Tónlist

Landsmenn hvattir til að styðja "strákinn okkar"

Sannkölluð rokkstemmning virðist vera að myndast í landinu í kringum "strákinn okkar", Magna Ásgeirsson söngvara, sem hefur slegið í gegn í raunveruleikaþættinum Rockstar Supernova. Gengur nú tölvupóstur manna á milli þar sem fólk er hvatt til að styðja kappann svo hann falli ekki úr leik. Foreldrar hans vilja hins vegar fara að fá hann heim.

Tónlist

Bætist við dagskrá Iceland Airwaves

Dagskrá tónlistarhátíðarinnar Iceland Airwaves, sem fram fer í miðborg Reykjavíkur daganna 18-22 október, er óðum að taka á sig mynd. Þegar er búið að tilkynna um 70 listamenn og hljómsveitir sem koma munu fram á hátíðinni og nú eru kynntir til leiks tæplega 30 flytjendur til viðbótar.

Tónlist

Styttist í Innipúkann

Nú eru réttir 25 dagar í Innipúkann. Miðasala er hafin og hafa nú þegar selst um 200 miðar á hátíðina. Með þessu áframhaldi ætti að verða uppselt fljótlega. Miðasala fer fram á midi.is, í Skífubúðunum og í verslun Hive við Grensásveg.

Tónlist

Dýnamískur kraftur

Bandaríska kvennatríóið Sleater-Kinney heldur tónleika á Nasa á sunnudaginn. Sveitin hefur verið á ferð um Evrópu og haldið tónleika fyrir fullu húsi hvar sem hún hefur komið. Freyr Bjarnason ræddi við Corin Tucker, annan gítarleikara og söngvara sveitarinnar, og trommuleikarann Janet Weiss.

Tónlist

Kaiser Chiefs fékk þrenn verðlaun

Enska hljómsveitin Kaiser Chiefs fékk þrenn veðlaun á Brit-verðlaunahátíðinni í gærkvöld. Þá fengu Coldplay, James Blunt og Green Day tvenn verðlaun. Björk Guðmundsdóttir var tilnefnd sem besta alþjóðlega tónlistarkonan en Madonna hreppti þau verðlaun. Green Day var valin besta alþjóðlega sveitin og platan American Idiot var valin besta alþjóðlega platan. Þá sagði Chris Martin, forsprakki Coldplay, að hljómsveitin kynni að taka sér frí, en hvenær það yrði og hversu lengi, sagði hann ekkert um.

Tónlist

5000 manns á tónleikum Sigur Rósar í kvöld

Sigur Rós spilar í Laugardagshöll í kvöld og eru það lokatónleikar í tónleikaferð hljómsveitarinnar í ár. Þetta er í fyrsta sinn sem Sigur Rós spilar á Íslandi í þrjú ár og er nær uppselt á tónleikana. Búist er við að fimm þúsund manns mæti í höllina í kvöld til að sjá Sigur Rós og þarf að líta rúman áratug aftur til að sjá viðlíkan fjölda á tónleikum íslensks listamanns. Hljómsveitin amína hitar upp og spilar með Sigur Rós.

Tónlist

Frítt niðurhal á Vísi

Rokkbandið Sign kynnir hér á Vísi nýjustu smáskífu sína " A little bit" en laginu fylgir einnig forrit (U-myx) sem gerir kleift að endurhljóðblanda lagið. Þetta geta notendur gert eins oft og þá lystir og vistað útkomuna. Forritið er mjög einfalt í notkun og notendur verða fljótt snillingar í að re-mixa.

Tónlist

Waterloo besta Eurovision-lagið

Lagið Waterloo, sem hljómsveitin Abba flutti í Söngvakeppni evrópskra sjónvarpsstöðva árið 1974, var í gærkvöld valið Eurovision-lag allra tíma á hátíð, sem haldin var í Kaupmannahöfn en Eurovision hefur nú verið haldið 50 sinnum.

Tónlist

Gúrú prog-rokksins á Íslandi

Í áratugi var í tísku að draga prog-rokkið sundur og saman í háði í tónlistarblöðum. Pönkinu var beinlínis stefnt gegn þessari útblásnu tónlistarstefnu. Og sumt af þessu er örugglega dálítið kjánalegt; prog-rokkarar gerðu sér mjög háar hugmyndir um sjálfa sig og færni sína. En þetta er samt skemmtilegt...

