Lífið

Gordon Ramsay straujaður niður

Sjónvarpskokkurinn kjaftfori Gordon Ramsay var fluttur á sjúkrahús eftir að hafa tekið þátt í góðgerðaleik í fótbolta á leikvangi Manchester United, Old Trafford.

Lífið

Opna Karrusel í Danmörku

Vinkonunum Sigríði Ellu Jónsdóttur, Hrafnhildi Guðrúnardóttur og Kristínu Kristjánsdóttur langaði að hrista upp verslunarflóru Kaupmannahafnar og opna verslunina Karrusel með íslenskri og erlendri hönnun í bland.

Lífið

Japanir skera hár sitt þegar þeir hafa lent í sorg

"Japanir skera hár sitt þegar þeir hafa lent í sorg og ætli þetta hafi ekki verið svipað móment hjá mér, segir Harpa Einarsdóttir fatahönnuður í einlægu forsíðuviðtalið í Lífinu, fylgiblaði Fréttablaðsins á morgun...

Lífið

Kjóllinn stal senunni

Leikkonan Diane Kruger, 35 ára, vakti mikla lukku á rauða dreglinum á kvikmyndahátíðinni í Cannes í Frakklandi...

Lífið

Drakk hráka úr Geir H. Haarde

Það er óhætt að segja að leikritið Pétur Gautur, sem var sýnt á stóra sviðinu í Þjóðleikhúsinu í gærkvöldi, hafi vakið mikla athygli. Leikstjóri verksins er Þorleifur Örn Arnarsson en honum til fulltingis var Símon Birgisson leikrýnandi Djöflaeyjunnar.

Lífið

Viðurkennir veikleika sína

Leikkonan Gwyneth Paltrow, 39 ára, var mynduð ásamt dóttur sinni, Apple, á sunnudaginn var í London. Þá má sjá hana uppábúna á leiðinni á góðgerðarsamkomu í sömu viku....

Lífið

Charlize orðin sérfræðingur í bleium

Leikkonan Charlize Theron segist vera orðin sérfróð um bleiuskipti eftir að hún eignaðist son sinn Jackson. "Ég elska bleiuskipti, ég lýg því ekki. Og ég er orðin svo góð í þeim að ég gæti gert það sofandi. Ég hef þurft að kaupa bleiur í ólíkum löndum, því Jackson er á kynningarferðalagi með mér, og nú kann ég að skipta á japönskum bleium, spænskum, enskum og þýskum bleium. Bleiur eru svolítið ólíkar á milli landa og ég er orðin sérfróð um þær allar,“ sagði leikkonan um hið nýja hlutverk sitt sem móðir.

Lífið

Silkimjúkt og sefandi

Asonat er samstarfsverkefni tveggja vel þekktra íslenskra raftónlistarmanna, Jónasar Þórs Guðmundssonar og Fannars Ásgrímssonar. Jónas hefur mest notast við aukasjálfið Ruxpin, en Fannar er annar helmingur dúósins Plastic Joy. Ruxpin hefur gefið út nokkrar fínar plötur bæði hjá hérlendum og erlendum plötufyrirtækjum, síðast kom Where Do We Float From Here? sem bandaríska útgáfan n5MD gaf út árið 2009. n5MD gefur líka út tónlist Asonat.

Gagnrýni

Stigu óvænt á svið með Bombay Bicycle Club

Brynja Bjarnadóttir og Þorbjörg Ósk Eggertsdóttir, tvítugir trúbadorar, eru nýkomnar heim til Íslands eftir sex vikna tónleikaferðalag um Evrópu. Stúlkurnar ferðuðust á eigin vegum til tíu landa og komu meðal annars óvænt fram með hljómsveitinni Bombay Bicycle Club í Amsterdam.

Lífið

Keppti í sænskum þætti

Dansarinn Linda Ósk Valdimarsdóttir var stödd í Svíþjóð fyrir helgi þar sem hún var við upptökur á sænska sjónvarpsþættinum Rampljuset. Þættirnir njóta mikilla vinsælda meðal sænskra ungmenna og hafa töluvert áhorf.

Lífið

Manúela mætir í Kolaportið

Tískuáhugamanneskjan, bloggarinn og annar eigandi fatamerkisins Malla Johansen, Manúela Ósk Harðardóttir stefnir að því að eyða næstkomandi sunnudegi í Kolaportinu. Þar ætlar hún að selja skó, töskur, fatnað og barnaföt.

