Óvænt valdaafsal 29. júní 2004 00:01
Bráðabirgðastjórn tók við óvænt við völdum í Írak í gær, tveimur dögum fyrr en áætlað hafði verið. Paul Bremer, landstjóri Bandaríkjamanna í Írak, afhenti nýjum stjórnvöldum skjöl um valdaafsalið í lítilli athöfn í höfuðstöðvum hernámsliðsins í gærmorgun. Um tveimur klukkustundum síðar yfirgaf Bremer Írak. Hundruð Íraka hafa látið lífið í átökum víðsvegar um landið á síðustu vikum. Áttu tilræðin að trufla áform Bandaríkjastjórnar um valdaafsal sem tilkynnt var um seint á síðasta ári. Vonast er til að valdaskiptin hafi jákvæð áhrif á Íraka sem hafa orðið sífellt óvinveittari hernámsliðinu. Bandarískir embættismenn vonast til að Írakar muni trúa því að nú stjórni þeir landinu og það muni skila sér í minni átökum. Bráðabirgðastjórn Íraka var svarin í embætti sex klukkustundum eftir valdaafsalið sem vestrænar ríkisstjórnir töldu nauðsynlegt skref í málefnum Íraks. Leiðtogar arabaheimsins lýstu hóflegri bjartsýni en lögðu áherslu á nauðsyn þess að Bandaríkjaher hyrfi frá Írak eins fljótt og auðið væri. George Bush Bandaríkjaforseti var staddur á leiðtogafundi NATO í Istanbúl og tók í hönd Tony Blair, forsætisráðherra Bretlands, eftir að valdaskiptin höfðu átt sér stað. Bush var á sunnudag kynnt að stjórn Allawi væri þess reiðubúin að taka við völdum í landinu. Bráðabirgðastjórn Íraks mun ekki verða við völd lengur en sjö mánuði en öryggisráð Sameinuðu þjóðanna hefur samþykkt að haldnar verði kosningar í landinu eigi síðar en 31. janúar næstkomandi. Völd bráðabirgðastjórnarinnar verða takmörkuð þrátt fyrir fullt sjálfstæði ríkisins og munu Bandaríkjamenn áfram sjá um öryggismál landsins. Um 155.000 hermenn eru staddir í Írak, þar af um 135.000 bandarískir. Samkvæmt skoðanakönnunum sem birtar voru í gær hefur bjartsýni Íraka á betra líf framundan minnkað umtalsvert á síðastliðnum mánuðum. Þá telur meirihluti Bandaríkjamanna valdaskiptin nú séu merki um að ekki hafi tekist upp sem skyldi í Írak. Engu að síður leggja þrír fjórðu Bandaríkjamanna blessun sína yfir valdaafsalið.
Erlent Fréttir Mest lesið Hafi loks slíðrað sverðin Innlent Útgrátin og brotin frammi fyrir öllum Innlent Starfsmenn séu eltir heim og lífi þeirra ógnað Innlent „Það er bara mjög sorglegt“ Innlent Operation Matrix: Fjölmörg burðardýr fluttu inn minnst 100 kíló af kókaíni Fréttir Stjórnendur Sorpu slegnir Innlent Lét maka vinna fyrir sig í skólanum Innlent Samþykkja sölu á hundruðum Patriot-flauga Erlent Kvikumagnið undir Svartsengi orðið mun meira en áður Innlent Umferðarslys í Bolungarvík Innlent Fleiri fréttir Stjórnlagadómstóll Póllands sakar stjórnvöld um valdarán Búa sig undir þriðju helgi mótmæla Samþykkja sölu á hundruðum Patriot-flauga Skoða hvort konum hafi verið smyglað í sumarbúðir kóngafólksins „Ég hafði ekki séð fyrir mér líf eftir þessa nótt“ „Þeir drápu okkur“: Einum síðasta frjálsa fjölmiðli Rússlands lokað „Þú ert ógeðslegur, komdu þér í form“ Hófu aftur árásir á olíuvinnslur eftir blóðbað Sveppamorðingi fær enga reynslulausn Flókið stjórnarmyndunarferli fram undan í Ísrael Sagður hafa átt í samskiptum við kínverskan njósnara Óvænt ákvörðun þingforsetans reitir vinstrimenn til reiði Tvö mannskæð slys vekja upp spurningar um öryggi Hafnar ásökunum um kosningasvindl Blóðbað á lestarpalli Krefjast enn að forsetinn verði dæmdur til dauða Þriggja daga þjóðarsorg hafin á Spáni Telja síðustu atkvæðin í Ísrael Stýrivextir óbreyttir og stutt í kosningar Skipverjar skemmtiferðaskips sitja fastir í Kambódíu Senda þúsund hermenn til Haítí eftir umsátur Kerfisvilla og mannleg mistök leitt til slyssins Fleiri gamalmenni en börn í Kína Sátu undir sögufyrirlestri Pútíns Báðir vilja mynda ríkisstjórn en ekki vinna með aröbum Minnst 64 sagðir látnir í árekstri hraðlesta á Spáni Opinberuðu lögbrot í kjúklingabúi með falinni myndavél Ted Bundy tengdur við 52 ára gamalt óleyst morð Meirihluti atkvæða talinn en enginn með þingmeirihluta Tekur við Bolsonaro opnum örmum Sjá meira