gefa fólki fleiri milljónir af nýjum teiknimyndasögum. En þessi dagur hefur það að markmiði að kynna myndasöguflóru 21. aldarinnar fyrir sem flestum og vinna gegn stöðluðum hugmyndum um hvað teiknimyndasögur eru. Ísland tók í fyrsta sinn þátt í alþjóðlega teiknimyndasögudeginum í fyrra. "Þá heimsóttu fleiri hundruð manns okkur hingað í Nexus og við fengum íslenska myndasöguteiknara til að halda sýningu á verkum sínum í búðinni en auk þess gáfum við fleiri þúsundir teiknimyndasagna. Í ár höfum við gefið út sérstakt blað sem nefnist Fabulous. Þar velja íslenskir spekúlantar fimm bestu teiknimyndasögur hinna og þessara landa og blaðið gefur góða mynd af menningunni sem ríkir í þessum blöðum." Pétur segir teiknimyndasögurnar vera framúrstefnulegan frásagnarmiðil. "Við seljum allt frá Spider-Man til japanskra ástarsagna," segir Pétur en vinsælasta efnið í búðinni er einmitt ástarsögurnar japönsku. "Það jafnast ekkert á við japanskan húmor en flokkurinn sem við seljum mest af nefnist Shounen-ai. Þetta eru blöð eftir japanskar konur en sögurnar fjalla um ástir samkynhneigðra karlmanna og eru svona Will og Grace með japönskum húmor." Í þeim tvö þúsund blöðum sem verða ókeypis í Nexus í dag kennir ýmissa grasa. "Blöðin byggjast sum hver á kvikmyndum, sjónvarpsþáttunum 24 og svo gefum við blöð með japönskum ástarsögum og gömlu hasarmyndahetjunum svo eitthvað sé nefnt. Blaðið Fabulous er líka ókeypis og því hefur verið dreift víðs vegar um höfuðborgina." Alli eru velkomnir í Nexus klukkan tvö í dag til að kynna sér teiknimyndasögumenninguna og þiggja ókeypis blöð.
Mest lesið Opinbera haustrómantík á Spáni Lífið Framhald af manninum sem mátti ekki fara út með strákunum Lífið Digger grefur sína eigin gröf Gagnrýni Hvað veistu um... Nóbelsverðlaunin? Lífið Er Skúli Mog að selja túristum niðurgreitt kornsíróp? Lífið Eiginmennirnir fá „ahhsonna aðeins“ útreið Menning Alaska og Flóni hætt saman Lífið Anne Carson hlýtur bókmenntaverðlaun Nóbels Menning Óþekkti sonurinn leitaði Herbert uppi Lífið Saga Sig og Villi naglbítur eignuðust dóttur Lífið Fleiri fréttir Sætti sig við að geta ekki breytt pabba sínum Opinbera haustrómantík á Spáni Framhald af manninum sem mátti ekki fara út með strákunum Hvað veistu um... Nóbelsverðlaunin? Alaska og Flóni hætt saman Saga Sig og Villi naglbítur eignuðust dóttur Verðlaunin ráðgáta og tilfinningin klikkuð Óþekkti sonurinn leitaði Herbert uppi Er Skúli Mog að selja túristum niðurgreitt kornsíróp? Vinsældirnar skipti miklu máli fyrir arfleifð Johns Snorra Simmi og Auddi mættust aftur á skjánum Eva Marie Saint er látin Ung og upprennandi: „Pabbi segir mér alveg að hætta þessu“ „Það væri ekki hægt að skrifa þetta handrit“ Minntist pabba síns Johns Snorra: „Að sjálfsögðu hringdi ég í pabba!“ Dagbók lögreglu: Próflaus eineygður ökumaður flúði af vettvangi Grétu af gleði þegar þær hittust loksins Stjörnurnar þefuðu á Kjarval Ice Spice og Millie skelltu sér í pottinn Hvað veistu um... íslenska hönnun? Funheit í fimm ára afmæli Engum brögðum beitt í útgáfuhófi Bragðs Tendra friðarsúluna í tuttugasta sinn Elegant herrar selja perlu í 101 Tískudrottningar fögnuðu kærkominni opnun Dorrit um skilnaðinn: „Líf mitt er algjörlega á hvolfi“ Barnsfaðir Gypsy Rose fannst látinn Stjörnulífið: „Lukka lífs míns að vera gift þessum“ Fæddist á Íslandi en þurfti áratugi til að fá það staðfest Fyndnustu dýralífsmyndir ársins Sjá meira