Lífið

Ætla aldrei að eignast börn og segja fólk afskiptasamt
Fólk sem hefur tekið ákvörðun um að eignast aldrei börn segir að konur verði fyrir meira aðkasti en karlar þegar kemur að barnleysi. Maður sem ákvað að fara í ófrjósemisaðgerð segir að heilbrigðiskerfið reyni að stýra fólki frá þeirri ákvörðun að fara í aðgerðina.

Stökkið: Keypti íbúð í Hafnarfirði en endaði í Brussel
Margrét Björnsdóttir býr í Brussel, Belgíu ásamt eiginmanni sínum Atla Má og þremur börnum þeirra þeim Sóleyju, Þorsteini Úlfi og Loka. Fjölskyldan flutti frá Íslandi til London og svo til Brussel vegna vinnuhaga Atla. Margrét hefur alltaf verið með mikla ævintýraþrá og hefur verið dugleg að ferðast í gegnum tíðina.

Tónleikar með Frikka Dór heima í stofu í kvöld
Friðrik Dór Jónsson flytur öll sín þekktustu lög ásamt lögum af nýjustu plötu hans í beinni útsendingu á Tal hér á Vísi fyrir áskrifendur Blökastsins.

Fréttakviss vikunnar #56: Athugaðu þekkingarþorstann á þorraþræl
Hversu vel fylgist þú með fréttum og líðandi stund? Taktu þátt í Fréttakvissi sem kemur út á laugardögum á Vísi.

Leist ekkert á þverhníptar hlíðar Skessuhorns: „Ekki horfa niður“
Ævintýrafólkið Garpur I Elísabetarson og Rakel María Hjaltadóttir fóru í erfiða fjallgöngu á Skessuhorn í Borgarfirði í nýjasta þættinum af okkar eigið Ísland.

Ofurfyrirsætan Adriana Lima á von á barni
Fyrirsætan Adriana Lima birti sitt fyrsta Tik Tok myndband fyrr í dag þar sem hún tilkynnti að lítið barn sé á leiðinni. Í myndbandinu má sjá hvernig kærastinn hennar Andre Lemmers er reglulega að bregða henni og hvernig hún nær að bregða honum til baka með óléttuprófinu.

„Mig langar að lifa og mig langar að verða gamall með konunni minni“
Ástríðufulli íþróttalýsandinn Sigurbjörn Árni Arngrímsson greindist með ólæknandi sortuæxli og deilir sögu sinni í nýjasta Krafts hlaðvarpsþættinum af Fokk ég er með krabbamein.

Sýningin er vítamínsprauta fyrir áhorfendur
Samsýningin Í öðru húsi eftir Guðlaugu Míu Eyþórsdóttur, Hönnu Dís Whitehead og Steinunni Önnudóttur opnar í Ásmundarsal á laugardaginn. Bjartir litir og léttleiki fylla sýningarrýmið sem er sannkölluð vítamínsprauta fyrir áhorfendur.

Stórkostlegir litir á Sólheimajökli: „Miklu fallegri en ég bjóst við“
Í fyrsta þættinum af Okkar eigið Ísland heimsóttu Rakel og Garpur Sólheimajökull. Þau segja að gangan sé mjög byrjendavæn.

Kúbulífið: Bónorð, bleikir bílar og sól
Fyrr í vikunni fór í loftið full vél frá Icelandair af Íslendingum sem héldu til Kúbu að fagna fimmtugs afmæli Guðjóns Más Guðjónssonar, eiganda og framkvæmdastjóra tæknifyrirtækisins OZ. Meðal gesta eru nokkrar af stærstu samfélagmiðlastjörnum Íslands sem hafa verið duglegar að deila myndum úr ferðinni.

Hjálmar Örn fangar stemninguna í íslenskum fótboltahlaðvörpum
Þeir tveir er skemmtiþáttur með Hjálmari Erni Jóhannssyni og Gumma Ben.

Eðvarð er í dag með þykkt og fallegt hár
Eðvarð Gíslason hefur verið með skalla frá því hann var tvítugur, eins og svo margir karlmenn lenda í.

Gera All Out of Luck að sínu og frumsýna nýtt myndband
Reykjavíkurdætur hafa gefið út ábreiðu af hinu ástsæla Eurovisionlagi All Out of Luck sem Selma Björnsdóttir lenti í öðru sæti með árið 1999. Dæturnar hafa vakið mikla athygli hérlendis og erlendis fyrir þáttöku sína í Söngvakeppni Sjónvarpsins og eru þær allar miklir aðdáendur lagsins og Selmu.

„Hún vildi ekkert með mig hafa fyrst um sinn“
Tobba var aðeins fjórtán ára gömul þegar hún og Hreimur byrjuðu fyrst saman. Þrátt fyrir að hafa farið sundur og saman eins og gengur og gerist á unglingsárunum, eru þau gift í dag og lifa fjölskyldulífi í Norðlingaholtinu ásamt þremur börnum og einum Covid-hundi.

Á andhormónum daglega næstu tólf ár: „Þetta er langhlaup“
„Ég greindist með brjóstakrabbamein í febrúar 2019, þá 35 ára gömul. Ég þurfti bara að taka allan pakkann. Ég fór í skurðaðgerð, svo fór ég í lyfjameðferð og svo geisla.“

Elti draumana til London og samdi svo lag um óvissuna við að fullorðnast
Vilberg Andri Pálsson gefur út á miðnætti í dag lagið Kílómetrar. Vilberg er leiklistarnemi úti í London og tónlistarmaður og gerði hann einnig stuttmynd með sama nafni sem kemur út síðar á árinu en hefur nú þegar hlotið verðlaun.