Lífið

Vildi ekki flytja til Los Angeles

Sænska leikkonan Noomi Rapace veitti New York Times Magazine viðtal fyrir stuttu og ræðir meðal annars samband sitt og fyrrum eiginmanns síns, æskuárin á Íslandi og flutningana til Los Angeles.

Lífið

Frumsýnir frumburðinn

Söngkonan Jessica Simpson, 31 árs frumsýnir Maxwell dóttur sína og unnustans Eric Johnson, á forsíðu People tímaritsins...

Lífið

Victoria: Ég er ekki óhamingjusöm

Victoria Beckham, 38 ára, heldur því fram í forsíðuviðtali í þýska tímaritinu Interview að hún er alls ekki óhamingjusöm þrátt fyrir að líta út fyrir að vera frekar döpur þegar hún er mynduð hér og þar um heiminn...

Lífið

Of þreytt fyrir Tókýó

Lana Del Rey hætti við að halda tónleika í Tókýó í Japan vegna ofþreytu. Bandaríska söngkonan ætlaði að stíga á svið í Tókýó fyrr á árinu en frestaði tónleikunum þar til í maí. Núna þurfti hún aftur að biðja aðdáendur sína í Japan afsökunar.

Lífið

Cannes á enda

Það var öllu tjaldað til á lokakvöldi Kvikmyndahátíðarinnar í Cannes á mánudagskvöldið. Eftirsóttustu verðlaun hátíðarinnar, Gullpálminn, runnu til myndarinnar Amour eftir ástralska leikstjórann Michael Haneke en athygli vakti að Bandaríkin áttu engan fulltrúa meðal verðlaunahafa.

Lífið

Geislandi í gulu

Söngkonan Jennifer Hudson, 30 ára, brosti blítt þegar hún stillti sér upp á rauða dreglinum klædd í gulan topp og svartar buxur...ir.

Lífið

Vill vera sterkari fyrir barneignir

Leikkonan Cameron Diaz fer með eitt af aðalhlutverkunum í gamanmyndinni What to Expect When You Are Expecting þar sem hún leikur ólétta konu. Diaz telur að það þurfi sterkan kropp til að geta staðið undir álaginu sem fylgir meðgöngu.

Lífið

Flottasti kjóllinn á Cannes

Það voru margir fagrir kjólar sem voru frumsýndir á kvikmyndahátíðinni í Cannes þetta árið. Þessi Dior-kjóll sem leikkonan Diane Kruger klæddist á lokakvöldi hátíðarinnar sló aftur á móti alla hina út. Kjóllinn er dragsíður með stífu undirpilsi og því spurning hvernig Kruger hafi gengið að setjast niður í kjólnum þegar líða tók á kvöldið.

Tíska og hönnun

Kanye tekur fatastíl Kim í gegn

Fjölmiðlar og tískuspekúlantar hafa haft orð á því að fatastíll raunveruleikaþáttastjörnunnar Kim Kardashian hafi breyst til muna eftir að hún tók saman við rapparann Kanye West. "Kanye hefur rætt við Kim um fatastíl hennar og vill að hún verði líkari honum í klæðavali. Hann vill að hún þróist í tískufyrirmynd og hefur hvatt hana til að vera óhræddari þegar kemur að tísku,“ sagði heimildarmaður í viðtali við The Sun.

Lífið

450 hommar og lesbíur keppa í sundi í Reykjavík

„Við erum að tala um alveg 800 aukaeistu í bænum yfir þessa daga,“ segir Jón Þór Þorleifsson einn skipuleggjandi mótsins, en um 450 manns alls staðar að úr heiminum eru komnir hingað til lands til að taka þátt, 90% hommar og 10% lesbíur.

Lífið

Aftur til 1997

Svartklæddu mennirnir hafa engu gleymt. Þristurinn er skemmtileg viðbót við seríuna og er betri framhaldsmynd en önnur myndin. Will Smith er fæddur í sitt hlutverk og töffaraskapur Tommy Lee Jones hefur ekkert minnkað þó leikarinn sé nú á sjötugsaldri.

Gagnrýni

Inga kvaddi Nasa með tárum

„Þetta var fullkomið lokakvöld. Sérstaklega var ég ánægð með að Palli skyldi hafa átt síðasta sönginn í húsinu en það var mín ósk,“ segir Inga, framkvæmdastjóri og eigandi skemmtistaðarins Nasa, um Eurovisionpartý Páls Óskars þar síðastliðið laugardagskvöld.

Lífið

Heitustu pörin í Cannes

Það er búið að vera mikið um dýrðir á kvikmyndahátíðinni í Cannes í Frakklandi og að vanda hefur pressan valið heitustu pör hátíðarinnar.

Lífið