Lífið

Lönsj í bikiníi

Hótelerfinginn Paris Hilton er búinn að spóka sig í Miami upp á síðkastið. Hún fór í hádegismat með kærasta sínum, karlfyrirsætunni River Viiperi, í vikunni og var óhrædd við að sína smá hold.

Lífið

Reynir of mikið að vera sexí

Raunveruleikastjarnan Kim Kardashian hylur ekki mikið í nýjasta hefti franska tímaritsins Factice. Kim situr fyrir í ýmsum stellingum og klæðist aðeins nærfatnaði.

Lífið

Þyngdist um 27 kíló á fimm mánuðum

Leikarinn Chris Pratt lagði ýmislegt á sig til að leika lögfræðing í gamanmyndinni Starbuck sem er væntanleg í kvikmyndahús. Chris þurfti að þyngjast ansi mikið til að fá hlutverkið.

Lífið

Epískur trúlofunarhringur frá Playboy-kóngi

Playboy-módelið Crystal Harris var ekki feimin við að monta sig af trúlofunarhringnum sínum á Twitter í vikunni. Hringurinn er frá sjálfum Playboy-kónginum Hugh Hefner en samband þeirra hefur verið stormasamt.

Lífið

Glamúrmódel á snepplunum

Glamúrmódelið Chantelle Houghton ákvað að skella sér ærlega á lífið um helgina með vinum sínum. Hún drakk nóg af kampavíni og káfaði á vinkonum sínum.

Lífið

Vigtin segir ekki alla söguna

Þegar þú byrjar að hreyfa þig þá er gríðarlega mikilvægt að fylgjast með framförum hjá þér. Margir detta í þá gryfju að horfa bara á vigtina þegar markmiðið er að grenna sig. Jú það er nú alltaf gaman að sjá töluna fara niður á við í stað þess að þjóta upp úr öllu valdi. En vigtin segir þér ekki alla söguna, það má í rauninni segja það að ef þú ætlar bara að fylgjast með henni þá getur þú alveg átt von á því að verða pirruð og jafnvel gefst upp á því að hreyfa þig.  Hvað er ég að alhæfa núna? Jú þegar þú byrjar að hreyfa þig í fyrsta sinn eftir langa pásu þá fær líkaminn ákveðið sjokk. Þú keyrir þig út á hverri æfingunni á eftir annari og færð harðsperrur í hvert skipti. Þú ert alveg viss um að þú ert sko að rífa af þér kílóin. Þú ert búin að ákveða að vigta þig á 4 vikna fresti og það er komið að mælingadegi búmm þú stekkur á vigtina og sérð að þú ert kílói þyngri en fyrir 4 vikum síðan. Hvað gerðist eiginlega… ég sem var svo dugleg, búin að pína mig í heilan mánuð og það er enginn árangur? Þegar þú byrjar að æfa þá taka vöðvarnir við sér, þeir stækka, styrkjast, fá aukið þol og í flestum tilfellum þá líður þér betur og hefur meiri orku í gegnum daginn þó svo að við bölvum í hljóði þessum bévítans harðsperrum. Fyrsta mánuðinn þá er alls ekkert óalgengt að við byrjum á því að þyngjast örlítið. En þú munt sjá árangur erfiðisins ef þú gætir verulega að mataræðinu þínu og æfir reglulega.  Þannig í raun ertu búin að bæta þig gríðarlega. Kílóatalan á vigtinni þinni segir ekki alla söguna.  Horfðu í spegilin, hann hjálpar þér að meta hvort þú sért að ná árangri. Svo er alltaf gott að ummálsmæla sig 1x í mánuði og ekki verra að taka eins og eitt þol test á mánuði. Vertu með æfingadagbók. Skráðu niður þyngdir sem þú tekur af lóðum, endurtekningar, hversu mörg sett, klukkan hvað þú æfir. Með því að fylgast svona með þá hjálpar það þér að sjá árangurinn betur og á sama tíma skráðu niður hvernig þér líður eftir hverja æfingu.  Ég hef fulla trú á þér, en það sem skiptir mestu máli. Hefur þú trú á þér? 