Afhenti Píeta samtökunum 1,4 milljónir króna: „Hefði ekki getað beðið um neitt betra“
Hin 22 ára Rósa Björk Einarsdóttir afhenti í dag Píeta-samtökunum 1,4 milljónir króna sem söfnuðust við góðgerðarstreymi hennar á Twitch, streymisveitu sem sérhæfir sig í útsendingu rafíþrótta, í lok janúar. Streymið stóð yfir í sólarhring og var til heiðurs bróður hennar sem féll fyrir eigin hendi árið 2007, 33 ára að aldri.

Telur einkvæni vera óheilbrigt
Bandaríski þáttastjórnandinn Nick Cannon opnaði sig um ástarlíf sitt í hlaðvarpi í gær. Þar lýsti hann því meðal annars yfir að hann tengdi einkvæni við sjálfselsku og eignarhald.

Notuðu sumarlaunin til þess að framleiða kvikmynd
Spennutryllirinn Harmur kemur í kvikmyndahús um helgina og er þetta fyrsta kvikmynd leikstjóranna Ásgeirs Sigurðssonar og Antons Karls Kristensen sem báðir eru á tvítugsaldrinum. Myndin hefur verið að fá verðskuldaða athygli en mikil ástríða einkennir framleiðslu myndarinnar sem leikstjórarnir fjármögnuðu sjálfir.

Einstaklega fallegt þrjú hundruð fermetra einbýlishús í Hafnarfirði
Í Heimsókn á Stöð 2 í gærkvöldi fór Sindri Sindrason í heimsókn til innanhússarkitektsins Ernu Geirlaugar Árnadóttur sem býr ásamt fjölskyldu sinni í einbýlishúsi í Hafnarfirðinum.

Bjóða börnum að gerast listamenn
Krakkaklúbburinn Krummi stendur mánaðarlega fyrir skemmtilegri dagskrá á Listasafni Íslands þar sem kátum krökkum er boðið að fræðast um listaverkin í safneign Listasafnsins. Dagskráin er vönduð og öllum er velkomið að taka þátt, sér að kostnaðarlausu og eru börn á öllum aldri velkomin.

Var kominn á hættulegan stað
Vilhelm Neto er einn vinsælasti skemmtikraftur landsins sem hefur meðal annars vakið mikla athygli í síðustu tveimur Áramótaskaupum. Vilhelm er gestur vikunnar í Einkalífinu.

„Stærsta sorg sem ég hef lent í“
Haraldur Ingi Þorleifsson stofnaði sitt eigið fyrirtæki í stofunni heima hjá sér árið 2014. Hugmyndin var þá að stofna lítið félag utan um þau verkefni sem hann var sjálfur að vinna í lausamennsku sem hönnuður á ýmiskonar vefsíðum, öppum og öðru skjáefni.

Íslandsferð ofurparsins Idris og Sabina Elba vekur athygli
Enski leikarinn Idris Elba og fyrirsætan Sabina Elba voru stödd á Íslandi á Valentínusardaginn. Sabina deilir myndskeiði úr ferðinni á Instagram-síðu sinni og virðist sem hjónin hafi verið hæstánægð með dvöl sína á The Retreat, fimm stjörnu lúxushóteli Bláa lónsins í Grindavík.

Sigurvegari úkraínsku söngvakeppninnar fer ekki í Eurovision
Úkraínska ríkisútvarpið UA:PBC hefur hætt við að senda hina 28 ára gömlu Alinu Pash í Eurovision fyrir hönd Úkraínu. Söngkonan ferðaðist til Krímsskaga fyrir tæpum sjö árum síðan og ríkisútvarpið hafði ferðalagið sérstaklega til skoðunar.

Gefa þau skilaboð að hreyfihamlaðir eigi bara að vera á gömlum bílum
„Að mínu mati þarf að taka það kerfi alveg í gegn frá A til Ö, það er bara spurning hver vill taka þann bolta,“ segir Bergur Þorri Benjamínsson formaður Sjálfsbjargar um bifreiðastyrki, til dæmis fyrir einstaklinga sem þurfa að nota hjólastól.

Komin í einangrun stuttu fyrir Söngvakeppni Sjónvarpsins
Nú blæs duglega á móti systkinunum í Amarosis sem munu keppa í Söngvakeppni Sjónvarpsins í ár en Ísold Wilberg hefur greinst með Covid-19 og er þar af leiðandi í einangrun. Þau hafa því þurft að aflýsa æfingum fyrir undanúrslitakvöldið sem nálgast óðfluga.

Hulda hreppti annað sætið í World Top Model keppninni
Fegurðardrottningin Hulda Vigdísardóttir hreppti annað sætið í World Top Model keppninni sem fór fram um helgina. Keppnin var haldin í New York og er hluti af tískuvikunni þar. Þetta var í fyrsta skipti sem keppandi frá Íslandi tekur þátt.

Ástin sigraði þegar Sólbjört og Einar trúlofuðu sig
Ástin virðist hafa sigrað en dansarinn Sólbjört Sigurðardóttir og Einar Stefánsson sem er trommarinn í Hatara og gítarleikari Vök voru að trúlofa sig. Spurningin var borin upp á sjálfan Valentínusardaginn svo rómantíkin hefur verið allsráðandi hjá þeim á deginum.

„Þessi greyið kona þurfti að sitja þarna með mér á meðan ég grét ofan í trufflu makkarónurnar og ostinn“
Grínistinn Seth Rogen rifjar upp sitt allra versta stefnumót til þessa í þættinum hjá Jimmy Kimmel. Sem betur fer er langt síðan hann upplifði atvikið en hann kynntist eiginkonu sinni Lauren Miller árið 2004.