Tónlist

Vinningshafi í Veðbankanum

Hlutskarpastur í Veðbanka ÍTV var Hjálmar Örn Guðmarsson með 35 stig og 12 flokka rétta. Viðtal verður við vinningshafann í Fréttablaðinu og hér á Vísi í þessari viku. Vísir, Icelandair og Landsbankinn þakkar öllum fyrir þátttökuna en um 9 þúsund manns tóku þátt.

Tónlist

Mugison kom, sá og sigraði

Tónlistarmaðurinn Mugison kom sá og sigraði á Íslensku tónlistarverðlaununum sem veitt voru í kvöld og fór heim með fern verðlaun. Mugison sigraði í flokkunum besta poppplatan, besta lagið, besta plötuumslagið og vinsælasti flytjandinn en kosning í síðasttalda flokknum fór fram hér á Vísi.

Tónlist

Lokahnykkurinn í vali á vinsælasta flytjandanum

Íslensku tónlistarverðlaunin verða afhent við hátíðlega athöfn í Þjóðleikhúsinu annað kvöld. Þá verður vinsælasti flytjandinn að mati almennings kynntur en netkosning fór fram hér á Vísi. Kosningunni lauk í kvöld og tóku rúmlega 5.000 manns þátt. Við tók síma- og SMS-kosning milli þeirra sem lentu í fimm efstu sætunum í netkosningunni.

Tónlist

Ríflega fimm þúsund kusu

Rúmlega fimm þúsund notendur Vísis tóku þátt í vali á vinsælasta tónlistarflytjandanum en kosningin fór fram hér á Vísi. Kosningunni lauk í kvöld og við tók síma- og SMS-kosning sem stendur fram að lokum hátíðar Íslensku tónlistarverðlaunanna sem fram fer í Þjóðleikhúsinu annað kvöld.

Tónlist

Raggi Bjarna á verðlaunahátíðinni

Árið 2004 var Ragnari Bjarnasyni gjöfult. Hann hélt uppá 70 ára afmæli sitt og gaf út plötu sem varð eins mesta selda plata síðustu ára. Um áramótin heiðraði svoForseti Íslands söngvarann farsæla með því að veita honum Fálkaorðuna

Tónlist

Veðbankinn opnaður

Landsbankinn, Icelandair og Vísir eru styrktaraðilar Íslensku tónlistarverðlaunanna sem verða afhent í Þjóðleikhúsinu 2. febrúar 2005. Þessi fyrirtæki standa nú fyrir þeirri nýjung að bjóða almenningi að giska á hver vinnur í hverjum flokki og eru vegleg verðlaun í boði fyrir þann sem nær flestum réttum. Einnig er hægt að taka þátt í kosningu á vinsælasta flytjanda íslands með netkosningu á visir.is og verða sérstök verðlaun veitt í þessum flokki á hátíðinni.

Tónlist

Stórviðburður í tónlistarlífinu

Á síðustu árum hefur umfang Íslensku tónlistarverðlaunanna aukist og eru þau nú glæsileg uppskeruhátíð alls tónlistarfólks í landinu. Í fyrra mældi Gallup áhorf á útsendingu Sjónvarpsins frá síðustu verðlaunahátíð og mældist samanlagt áhorf á útsendinguna 51 prósent. það er staðfesting á því að verðlaunin njóta virðingar ekki bara hjá tónlistarfólki heldur þjóðinni allri.

Tónlist

Styttist í tónlistarverðlaunin

Undirbúningur fyrir afhendingu Íslensku tónlistarverðlaunanna fyrir árið 2004 hefur staðið yfir frá því í haust. Verðlaunin verð afhent miðvikudaginn 2. febrúar í Þjóðleikhúsinu. Þetta verður í 11. skipti sem verðlaunin verða afhent og verður hátíðin sýnd í beinni útsendingu Sjónvarpsins.

Tónlist

Íslenskur tuddablús

Gítarleikarinn Smári Tarfur og söngvarinn Jenni úr Brain Police skipa hljómsveitina Hot Damn! Strákarnir spila rokkaðan blús og fyrsta lag þeirra hefur þegar fengið nokkra spilun. Lagið heitir hvorki meira né minna en Hot Damn That Woman is a Man.

Tónlist