Lífið

Eftirsóttasta kona veraldar

Stjarnan úr bíómyndinni The Hunger Games, lleikkonan Jennifer Lawrence, 22 ára, er eftirsóttasta kona veraldar samkvænt vefritinu AskMen.com en hún hlaut hvorki meira né minna en 2,4 milljónir atkvæða. Næst á eftir Jennifer í kosningunni voru leikkonan Mila Kunis, fyrirsætan Kate Upton, poppdrottningin Rihanna og leikkonan Emma Stone.

Lífið

Byggt á hljóðmúrsgrunni

Dream Central Station geta verið stolt af þessari frumraun, þó tónlistin sé væntanlega ekki allra. Platan er þægileg í hlustun, og minnir um margt á rólegri plötur Jesus & Mary Chain, sem er í fínu lagi.

Gagnrýni

Eminem spilar á Reading

Eminem hefur verið bókaður á tónlistarhátíðirnar í Reading og Leeds á næsta ári. Þetta verður í fyrsta sinn sem hann spilar á hátíðunum í rúman áratug, eða síðan 2001. Þá endaði hann tónleikana sína með því að syngja dúett með rokkaranum ófrýnilega, Marilyn Manson.

Tónlist

Sonur Jacksons æfir karate

Stjörnubarnið Blanket Jackson gerði vel við sig eftir karateæfingu vestan hafs og fékk sér ís eftir púlið. Blanket er sem kunnugt er sonur poppkóngsins sáluga Michaels Jacksons.

Lífið

Brjóstin mín eru verðlaunagripir

Glee-stjarnan Lea Michele er mjög svo glæsileg á forsíðu janúarheftis tímaritsins Marie Claire. Þessi 26 ára fjölhæfa stúlka deilir ýmsu með tímaritinu.

Lífið

Síbreytilegt Hyldýpi

Hópurinn Sublimi frumsýnir sviðsverkið Hyldýpi eftir Ragnheiði Hörpu Leifsdóttur í Gamla bíó á föstudag. Verkið er síbreytilegt og lagar sig að aðstæðum.

Menning

Ljómur í Garðakirkju

Tríóið Ljómur heldur jólatónleika í Garðakirkju næstkomandi sunnudag klukkan fimm. Á efnisskránni eru fjölbreytt klassísk jólalög, íslenskrar og erlendar Ave-Maríur og verk eftir Hreiðar Inga Þorsteinsson

Menning

Lífið við endalok heimsins

Steinskrípin er stórskemmtileg, spennandi, frumleg og hrollvekjandi saga sem vekur upp siðferðislegar spurningar um tengsl mannsins við náttúruna.

Gagnrýni

Nýtt andlit Mango

Velgengni ofurfyrirsætunnuar Miranda Kerr virðist engan endi ætla að taka en tilkynnt var í gær í Madrid á Spáni, að Kerr væri nýtt andlit fatakeðjunnar, Mango.

Tíska og hönnun

Þessari missti Leo af

Fyrirsætan Erin Heatherton sýndi flottan bikinílíkamann á ströndinni á St. Barts í myndatöku. Hún klæddist tveimur mismunandi bikiníum og sundbol í þessum morguntökum.

Lífið

Lifandi Barbie-dúkkur

Úkraínska Valeria Lukyanova, 21 árs, sem er kölluð lifandi Barbie-dúkkan, hefur loksins hitt jafningja sinn í Úkraínu seml lifir einnig fyrir að líta út eins og Barbie-dúkka. Nýja vinkona hennar heitir Olga Oleynik, 24 ára, sem er líka óvenjuleg í útliti og vexti eftir fjjölda lýtaaðgerða eins og Valeria.vinkonurnar kynntust fyrir fimm árum og hafa verið góðar vinkonur síðan. Þær líta á sig sem andlegar systur með sama áhugamál.

Lífið

Styttist í Superman - Ný stikla frumsýnd

Bandaríska kvikmyndaverið Warner Bros. hefur opinberað stiklu fyrir nýjustu kvikmyndina um Ofurmennið. Myndin ber heitið Man of Steel en það leikarinn Henry Cavill sem fer með aðalhlutverkið.

Lífið

Gjörbreytt Linda P

"Þetta er dáltið öðruvísi en vanalega en mér finnst gaman að breyta til," svarar Linda Pétursdóttir spurð út í myndirnar sem voru teknar af henni í gær þegar hún sat fyrir í myndatöku stórglæsileg að vanda.

Lífið